forlag með sál
Leyndarmál Lorelei

Leyndarmál Lorelei

Höfundur: Carolyn Parkhurst

Þýðandi: Anna M. Sigurðardóttir

Hvað gerir maður sem missir eiginkonu sína eftir kjánalegt fall úr eplatré? Eina vitnið að þessum harmleik er Lorelei, en hún er ekki til viðræðu um það sem gerðist, enda hundur. - Og hvað er þá til ráða?

Kilja

Paul trúir lesanda fyrir sögu sinni og Lexyar; hann er einlægur og angistarfullur, og leitar svara við dularfullum dauðdaga konu sinnar með ólíklegustu ráðum. Því meira sem Paul reynir að átta sig á hvað gerðist, þeim mun sársaukafyllra finnst honum að horfast í augu við sannleikann um konuna sem hann elskar. Leyndarmál Lorelei er mögnuð ástarsaga en um leið sálfræðilegur tryllir.

Þessi fyrsta bók höfundar hefur hlotið gífulega góðar viðtökur og dvaldi lengi í fyrsta sæti á metsölulista í Bandaríkjunum og Bretlandi. Hún hittir beint í hjartastað og er í senn ljúf, átakanleg og grípandi.

„Sannarlega ögrandi verk... þar sem takast á hin dýpsta sorg og æðsta gleði.“

- New York Daily News.

Vara ekki fáanleg

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica