Valmynd.
Ljóðmælandinn dvelur á draugasetri þar sem draumar og veruleiki verða eitt. Þar sem dauðir ríkja og enginn tími líður. Hér er á ferðinni sjötta ljóðabók höfundar en hann hefur getið sér orð fyrir persónulegan stíl.
Kilja
Litbrigðamygla er ljóðahrollvekja í sérflokki þar sem höfundur nær lesandanum á hljóðlátt en áhrifaríkt eintal.
"Skyldu þessi húsakynni ekki vera vistarverur hugans, þar sem allt gengur aftur …" Ástráður Eysteinsson: TMM · 3, 2006
trúir þú á betri kodda spurði hann
já svaraði hún
og betri sæng og betra rúm
*
samasem tími afl og eða pláss (kannski pása
viltu að ég útskýri þetta nánar fyrir þér)
meira pláss þýðir meiri ást
nóttin er græn gróin og ógeðfelld
ég er ógeðslega graður
þú ert ógeðslega flott