Ritstjórn: Helga K. Einarsdóttir
Íslensk náttúra í öllum sínum margbreytileik er viðfangsefni ljóðanna í þessari bók. Vetrarstormar, sumarnætur, vorblær og haustmyrkur. Allt mótar þetta skáldin, hvort sem þau yrkja um átök manns og náttúru eða fegurðina sem hvarvetna blasir við.Tími ljóðanna er allt frá Völuspá til loka 20. aldar.
Meira
Höfundur: Þóra Ingimarsdóttir
Í þessari fyrstu bók Þórunnar er að finna úrval ljóða sem hún hefur ort í gegnum tíðina. Tregablandinn tónn einkennir ljóð hennar og oftar en ekki er fjallað um angist manneskjunnar gagnvart víðsjálum heimi þar sem helsta athvarfið er náttúran sem á undir högg að sækja.
Meira
Þýðing: Pjetur Hafstein Lárusson
Kínversk og japönsk ljóð hafa löngum verið í hávegum höfð, enda fáguð með afbrigðum. Bókin geymir skáldskap frá 8. öld, allt fram til okkar daga í vandaðri þýðingu og einstaklega fögur ljóð eftir japanskar konur skipa drjúgan sess.
Meira
Stefanía G. Gísladóttir er gift áströlskum manni og eiga þau 4 börn. Eftir 10 ára búskap í Seldal, fluttu þau til Vestur-Ástralíu og eru nú búsett í þorpinu Kendenup. Hún hefur áður sent frá sér nokkrar bækur. Hér fléttar hún saman endurminningar og stemmingar úr umhverfi sínu í ólíkum heimsálfum.
Meira
Eftir Pál Ólafsson liggur mesta safn ástarljóða nokkurs íslensks skálds. Nú er þessum arfi í fyrsta sinn safnað í eina bók og birtur fjöldi kvæða og vísna sem ekki hafa áður sést á prenti. Þórarinn Hjartarson tók efnið saman. Hann hefur áður fengist við Pál Ólafsson og sýnt fram á að fá skáld, ef nokkur, eru söngrænni en Páll og hann á sinn stað í hjarta þessarar þjóðar.
Meira
Höfundur: Páll Ólafsson
Samantekt: Þórarinn Hjartarsson
Eftir Pál Ólafsson liggur mesta safn ástarljóða nokkurs íslensks skálds. Nú er þessum arfi í fyrsta sinn safnað í eina bók og birtur fjöldi kvæða og vísna sem ekki hafa áður sést á prenti. Þórarinn Hjartarson tók efnið saman. Hann hefur áður fengist við Pál Ólafsson og sýnt fram á að fá skáld, ef nokkur, eru söngrænni en Páll og hann á sinn stað í hjarta þessarar þjóðar.
Meira
Höfundur: Anna Margrét Stefánsdóttir
Anna Margrét Stefánsdóttir fjallar hér um afar persónulega lífsreynslu og veitir innsýn í sorgarferli sem margir þekkja - að horfa á eftir barni sem aldrei leit dagsins ljós. Í ljóði og myndum endurspeglast innri átök höfundar sem tekst að okum að ná sátt og hofra með bjartsýni fram á veginn.
Meira
Guðrún Hannesdóttir er löngu kunn fyrir barnabækur sínar og myndskreytingar. Auk þess hefur hún lengi unnið að því að safna gömlum vísum fyrir börn. Fléttur eru fyrsta ljóðabók hennar. Aðeins örfá ljóð hennar hafa áður birst á prenti. Árið 2007 hlaut hún Ljóðstaf Jóns úr Vör í samnefndri ljóðakeppni fyrir ljóðið Offors.
Meira
Höfundur: Kristín Ómarsdóttir
Myndir: Anna Hallin og Ósk Vilhjálmsdóttir
Snilldarleg ljóð og skemmtilegar ljósmyndir mætast í þessari bók og vekja hugrenningar um rými, sjónarhorn, hlutverk listar og skáldskapar. Hvar á listin sér stað? Bókin var gefin út í tengslum við samnefnda sýningu í Listasafni ASÍ.
Meira
Höfundur: Hallgerður Gísladóttir.
Hallgerður sendi frá sér og ritstýrði nokkrum bókum en Í ljós var fyrsta ljóðabók hennar sem gaf fyrirheit um frjóan skáldferil. Bókin fékk mikla athygli og góða dóma þegar hún kom út haustið 2005.
Meira
Kristín kvaddi sér hljóðs fyrir nítján árum og vakti þá strax athygli fyrir frumlegan og prakkaralegan stíl. Hún hefur sent frá sér á annan tug verka, leikrit, ljóðabækur, skáldsögur og smásögur.
Meira
Þóra Jónsdóttir frá Laxamýri er ein athyglisverðasta samtímaskáldkona okkar. Hún yrkir meðal annars um ástina, náttúruna og órjúfanleg tengsl við fortíðina. Fyrsta ljóðabók Þóru, Leit að tjaldstæði, kom út 1973, en síðan hefur hún sent frá sér átta bækur auk ljóðaþýðinga. Landið í brjóstinu er safn úrvalsljóða úr öllum bókunum.
Meira
Samantekt: Sveinbjörn Beinteinsson.
Hér eru á ferðinni 900 snjallar vísur eftir þekkt skáld og hagyrðinga. Meðal þeirra eru: Páll Ólafsson, Sigurður Breiðfjörð, Bólu-Hjálmar, Kristján Fjallaskáld, Látra-Björg, Skáld-Rósa, Æri-Tobbi, Leirulækjar-Fúsi, Steinunn í Höfn, Eyjólfur ljóstollur og Sölvi Helgason.
Meira
Höfundur: Eysteinn Ásgrímsson
Útgáfu annaðist: Gunnar Finnbogason
Teikning á band og titilblað: Bjarni Jónsson listmálari
Lilja mun ort um 1350 af Eysteini Ásgrímssyni munki. Hún var fyrst prentuð á Hólum í vísnabók Guðbrands Þorlákssonar 1612 en nú munu Lilju-útgáfur vera orðnar sem næst 30.
Meira
Ljóðmælandinn dvelur á draugasetri þar sem draumar og veruleiki verða eitt. Þar sem dauðir ríkja og enginn tími líður. Hér er á ferðinni sjötta ljóðabók höfundar en hann hefur getið sér orð fyrir persónulegan stíl.
Meira
Höfundur: Guðmundur Böðvarsson
Formáli: Silja Aðalsteinsdóttir
100 úrvalsljóð skáldsins Guðmundar Böðvarssonar á aldarafmæli hans. Umsjón með úrvalinu hafði Silja Aðalsteinsdóttir, sem einnig ritaði kaflar um líf skáldsins og list. Guðmundur var eitt ástsælasta skáld Íslendinga á 20. öld. Bókin er er úrval hundrað ljóða Guðmundar, gefið út í tilefni aldarafmælis hans í september 2004.
Meira
Hér er um að ræða leikandi létt sléttubönd í sauðalitunum og framúrskarandi lopaljóð skreytt fallegum ljósmyndum eftir höfundinn.
Meira
Hér fara saman skörp myndskeið og hugrenningar sem gefa lesendum aðra sýn á veruleikann.
Á tímum þrenginga blómstrar ástin. Fólk virðist frekar finna hjá sér þörf fyrir að deila hugsunum og tilfinningum með ástvinum. Bókinni fylgir umslag, en hún í mjóu kiljubroti og því tilvalin til að senda ástrík orð í pósti.
Meira
Auður hefur sent frá sér sína fyrstu ljóðabók sem nefnist Sálmurinn um glimmer.
Höfundur: Margrét Lóa Jónsdóttir
Margrét Lóa hefur skipað sér sess meðal bestu skálda okkar með ágengum stíl og einlægni. Hún er löngu þekkt fyrir ljóðabækur og sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu árið 2004, Laufskálafuglinn.
Meira
Höfundur: Wallace D. Wattles
Þýðandi: Jón Lárusson
Leyndarmálið bak við Leyndarmálið er nú loksins komið út á Íslandi. Vísindin að baki ríkidæmi eftir Wallace D. Wattles kom út árið 1910 og er litið til bókarinnar sem grunnrits í fræðunum um lögmál aðdráttaraflsins.
Meira