forlag með sál

Kiljumarkaður Sölku

Allra besta gjöfin

Jim Stovall

Endrum og sinnum færðu í hendurnar svo sérstaka bók að þér finnst þú verða að deila henni með öllum sem þú þekkir. Þetta er slík bók. ALLRA BESTA GJÖFIN fjallar um hvernig uppgötva má tilgang lífsins með því að endurmeta gildi sín og samskipti við aðra. Meira
2.250 kr.

Borða, biðja, elska

Elizabeth Gilbert


Borða, biðja, elska - endurprentun 2010 með bíómyndakápu
Meira
1.490 kr.

Brekkan

Höfundur: Carl Frode Tiller

Þýðandi: Kristian Guttesen

Brekkan er afar áhrifamikil verðlaunasaga um ungan mann sem dvelur á réttargeðdeild. Hann skrásetur brotakenndar minningar sínar uns til verður heildarmynd af einstaklingi sem dregur lesandann í kæfandi heim geðveikinnar. Bókin skilur eftir samúð og skilning og opnar augu lesandans fyrir vanda þeirra sem glíma við geðveiki.

Meira
690 kr.

Bulgari sambandið

Fay Weldon

Þýðandi: Þórunn Hjartardóttir

Bulgari sambandið er jafn ekta og skartgripirnir frá Bulgari. Þetta er saga um ástir og örlög, afbrýði, losta og græðgi. Völd, hefnd, mútur og mafíu, nunnur og drauga. Konur og karlar takst á, atburðarásin er ófyrirsjáanleg og loks stendur ekki steinn yfir steini. Húmorinn og háðið sem Fay Weldon er frægust fyrir er allsráðandi. Henni er ekkert heilagt!

Meira
690 kr.

Dewey

Litli bókasafnskötturinn sem snéri öllu á hvolf

Ævisaga Deweys hefur vakið verðskuldað athygli og kátínu, enda hér á ferð einstök og mannbætandi frásögn um sigra og sorgir fólks þar sem dýrmæt vinátta og hollusta lítils kattar skiptir sköpum. Meira
1.490 kr.
 

Draumaveröld kaupalkans

Sophie Kinsella

Íslensk þýðing: Ragnheiður Bjarnadóttir

Viltu koma með í brjálað búðaráp með Rebeccu Bloomwood? Viltu kynnast ástum hennar og örlögum? Rebecca er kaupóður lygalaupur sem heillar lesendur með meinfyndnum uppátækjum og dagdraumum sem ná ekki nokkurri átt ... eða hvað?Hér kemur fyrsta af nokkrum metsölubókum um gelluna sem leynist í hjarta okkar allra ...

Meira
1.450 kr.

Dætur hússins

Höfundur: Michéle Roberts

Íslensk þýðing: Fríða Björk Ingvarsdóttir

Thérese og Léonie læðast um gamla húsið í Normandy og grufla í fortíðinni. Upp á yfirborðið koma ýmis óþægileg leyndarmál frá gamalli tíð sem hafa afgerandi áhrif á viðkvæmar sálir og móta líf þeirra upp frá því. Þegar frænkurnar hittast eftir tuttugu ára aðskilnað gera hinar sáru minningar samfundinn nær óbærilegan. Grímurnar falla og þær verða að gera upp fortíðina.

Meira
690 kr.

Engillinn hennar Grétu

Höfundur: Marita van der Vyver

Íslensk þýðing: Rannveig Jónsdóttir

Gréta er týnd í skóginum. Maðurinn hennar hefur sparkað henni út, hún er búin að missa barnið sitt og var að því komin að stinga höfðinu inn í bakarofninn - en hvað sem á gengur glatar hún ekki sinni kómísku sýn á tilveruna. Hún er að byggja upp nýtt líf með vinum sínum og ættingjum, bæði látnum og lifandi.

Meira
690 kr.

Eyru Busters - kilja

Eva var ung að árum þegar hún ákvað að þrauka bernskuna hjá móður sem gerði líf hennar að helvíti. Fjöritíu árum síðar rifna upp gömul sár og hið sama gildir um rósirnar hennar. Mögnuð skáldsaga, kvikmynd eftir henni er væntanleg á næsta ári. Meira
1.490 kr.

Fimmta barnið

Eyrún Ýr Tryggvadóttir

Lík af ungbarni finnst í frystikistu í ruslagámi. Andrea rannsakar málið og áður en hún veit af teygir það anga sína hálfa öld aftur í tímann og fólki af öllum þjóðfélagsstigum.

Meira
990 kr.
 

Glerhjálmurinn

Sylvia Plath

Þýðandi: Fríða Björk Ingvarsdóttir

Sylvia Plath var eitt virtasta skáld seinni hluta 20. aldar í Bandaríkjunum. Saga hennar, Glerhjálmurinn, er áhrifamikil lýsing á reynslu einstaklings sem ratar eftir miklar hremmingar út úr myrkviðum dýpstu sálarangistar - og endurfæðist í andlegum skilningi. Þessi margslungna saga er talin ein merkasta perla heimsbókmenntanna.

Meira
690 kr.

Heimkoman

John Bradshaw

Það er nauðsynlegt að sættast við barnið í sér, en til þess að svo geti orðið þurfum við að horfast í augu við þroskaferilinn, gera upp fortíðina og finna okkar sanna sjálf. Þessu má líkja við goðsagnir og ævintýri þar sem heimkoman er stórbrotinn viðburð og hinum týnda er fagnað.

Meira
1.490 kr.

Hljómið eitt

Sandra Benítez

Sögusviðið er El Salvador á árunum 1932 til 1977 þar sem þrjár kynslóðir kvenna flétta sér ólík örlög. Annars vegar eru það bláfátækar Pipil-indíánakonur og hins vegar hvítar og auðugar eiginkonur plantekrueigenda. Þótt himinn og haf skilji að þá heima sem þær lifa í, þá eiga þær ýmsa mannlega þræði sameiginlega. Meira
690 kr.

Hlustarinn - kilja

Ingibjörg Hjartardóttir

Árið 1949 var fjölmargt verkafólk flutt frá Þýskalandi til að vinna á sveitabæjum á Íslandi. Nær sextíu árum seinna verður saga þessara kvenna viðfangsefni Helgu í BA-ritgerð í sagnfræði. Á sumardaginn fyrsta fer hún norður í land til að spjalla við Súlu, sem er ein fárra eftirlifandi Þjóðverja úr þessum hópi. Helga er ekki fyrr komin til hennar en skellur á aftakaveður og hún verður veðurteppt. Fljótlega vaknar sá grunur að erindi Helgu sé annað og meira en að safna heimildum. Er ritgerðin ef til vill yfirskin fyrir heimsókn hennar til Súlu? Hvaða leyndarmál búa undir yfirborðinu? Meira
1.450 kr.

Hugræn tækni og andlegu lögmálin tíu

Barbara Berger

Bækur Barböru Berger, Skyndibitar fyrir sálina og Fleiri skyndibitar fyrir sálina hafa notið gífurlegra vinsælda um allan heim. Hugmyndafræðin á bak við þær er byggð á tíu andlegum lögmálum sem við getum tileinkað okkur og náð undraverðum árangri á einfaldan hátt.

Meira
990 kr.
 

Í hlýjum skugga

Höfundur: Lotta Theil

Þýðandi: María Sigurðardóttir

Eva lifir í tveimur heimum - en á sér bara eitt líf. Á daginn þvælist hún um undirheima Stokkhólms til að kaupa heróínskammtinn sinn en á nóttunni er hún vörður í öryggismiðstöð, tilbúin í útkall. Þetta er saga um fíkn, ást, vináttu, sorg og einmanaleika. Bókin hefur vakið gríðarlega athygli og eftir henni hefur verið gerð kvikmynd.

Meira
690 kr.

Kaupalkinn í New York

Sophie Kinsella

Íslensk þýðing: Ragnheiður Bjarnadóttir

Sjálfstætt framhald af hinni geysivinsælu bók um Draumaveröld kaupalkans, um hina jákvæðu og hrifnæmu Becky, sem segir kannski ekki alltaf alveg satt, en er samt alltaf jafn einlæg og heillandi.

Meira
1.450 kr.

Landnemarnir - kilja

Vilhelm Moberg

Hér birtist í fyrsta sinn á íslensku annar hluti hins heimsfræga verks Vilhelms Moberg sem gert var ódauðlegt í eftirminnilegum sjónvarpsþáttum. Í fyrra var þýðing Jóns Helgasonar á Vesturförunum endurútgefin hjá Sölku en nú eru það Landnemarnir í nýrri þýðingu Magnúsar Ásmundssonar. Meira
1.690 kr.

Leyndarmál Lorelei

Höfundur: Carolyn Parkhurst

Þýðandi: Anna M. Sigurðardóttir

Hvað gerir maður sem missir eiginkonu sína eftir kjánalegt fall úr eplatré? Eina vitnið að þessum harmleik er Lorelei, en hún er ekki til viðræðu um það sem gerðist, enda hundur. - Og hvað er þá til ráða?

Meira
690 kr.

Litla skólahúsið

Jim Heynen er vinsæll bandarískur smásagnahöfundur og hér birtast nokkrar velvaldar smásögur úr hans smiðju. Gyrðir Elíasson valdi sögurnar og íslenskaði. Meira
490 kr.
 

Lofuð

Elizabeth Gilbert


Ný metsölubók eftir metsöluhöfundinn þekkta, Elizabeth Gilbert! Í lok Borða, biðja, elska hafði Liz orðið ástfangin af hinum brasilíska Felipe. Nú ákveða þau að setjast að í Bandaríkjunum og hefja nýtt líf saman. Liz og Felipe lofa hvort öðru tryggð, en eru sammála um að þau muni aldrei, ekki undir neinum kringumstæðum, giftast. (Þau höfðu bæði nýlega gengið í gegnum erfiðan skilnað.) En örlögin grípa í taumana þegar yfirvöld í Bandaríkjunum meina Felipe inngöngu. Parið verður að endurskoða afstöðu sína og viðhorf til hjónabandsins ef Felipe á að fá að koma inn í landið. Meira
999 kr.

Manstu mig?

Sophie Kinsella

Íslensk þýðing: Aldís Björnsdóttir

Bók eftir Sophie Kinsella, höfund metsölubókanna um kaupalkann síglaða. Sagan um Lexí og hennar litríku fjölskyldu, vini - og ástmenn er ógleymanlega fyndin ástar- og harmsaga sem engin alvöru skvísa má missa af.

Meira
999 kr.

Með stein í skónum

Ari Kr. Sæmundsen

Með stein í skónum er smásagnasafn eftir dr. Ara Kr. Sæmundsen, framkvæmdastjóra. Um er að ræða 13 stórsniðugar smásögur sem segja m.a. af misheppnuðu bankaráni, hremmingum sumarbústaðareiganda við girðingarvinnu og dreng sem þráir að fá bjúga í jólamatinn af því honum finnast rjúpur vondar.

Meira
490 kr.

Sautjándinn

Lóa Pind Aldísardóttir

Ylfa er metnaðargjarn lögmaður og hamingjusöm kona. Hún skreppur í gæsaferð með vinkonum sínum og sogast inn í atburðarás sem umturnar lífi hennar. Vinkonurnar lenda í ótrúlegum ævintýrum og kynnast hver annarri á nýjan hátt.

Meira
750 kr.

Töfrar 1-2-3

Höfundur: Thomas W. Phelan

Íslensk þýðing: Bryndís Víglundsdóttir

Hver ræður á heimilinu? Ráðum við ferðinni eða látum við börnin stjórna okkur? Ekki er alltaf auðvelt að taka á hegðunarvanda barna, halda stillingu og sýna sanngirni. Góð ráð eru því vel þegin, ekki síst ef þau krefjast þess ekki að við séum snillingar eða sálfræðingar.

Meira
1.990 kr.
 

Vatnsmelónusykur

Höfundur: Richard Brautigan

Þýðandi: Gyrðir Elíasson

Vatnsmelónusykur er saga um ást og svik í undarlegum heimi þar sem húsin eru gerð úr steinum og vatnsmelónusykri og sólin skín í ólíkum litum sérhvern dag.

Meira
490 kr.

Vesturfararnir - kilja

Vilhelm Moberg

Hér er endurútgefinn fyrsti hluti hins heimfræga og áhrifamikla verks Vilhelms Moberg um fjölskylduna sem flutti frá Smálöndum í Svíþjóð vestur um haf og hóf nýtt líf í Ameríku um miðja 19. öld. Ógleymanlegt verk öllum sem sáu sjónvarpsþættina vinsælu.

Meira
1.690 kr.

Það sem mér ber

Anne Holt

Ótrúlega spennandi, óhugnanleg og einstaklega grípandi saga.” (Anne Shäffer, Bergens Tidende) „Glæpsamlega vel skrifað.” (Christopher Hals Gylseth, Dagbladet) „Það sem mér ber er án vafa besta glæpasaga Anne Holt.” (Tone Solberg, Dagens Næringsliv) Meira
1.990 kr.

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica