Valmynd.
Höfundur: Marita van der Vyver
Íslensk þýðing: Rannveig Jónsdóttir
Gréta er týnd í skóginum. Maðurinn hennar hefur sparkað henni út, hún er búin að missa barnið sitt og var að því komin að stinga höfðinu inn í bakarofninn - en hvað sem á gengur glatar hún ekki sinni kómísku sýn á tilveruna. Hún er að byggja upp nýtt líf með vinum sínum og ættingjum, bæði látnum og lifandi.
Kilja
Gréta nær ekki alltaf nógu góðum tengslum við sálfræðinginn sinn, enda á Rhonda það til að bregða sér á kústskaftið og skella skollaeyrum við harmatölum Grétu. En þegar farandelskhugi birtist á dyraþrepinu taka ástríðurnar völdin . . .
Marita van der Vyver er frá Suður-Afríku. Hún hefur unnið til fjölmargra verðlauna en sögur hennar einkennast af frásagnargleði og takmarkalausu hugarflugi.
Rannveig Jónsdóttir íslenskaði.