forlag með sál
Brekkan

Brekkan

Höfundur: Carl Frode Tiller

Þýðandi: Kristian Guttesen

Brekkan er afar áhrifamikil verðlaunasaga um ungan mann sem dvelur á réttargeðdeild. Hann skrásetur brotakenndar minningar sínar uns til verður heildarmynd af einstaklingi sem dregur lesandann í kæfandi heim geðveikinnar. Bókin skilur eftir samúð og skilning og opnar augu lesandans fyrir vanda þeirra sem glíma við geðveiki.

Kilja

Brekkan er frumraun norska höfundarins Carls Frode Tiller. Hún vakti mikla athygli og vann til fjölmargra verðlauna. Leikgerð sögunnar var sett upp í norska þjóðleikhúsinu árið 2004 og hlaut verkið fádæma vinsældir.

Kristian Guttesen þýddi, en þýðingin var tilnefnd til Íslensku þýðingarverðlaunanna 2007. 


„En sensasjonell debut“
                  – Frumraun á heimsmælikvarða!

Ida Berntsen - Dagbladet, Noregi.

„En fantastisk roman“
                  – Stórkostlegur skáldskapur!

Lars Bjødstrup - Kommakongen.dk, Danmörku.

Carl Frode Tiller er upprennandi stjarna norskra bókmennta.

- Jón Atli Jónasson

„Her pyntes ikke på noget. Romanen er klar og præcis, sproget formidabelt.“
                  – Hér er ekkert verið að skreyta eða hlaða um of … sagan er afburða vel skrifuð
                     og hnitmiðuð. Orðfærið er beitt og ógnvekjandi.

Gitte S. Larsen - Kirkebladet, Danmörku.

Verð 2.490 kr. Netverð 690 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica