forlag með sál
Draumaveröld kaupalkans

Draumaveröld kaupalkans

Sophie Kinsella

Íslensk þýðing: Ragnheiður Bjarnadóttir

Viltu koma með í brjálað búðaráp með Rebeccu Bloomwood? Viltu kynnast ástum hennar og örlögum? Rebecca er kaupóður lygalaupur sem heillar lesendur með meinfyndnum uppátækjum og dagdraumum sem ná ekki nokkurri átt ... eða hvað?Hér kemur fyrsta af nokkrum metsölubókum um gelluna sem leynist í hjarta okkar allra ...

Kilja

Rebecca Bloomwood býr ásamt vinkonu sinni í London og kaldhæðni örlaganna hagar því þannig til að hún starfar sem fjármálablaðamaður þótt hún kunni ekkert með peninga að fara. Reyndar líður henni best í búðum þar sem hún fer hamförum og eyðir um efni fram því hún er sífellt að „spara“ með því að gera „góð kaup“. Loks kemur að skuldadögum og Rebecca bregst við eins og henni einni er lagið - en tekst henni að finna hina fullkomnu hamingju?






Endwich banki

Stallion Square 1

London W1 3HW

Rebecca Bloomwood

Íbúð 4

Jarvis Road 63

London BS1 0DN

6. júlí 1997

Okkur innilegustu hamingjuóskir! Þú mátt vera hreykin af frammistöðu þinni að hafa útskrifast úr háskólanum í Bristol.

Við hjá Endwich erum einnig hreykin af okkar frammistöðu, sem sveigjanlegur og umhyggjusamur banki, sem býður reikningsþjónustu við allra hæfi. Við leggjum okkur sérstaklega fram um að byggja upp langtíma samstarf við viðskiptavini eins og þig.

Við viljum þess vegna bjóða þér, Rebecca Bloomwood - sem útskriftargjöf - vaxtalausan yfirdrátt að fjárhæð 2.000 pund fyrstu tvö árin á starfsferli þínum. Takir þú ákvörðun um að opna reikning hjá Endwich banka, stendur þér þessi möguleiki strax til boða. Við vonum að þú ákveðir að nýta þér þetta einstaka tilboð og hlökkum til að fá umsókn frá þér.

Enn og aftur, innilegar hamingjuóskir.

Virðingafyllst

Nigel Fairs

Markaðsstjóri




Verð 1.990 kr. Netverð 1.450 kr.
Fleiri bækur eftir sama höfund

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica