Valmynd.
Eftir Pál Ólafsson liggur mesta safn ástarljóða nokkurs íslensks skálds. Nú er þessum arfi í fyrsta sinn safnað í eina bók og birtur fjöldi kvæða og vísna sem ekki hafa áður sést á prenti. Þórarinn Hjartarson tók efnið saman. Hann hefur áður fengist við Pál Ólafsson og sýnt fram á að fá skáld, ef nokkur, eru söngrænni en Páll og hann á sinn stað í hjarta þessarar þjóðar.
Harðband
„Mín kvæði eru minn innri maður en engin uppgerðarpóesí,“ skrifaði Páll Ólafsson um kveðskap sinn. Ástarljóðin eru fyrst og síðast skáldleg tilfinningatjáning en í tímaröð mynda þau jafnframt sögu sem einnig er skýrð með stuttum lesköflum. List Páls er borin uppi af eldi hjartans, hröðum æðaslætti og óvenju léttvængjuðum orðum. Kvæðin grípa okkur enn fastari tökum þegar þau, eitt af öðru, svipta hulunni af ástarsögu þeirra Páls og Ragnhildar Björnsdóttur.
Fyrst satt eg ekki segi
svo er best eg þegi
en eg get ekki þagað
af því hjartað dagað
hefur uppi hjá þér
og hleypur aldrei frá þér.
Það að nátttrölli orðið er
ástin mín kær, í faðmi þér.
skrifaði Páll Ólafsson um kveðskap sinn.
Páll Ólafsson á Wikipedia