forlag með sál
Í hlýjum skugga

Í hlýjum skugga

Höfundur: Lotta Theil

Þýðandi: María Sigurðardóttir

Eva lifir í tveimur heimum - en á sér bara eitt líf. Á daginn þvælist hún um undirheima Stokkhólms til að kaupa heróínskammtinn sinn en á nóttunni er hún vörður í öryggismiðstöð, tilbúin í útkall. Þetta er saga um fíkn, ást, vináttu, sorg og einmanaleika. Bókin hefur vakið gríðarlega athygli og eftir henni hefur verið gerð kvikmynd.

Kilja

Eva á sér engar rætur; fortíð, nútíð og framtíð renna saman í martraðarkennda tilveru þar sem bókstaflega allt snýst um að fela eiturlyfjafíknina. Eina nóttina þegar hún er í útkalli hittir hún Erik. Hann er ekki bara maður drauma hennar heldur líka lögreglumaður og líf þeirra beggja breytist á dramatískan hátt.

Eins og oft áður er raunveruleikinn lyginni líkastur en þessi saga er einmitt byggð á sjálfsævilegum atburðum þar sem höfundur segir á einlægan og hreinskilinn hátt frá glímunni við heróínið, sinni dýpstu niðurlægingu og mestu gleði. María Sigurðardóttir þýddi.

 

Verð 1.990 kr. Netverð 990 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica