Valmynd.
Höfundur: Hallgerður Gísladóttir.
Hallgerður sendi frá sér og ritstýrði nokkrum bókum en Í ljós var fyrsta ljóðabók hennar sem gaf fyrirheit um frjóan skáldferil. Bókin fékk mikla athygli og góða dóma þegar hún kom út haustið 2005.
Kilja
Hallgerður Gísladóttir var sagnfræðingur að mennt og fagstjóri Þjóðháttasafns Þjóðminjasafns Íslands. Hún lést í 1. febrúar 2007. Hallgerður var mikilsmetinn fræðimaður og eftir hana birtist fjöldi greina í safnritum og tímaritum. Hún var gott ljóðskáld og birti nokkuð af ljóðum opinberlega, hún lagði einnig sitt af mörkum til varðveislu á kveðskap og rímum.
Hallgerði var tamt að yrkja um umhverfi sitt - náttúru og borg - með vísan í söguleg atvik og sveitalíf. Gáskafullur leikur að orðum og þekking á íslenskri menningu einkennir ljóð hennar sem eru yfirleitt knöpp að formi til.
Sunnudagur til sælu
Sólstafir
sindra á grænu plussi
kaffiilmur
kraumar í brjósti
kliðmjúkt niðar klerkurinn á gufunni
á flöskugrænum sésterfíldsófa
sefur elskan mín
á andlitinu bærist blaðið
börnin hafa jafnvel samið frið
Einmánuður
Sólin skelliskín
á grásprengdan Esjukoll
- ýjar að því
sem liggur í loftinu
vekur tár
í augum
óvönum ljósi
Bókaútgáfan Salka kveður gott skáld með söknuði og þakkar góð kynni og samstarf.