Valmynd.
Myndskreyting: Einar Hákonarson.
Nóttin og alveran er safn 11 smásagna. Þær eiga það allar sameiginlegt að fjalla um einsemd mannsins - sem á það til að leita svo sterkt á sálina að hann kýs að sitja hjá og virða fyrir sér sjónarspil heimsins.
Kilja
„Málið snýst þá augljóslega ekki um mig, þegar öllu er á botninn hvolft, heldur um manninn í næsta húsi“.
Lífslánið er hverfult; tímaskynið svikult þótt sláttur hinnar dimmhljóma klukku drynji með reglulegu millibili, ástinni skyldi enginn treysta - jafnvel ofurást getur umsnúist í skefjalaust hatur, og ekki er allt sem sýnist þótt sjónin virðist í góðu lagi. Í þessum beittu sögum getur hver og einn þekkt sitthvað í sjálfum sér - hversdagsleikann í einhverri mynd og óvænt eða stundum ógnvekjandi atvik sem krydda hann sérhvern dag.
Pjetur Hafstein Lárusson er kunnur af ljóðagerð og þýðingum, hér sýnir hann á sér nýja hlið í hinu knappa formi smásögunnar og kemur lesendanum oftar en ekki á óvart.