Lík af ungbarni finnst í frystikistu í ruslagámi. Andrea rannsakar málið og áður en hún veit af teygir það anga sína hálfa öld aftur í tímann og fólki af öllum þjóðfélagsstigum.
Meira
Ylfa er metnaðargjarn lögmaður og hamingjusöm kona. Hún skreppur í gæsaferð með vinkonum sínum og sogast inn í atburðarás sem umturnar lífi hennar. Vinkonurnar lenda í ótrúlegum ævintýrum og kynnast hver annarri á nýjan hátt.
Meira
Með stein í skónum er smásagnasafn eftir dr. Ara Kr. Sæmundsen, framkvæmdastjóra. Um er að ræða 13 stórsniðugar smásögur sem segja m.a. af misheppnuðu bankaráni, hremmingum sumarbústaðareiganda við girðingarvinnu og dreng sem þráir að fá bjúga í jólamatinn af því honum finnast rjúpur vondar.
Meira
Auður hefur sent frá sér sína fyrstu ljóðabók sem nefnist Sálmurinn um glimmer.
Myndskreyting: Einar Hákonarson.
Nóttin og alveran er safn 11 smásagna. Þær eiga það allar sameiginlegt að fjalla um einsemd mannsins - sem á það til að leita svo sterkt á sálina að hann kýs að sitja hjá og virða fyrir sér sjónarspil heimsins.
Meira
Andrea býr i Kaupmannahöfn og fær neyðarkall að heiman frá tvíburasystur sinni sem hún hefur ekki talað við í þrjú ár. Hennar bíða skelfilegar fréttir og fyrr en varir er hún flækt í undarlega atbruðarás sem ekki verður séð fyrir endann á. Ýmislegt úr fortíðinni skríður upp á yfirborðið og blandast núverandi atburðum á dularfullann hátt.
Meira
Sögukona er skáld og sjúkraliði sem tengist manni órjúfanlegum böndum á dánarbeði hans. Hann segir henni ótrúlega sögu sem hún ber ábyrgð á að koma til réttra aðila – og á réttan hátt. En hve mikil áhrif hefur fortíðin á nútíðina og hvenær má satt kyrrt liggja?
Meira
Dagbók kameljónsins er þroskasaga stúlku sem hefur þurft að berjast við að sogast ekki inn í geðveiki ættmenna sinna, en sjálfsvíg þeirrar manneskju sem hún leit á sem klettinn í lífi sínu verður til þess að hún gerir sér ljóst hve dýrmætt lífið er.
Meira
Kristín hefur skrifað magnaða skáldsögu þar sem óviðjafnanlega ljóðrænn og leikandi texti kemur sífellt á óvart og undirstrikar fáránleikann sem einkennir mannleg samskipti í stríðshrjáðri veröld.
Meira
Hátt uppi við Norðurbrún er snargeggjuð nútímaskáldsaga sem greinir frá lífi og örlögum Öddu Ísabellu, sem rekur mínigeðdeild uppi í rúmi í svenfherberginu sínu. Rúmið gefur vel af sér bæði mannauð og peninga og þaðan stjórnar hún lífi sínu og annarra. Adda Ísabella er sérfræðingur í sannleikanum um aðra, en saga hennar er aðeins sönn að einu leyti hún er ekki þroskasaga.
Meira
Höfundur: Margrét Lóa Jónsdóttir.
Ína Karen stendur á krossgötum og kannar nýja stigu í fleiri en einum skilningi. Hún yfirgefur mann sinn og barn og á ferðalagi um Spán kynnist hún ástinni með óvæntum hætti. Í brennandi sólinni skrásetur hún hugleiðingar og atburði og reynir að nálgast sjálfa sig og ástvini sína upp á nýtt.
Meira
Höfundur: Ragnheiður Jónsdóttir
Hér eru fyrstu tvær Þórubækur Ragnheiðar Jónsdóttur, Ég á gull að gjalda og Aðgát skal höfð, saman í einni bók en bókaflokkurinn samanstendur af fjórum bókum. Fjallað er um sígild og sammannleg málefni í afar grípandi sögu þar sem hin rómaða frásagnagáfa höfundarins er upp á sitt besta. Verkið er talið einstök perla og brautryðjendaverk meðal kvennabókmennta.
Meira
Höfundur: Ragnheiður Jónsdóttir
Hér eru tvær síðari Þórubækur Ragnheiðar Jónsdóttur, Sárt brenna gómarnir og Enn spretta laukar, saman í einni bók. Bókaflokkurinn um Þóru er áhrifamikill og grípandi þar sem hin rómaða frásagnargáfa höfundarins er upp á sitt besta. Verkið er skrifað af einstöku mannlegu innsæi og er talið einstök perla og brautryðjendaverk meðal kvennabókmennta.
Meira