forlag með sál
Hlustarinn - kilja

Hlustarinn - kilja

Ingibjörg Hjartardóttir

Árið 1949 var fjölmargt verkafólk flutt frá Þýskalandi til að vinna á sveitabæjum á Íslandi. Nær sextíu árum seinna verður saga þessara kvenna viðfangsefni Helgu í BA-ritgerð í sagnfræði. Á sumardaginn fyrsta fer hún norður í land til að spjalla við Súlu, sem er ein fárra eftirlifandi Þjóðverja úr þessum hópi. Helga er ekki fyrr komin til hennar en skellur á aftakaveður og hún verður veðurteppt. Fljótlega vaknar sá grunur að erindi Helgu sé annað og meira en að safna heimildum. Er ritgerðin ef til vill yfirskin fyrir heimsókn hennar til Súlu? Hvaða leyndarmál búa undir yfirborðinu?

Kilja

Á meðan Helga bíður þess að veðrinu sloti, skrifast hún á við Hlustarann. En það er trúnaðarvinur sem hún hefur eignast á netinu, hún trúit honum fyrir sögu sinni og hún væntir góðra ráða í staðinn. Spennan vex og endirinn kemur lesandanum á óvart.

Hlustarinn er þriðja skáldsaga Ingibjargar Hjartardóttur, en áður hafa komið út Upp til sigurhæða og Þriðja bónin. Auk þess hefur hún skrifað fjölda leikrita, bæði sviðsverk og úrvarpsleikrit, ævisögu, ljóð og smásögur.

Hlustarinn er raunsæ saga, skrifuð á leikandi lesmáli, áhugaverð og spennandi.
Ingveldur Geirsdóttir, Morgunblaðið



Verð 2.490 kr. Netverð 1.450 kr.
Fleiri bækur eftir sama höfund

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica