Tinna Þórudóttir Þorvaldsdóttir höfundur Þóru-heklbókar verður með tvö námskeið í
Litlu prjónabúðinni, Hátúni 6a í júní.
Um er að ræða tvö námskeið; hvort tvö skipti. Hið fyrra er 30. maí og 13. júní kl. 20.00–22.30 en það er hugsað fyrir lengra komna og hið síðara 6. og 20. júní kl. 20.00–22.30 og er það fyrir byrjendur. Kennd verða grunnsporin í hekli og hvernig er heklað eftir uppskrift. Á fyrra námskeiðinu er þátttakendum kennt að hekla jakkapeysu fyrir börnin og á síðara námskeiðinu er þátttakendum kennt að hekla þæfða pottaleppa og kanta utan um borðtuskur.
Þorbjörg Hafsteinsdóttir, höfundur 9 leiðir til lífsorku, 10 árum yngri á 10 árum og Matur sem yngir og eflir hefur lokið við að taka upp sjónvarpsþáttaröð fyrir MBL sjónvarp og verða þættirnir sýndir þar næstu vikur. Þættirnir eru byggðir á bókinni 9 leiðir til lífsorku. Fyrsti þátturinn er kominn í loftið en þar kynnir Þorbjörg það sem koma skal í þáttunum í sumar.
Í maí ætlum við að bjóða vinsælar bækur á allt að helmings afslætti.
Við höfum sett saman nokkra pakka, en hver þeirra inniheldur tvær tengdar bækur.
Þú greiðir fyrir þá dýrari og færð hina ókeypis með.
Síðan í febrúar höfum við birt hér vikulega stutt myndbönd með hekl-leiðbeiningum en þau hefur Tinna Þórudóttir Þorvaldsdóttir höfundur bókarinnar Þóra-heklbók skapað.
Nú er komið að síðasta myndbandinu en þar kennir Tinna okkur að hekla galdralykkju.
Myndböndin má sjá með því að smella hér.
Í Kiljunni á RÚV síðasta vetrardag var m.a. fjallað um Aðventu á fjöllum – ljósmyndabók
Sigurjóns Péturssonar og Þóru Hrannar Njálsdóttur sem kom út hjá Sölku.
Alþjóðadagur bókarinnar er 23. apríl og markar hann upphaf viku bókarinnar. Dagurinn á upphaf sitt að rekja til Katalóníu árið 1436, á messu heilags Georgs. Deginum hefur verið fagnað síðan og hefur tengst á beinan eða óbeinan hátt bókum. Á alþjóðlegum degi bókarinnar hafa ýmsar hefðir skapast víða um heim; þar má til dæmis nefna; Book and Rose Fair á St. James torgi í Barcelona þar sem bóksalar gefa fólki blóm með hverri bók. Sá fallegi siður hefur náð landi víðar en hér á landi hefur önnur góð hefð komist á; Ávísun á lestur – framlag bókaútgefenda og bóksala til að stuðla að auknum lestri.
Lesa meira
Bókin Delicious Iceland, eftir Völund Snæ kom út hjá Sölku árið 2007 og hefur notið gríðarlegra vinsælda. Nú hefur sjónvarpsstöðin BBC Lifestyle hafið sýningar á samnefndum þáttum Völundar og er hann þar með kominn í hóp sjónvarpskokka á borð við Nigellu Lawson, Jamie Oliver og Gordon Ramsey sem öll hafa verið með þætti á stöðinni.
Þættina má sjá á BBC Lifestyle á miðvikudagskvöldum kl. 20:50 og á RÚV snemma í sumar. Lesa meira.
Ullargraffaraverk eftir Tinnu Þórudóttur Þorvaldsdóttur, höfund Þóru–heklbókar, og Auði
Alfífu Ketilsdóttur mun líta dagsins ljós í garði Ásmundarsafns 19. apríl (sumardaginn fyrsta).
Þær munu vinna að verkinu í garðinum 16.–18. apríl og eru allir velkomnir þangað að fylgjast
með og fræðast. Aðgangur að safninu verður ókeypis meðan á þessum tíma.
Þriðja bók Þorbjargar Hafsteinsdóttur 9 leiðir til lífsorku er komin út hjá Sölku.
Þorbjörg, sem er höfundur metsölubókanna 10 árum yngri á 10 vikum og Matur sem yngir og eflir, tekur fræði sín hér skrefinu lengra og kennir okkur að njóta meiri orku, ástríðu og jafnvægis.
Nú er hafinn GRÆNN APRÍL en um er að ræða átak sem vekur athygli og veitir upplýsingar um græna og umhverfisvæna vöru, þekkingu og þjónustu og fyrirtækin sem bjóða upp á slíkt.
Þetta er annað árið sem félagasamtökin GRÆNN APRÍL standa fyrir átakinu og í ár er lögð áhersla á samgöngur, húsnæði og vellíðan. Í apríl setur Salka í brennidepil bækur sem tengjast þeim málum og út mánuðinn verða ýmis tilboð sett fram.
Útgáfa Sölku í apríl verður lituð af átakinu og hefst með endurútgáfu bókarinnar Ákall til mannkyns sem er þarft rit fyrir alla þá sem vilja takast á við að skapa betri og mannvænni heim.
Lesa meira
Í mars er átak krabbameinsfélagsins; mottumars. Við hjá Sölku teljum átakið hafa lyft grettistaki í að koma umræðunni um karlmenn og krabbamein upp á yfirborðið og því ber að fagna. Við hvetjum alla að kynna sér þetta frábæra átak og fylgjast með á síðu þess; mottumars.is
Út mars munum við bjóða, á sérstöku tilboði, bókina Er lítið mein yfirtók líf mitt, en þar segir frá baráttu Lilju Sólrúnar við krabbamein og ekki síður baráttunni við hið tvíeggja sverð; lyfjameðferðina sem hafði hræðilegar aukaverkanir en bjargaði þó lífi hennar.
Lesa meira
Nýtt útgáfuár er svo sannarlega hafið og við hjá Sölku fögnum útkomu þriggja frábærra en ólíkra bóka.
Að elska það sem er, hefur verið ófáanleg um langt skeið. Vegna gríðarlegs fjölda fyrirspurna er bókin fáanleg á ný – nú í kilju.
Afmælisdagar með málsháttum er einnig endurútgáfa vinsællar bókar. Byggð á útgáfu frá 1950, endurskoðuð og færð í nútímalegri búning. Bókin kemur út nú bæði blá og silfurlit.
Ég get það eftir metsöluhöfundinn Louise L. Hay er ný bók sem útskýrir hvernig hægt er að bæta m.a. heilsu, efnahag og ástalíf með því að hafa stjórn á hugsunum sínum og nota jákvæðar staðfestingar. Bókinni fylgir hljóðbók.
Lesa meira
Þann 8. mars sl. var tilkynnt um vinningshafa og tilnefningar í efstu sæti
Gourmand-verðlaunanna en þau eru meðal þeirra virtustu í heiminum á sviði matar-
og vínbóka. Meðal efstu bókanna í aðalflokknum Besta matreiðslubók heims árið 2011
er Stóra bókin um villibráð eftir Úlfar Finnbjörnsson en Patagonia Cuisines bar naumlega
sigur úr býtum. Alls voru sendar inn bækur frá 162 löndum í keppnina og því hörð samkeppni.
Er því ljóst að hér er um glæsilegan árangur að ræða.
Hollara, ódýrara og ferskara með eigin ræktun.
Basilíka er t.d. ein af þeim jurtum sem vex vel í stofu- eða eldhúsglugga.
Vissir þú að nú fer tími villiplanta að ganga í garð?
Blöð og stilkar villiplantna eru mild og sæt þar til sumrar þegar þau verða þau beisk.
Hefur þú smakkað hvönn eða smjörsteikt fíflablöð?
Ræktun og nýting hefðbundinna jurta og hinna sem þér hefði ekki endilega dottið
í hug að nýta til matar.
Nú er tilvalið að kynna sér handtökin og vera reiðubúinn þegar frost fer úr jörðu.
Harpa Dís Hákonardóttir hefur fengið inngöngu í Rithöfundasambandið en hún er þá yngsti meðlimur þess, tæplega 19 ára, en það eru ekki margir höfundar sem hefja ferilinn svo ungir.
Til hamingju Harpa Dís.
Lesa meira
Sigurljóðið í ástarljóðasamkeppni Sölku og Eymundsson
var kynnt og flutt í Bítinu á Bylgjunni og var það ljóðið
Ástarkveðja eftir Snorra Jónsson.
Þátttakan í samkeppninni var framar okkar björtustu vonum,
á þriðja hundrað ljóða bárust og þökkum við frábær viðbrögð.
Sjá vinningsljóðin/lesa meira.
Sálfræðingurinn Hugo Þórisson var með tvo vandaða og skemmtilega þætti á Stöð 2 nú í febrúar.
Fyrr í vetur kom út metsölubókin Hollráð Hugos – hlustum á börnin okkar þar sem Hugo deilir reynslu sinni og útskýrir á einlægan og líflegan hátt hugmyndir sínar um uppeldi. Þættinir eru að hluta byggðir á hugmyndunum í bókinni.
Nú er tilvalið að eignast bókina og kynna sér efnið enn betur.
Lesa meira
Salka hefur fengið nýja póstveitu og símkerfi. Símanúmer og netföng hafa því breyst lítið eitt (gamla númerið og netföngin virka jafnhliða eitthvað áfram meðan þau nýju festa sig í sessi).
Nýtt aðalnúmer Sölku er 522 2250 og netföng enda nú á @salka.is í stað @salkaforlag.is en eru óbreytt að öðru leyti.
Netföng starfsmanna má sjá með því að smella hér.

Sýningin Þetta vilja börnin sjá! stendur enn í Gerðubergi. Þar má sjá myndir úr völdum barna- og unglingabókum ársins 2011. Sýningin stendur til 1. apríl í Gerðubergi (Gerðubergi 3-5) og er opin virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16 og er aðgangur ókeypis.
Í tengslum við sýninguna voru Íslensku myndskreytiverðlaunin afhent en þau eru kennd við Dimmalimm. Meðal tilnefndra voru myndskreytingar flestra barnabóka Sölku árið 2011.

Við viljum vekja athygli á frábæru útvarpsviðtali við Lilju Sólrúnu höfund bókarinnar
Er lítið mein yfirtók líf mitt. Í viðtalinu ræðir Lilja meðal annars um reynslu sína allt
frá því hún greindist með krabbamein, bókina og ferlið sem varð kveikjan að henni.
„Vel skrifuð bók sem öllum er ráðlagt að lesa. Við mælum eindregið með henni“
Eymundsson hefur gefið út fjórða mestölulista ársins 2012.
Á heildarlista, lista yfir mest seldar bækur samtals úr öllum flokkum, er nýútkomin bók Guðna Gunnarssonar Máttur athyglinnar. Í henni beinir Guðni sjónum sínum að því hvernig axla má ábyrgð á eigin lífi og líðan, gera jákvæðar breytingar og lifa í markmiðum sínum.
Salka á heldur betur fleiri bækur á listum vikunnar því í 2. sæti á lista barnabóka er bókin Auður og gamla tréð – jóabók fyrir börn og á lista yfir mest seldar handbækur, fræðibækur og ævisögur eru fjórar bækur frá Sölku; Máttur athyglinnar, Þóra – heklbók, Hollráð Hugos – hlustum á börnin okkar og Máttur viljans.

Okkur langar að vekja athygli á viðtali í Íslandi í dag þar sem rætt er við Guðna Gunnarsson lífsspeking um bókina Máttur athyglinnar en þar beinir hann sjónum sínum að því hversu
einfalt er að bæta líf sitt og tilvist.
Nú er Þorrinn mættur og af því tilefni minnum við á bókina Velkominn Þorri
eftir Ragnhildi Gísladóttur og Steinunni Þorvaldsdóttur.
Þorrinn er tími til að gleðjast – þegar veturinn er harðastur er áskorunin ótvíræð. Okkur hleypur kapp í kinn og þá er gaman. Velkominn Þorri! hvetur okkur til að taka vel á móti þessum árlega gesti og sýnir okkur nýstárlegar leiðir til að gera okkur dagamun í þessum kalda mánuði.
Lesa meira
Fyrsta bók ársins er komin út hjá Sölku. Það er bókin Máttur athyglinnar eftir Guðna Gunnarsson en þar beinir hann sjónum sínum að því hversu einfalt er að gera breytingar á lífi sínu og tilvist.
Bókin er sjálfstætt framhald Máttur viljans sem kom út árið 2011 (sem bók og sem hljóðbók) við góðar undirtektir.
Lesa meira
Þóra – Heklbók situr í 1. sæti á heildarlista Eymundsson (heildarsala - bækur í öllum flokkum) og í raun engin sem ógnar henni þar.
Í 8. sæti aðallistans situr svo einnig bók frá Sölku, bókin sem reddar skipulaginu og gleður hugann, Konur eiga orðið allan ársins hring.

„Skáldagáfa Elíasar er augljós í þessari bók og stirnir á gullkorn“
– Elísarabók fékk fjórar stjörnur og frábæra umsögn í Morgunblaðinu

Eymundsson sendi frá sér fyrsta metsölulista ársins og
á Salka þar tvær af fjórum efstu bókunum á heildarlista;
í 2. sæti er Þóra - heklbók og í 4. sæti dagbókin
Konur eiga orðið 2012 sem kemur nú út í fimmta sinn.

Nú liggur fyrir metsölulisti ársins 2011 frá Eymundsson. Salka á þar tvær af tíu mest seldu bókunum og tvær mestu seldu handbækurnar.
Á heildarlista – yfir tíu mest seldu bækur í öllum flokkum er bókin Hollráð Hugos – hlustum á börnin okkar, eftir Hugo Þórisson og 10 árum yngri á 10 vikum eftir Þorbjörgu Hafsteinssdóttir.
Þær sömu, Hollráð Hugos og 10 árum yngri á 10 vikum
tróna einnig efst á handbókalista í 1. og 2. sæti.

Bryndís Loftsdóttir hjá Eymundsson ræðir um jólasöluna á bókum í Reykjavík Síðdegis – söluhæsta bókin milli jóla-og nýárs er Þóra – heklbók en hún ætlaði „allt að trylla“ í bókaskiptum að sögn Bryndísar.

Bókin Lífsreglurnar fjórar, með lífsspeki Tolteka-indjána er, án efa, ein af
vinsælustu bókum Sölku frá upphafi, enda fór hún sigurför um allan heim.
Hún seldist upp í tvígang hjá okkur og hefur verið ófáanleg um langt skeið
en er nú komin aftur vegna mikils fjölda áskorana.
Úlfar Finnbjörnsson, hefur hlotið tilnefningu til hinna virtu Gourmand-verðlauna í flokknum Besta matreiðslubók ársins 2011 fyrir Stóru bókina um Villibráð.
Einnig voru tilnefndar: Silver of the Sea eftir Völund Snæ Völundarson og Hauk Ágústsson í flokknum Besta fiskmatreiðslubókin og Sultur allt árið eftir Sigurveigu Káradóttur í flokknum Besta sérhæfða matreiðslubókin.
Lesa meira
Unglingabókin Carpe diem, eftir Eyrúnu Ýr Tryggvadóttur og Kristjönu Maríu Kristjánsdóttur fékk nú nýverið fullt hús stiga – fimm stjörnur – og frábæra umsögn í bókagagnrýni Fréttatímans.
Carpe diem er því komin í hóp Sölkubókanna sem fengið hafa frábæra dóma á síðustu vikum …

Við hjá Sölku erum afar stolt af höfundum okkar og bókum, sem fá gríðargóðar viðtökur. Reyndar
svo góðar að við þurfum að hafa okkur öll við að anna eftirspurn.
Í því samhengi má nefna að í vikunni birtist metsölulisti Eymundsson og átti Salka tvær bækur
á heildarlista; hina gríðarlega fallegu bók Stóra bókin um villibráð eftir Úlfar Finnbjörnsson og
bók Hugos Þórissonar Hollráð Hugos – Hlustum á börnin okkar sem verið hefur á flestum metsölulistum frá útgáfudegi. Hugo Þórisson situr nú í góðu sæti hjá Arnaldi og Yrsu.
Til hamingju með verðskuldaðan árangur Hugo og Úlfar!
Endurminningar, skáldastælingar, ástarsögur og ljóð, mannlýsingar, háðkvæði og heimspeki; hvar sem borið er niður leiftrar textinn af einskærri sköpunargleði og Elíasi sjálfum.
Í bók þessari birtist í fyrsta skipti fjölmargt sem hraut úr penna meistarans Elísar Mar (1924-2007). Hann var einn af þeim sem á sinni tíð setti sterkan svip á reykvískt mannlíf og skipaði sér ákveðinn sess í íslensku bómenntaflórunni, enda óhræddur við að reyna á þanþol formsins.

Stóra bókin um villibráð eftir Úlfar Finnbjörnsson fékk fullt hús stiga frá Páli Baldvini Baldvinssyni nú nýverið, enda stórglæsilegt verk, stútfullt af fróðleik.
Bókin er vegleg gjöf og nú í aðdraganda jóla vekjum við sérstaka athygli á að í bókinni eru réttir tilvaldir á jólaborðið – hvort sem fólk ætlar hefðbundna eða nýstárlega leið í eldamennskunni.
Hér má sjá Úlfar segja frá bókinni í Íslandi í dag.
Lesa meira
Bækur Bubba Morthens, Veiðisögur og Áin, eru nú fáanlega á rafbókarformi fyrir iPad og iPhone í fyrsta skipti. Bækurnar fást á öllum verslunarsvæðum iTunes - ekki bara þeirri Bandarísku og eru því aðgengilegar íslenskum lesendum um allan heim.
Máttur viljans, eftir Guðna Gunnarsson er einnig komin út á rafbókarformi.
Fleiri bækur frá Sölku eru væntanlegar á rafbókarformi núna fyrir jólin.

Þriðja barnabókin um Rikku, eftir Hendrikku Waage, er komin út hjá Sölku;
Rikka og töfrahringurinn í Japan. Nú ferðast Rikka þessa löngu leið með hjálp töfrahringsins og sér að það er meira en margan grunar sem við öll eigum sameiginlegt hvar sem við búum í heiminum.
Fyrstu tvær Rikkubækurnar (Rikka og töfrahringurinn á Íslandi og Rikka og töfrahringurinn á Indlandi) hafa notið mikilla vinsælda bæði hér og erlendis.
Salka fagnaði útgáfunni með Hendrikku. Sjá myndir/lesa meira.

Frú Kitschfríður hefur fleiri rif en aðrar konur – og ráð undir þeim öllum!
Húsráðakver frú Kitschfríðar eftir frú Kitschfríður Kvaran er mörgum kunn, en hún hefur um árabil skrifað vinsæla húsráðapistla í Vikuna. Hér hefur hún tekið saman allra handa húsráð, sem gagnast reyndum húsmæðrum jafnt og óreyndum, að sumri sem vetri, í kreppu og á uppgangstímum. Glæsileg bók með húsráðum sem bjarga málunum og gera lífið skemmtilegra. Eldhúsið, þrifinn, garðurinn, þvotturinn, bíllinn - Marta Stjúart hvað? Kitschfríður veit það!
Lesa meira
Konur eiga orðið allan ársins hring 2012 er komin út en fimmta árið í röð eiga konur
á Íslandi orðið í dagatalsbók Sölku. Að baki bókarinnar standa 55 konur og allar veita
þær okkur örlitla innsýn í sitt daglega líf og þankagang nútímans.
Viðfangsefnin í gegnum árin hafa verið eins ólík og þau eru mörg, má þar til dæmis
nefna jafnrétti, ástina í öllum sínum myndum, umhverfisvernd, listina, áttavita,
súkkulaði og hælaháa skó!

Skip mitt braut við Afríkuströnd - örlagasaga Fjólu Steinsdóttur Mileris og fjölskyldu hennar er komin út hjá Sölku. Georg Mileris, sonarsonur Fjólu skráði.
Líf Fjólu Steinsdóttur Mileris hefur verið viðburðaríkt. Hún fæddist í torfbæ, fluttist ung
á fjarlæga strönd. Fjóla var sautján ára Reykjavíkurmær þegar Litháinn Vladimir sigraði hjarta hennar, eftir að hafa stungið sér til sunds af þýsku fraktskipi við upphaf seinni heimsstyrjaldar og synt til hafnar á Íslandi. Fjóla fylgdi honum út í örbirgð og óvissu til Bretlands og sigldu þau síðan ásamt þremur börnum sínum til Afríku þar sem skip
þeirra strandaði.

Barnabókin Agnar Smári: Tilþrif í tónlistarskólanum eftir Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur er komin út hjá Sölku. Bókin er fyrsta bók Höllu Þórlaugar en hún semur bæði texta og myndskreytir en bókina prýða gullfallegar myndir.
Agnar Smári er svo sem ekkert ólíkur öðrum sjö ára strákum, nema hann er ívið lægri í loftinu. Uppáhaldsiðja hans er að semja tónlist og það fer ekki fram hjá neinum þegar hann spilar verkin sín …
Þessi fallega og óvenjulega bók er væntanleg hjá Sölku síðar í nóvember.
Hér er ævintýrið um Auði og jógaæfingar fyrir börn tengd saman með fallegum hætti. Auður er fimm ára stúlka með fjörugt ímyndunarafl. Garðurinn á bak við húsið hennar hefur alltaf verið svo ósköp venjulegur. Dag einn birtist þar nýr vinur sem sýnir henni hvaða spennandi og
skemmtilegu veröld garðurinn hefur að geyma.
Sagan kynnir jóga fyrir börnum á aðgengilegan hátt því jóga er ekki bara góð hreyfing fyrir börn heldur getur ástundun aukið sjálfstraust barna og hugarró.

Þessi gullfallega bók, Veiðisögur eftir Bubba Morthens, er komin í búðir.
Í bókinni kallar Bubbi fram eftirminnilega atburði, glímu við silung í Meðalfellsvatni og átök við stórlaxa í ám víða um land.
Einar Falur styður frásögnina með óviðjafnanlegum ljósmyndum

Það gerist alveg örugglega ekki á hverjum degi að höfundur gefi út tvær skáldsögur í einu, en nú koma samhliða út hjá Sölku bækurnar Ómynd og Carpe diem sem báðar eru eftir Eyrúnu Ýr Tryggvadóttur.
Fyrrnefnda bókin, spennusagan Ómynd, er sjálfstætt framhald bókarinnar Fimmta barnið (sem kom í kjölfar bókarinnar Hvar er systir mín?).
Sú síðari er sláandi og óvenjuleg unglingabók sem Eyrún skrifaði ásamt Kristjönu Maríu Kristjánsdóttur, en Carpe diem er fyrsta bók Kristjönu Maríu.
Bækur Sölku rjúka beint á metsölulista við dreifingu.
Stóra bókin um villibráð eftir Úlfar Finnbjörnsson kom út nýverið og fór beint inn á topp tíu, bæði handbóka- og heildarlista, eftir örfáa daga í sölu.
Bókin Hollráð Hugos – Hlustum á börnin okkar eftir Hugo Þórisson gerði svo slíkt hið sama
Villibráðin er enn ofarlega á handbókalista og Hollráðin í þriðja sæti á heildarlista og í fyrsta sæti á handbókalista .

eftir Hugo Þórisson sálfræðing – þörf og áhugaverð lesning sem hjálpar
foreldrum að gera samskipti við börn sín uppbyggilegri og skemmtilegri.
Bókin er komin úr prentun og er að lenda í bókabúðum um þessar mundir
(auk þess sem verið er að afgreiða/senda bækur keyptar á forsölutilboði).
,,Þessi bók er um lífsreynslu og úrvinnslu tilfinninga. Nú eru þeir tímar í samfélagi okkar að mörgum finnst mikilvægt að líta um öxl, skoða lífið upp á nýtt og vinna úr því sem liðið er. Skoða hvaða gildi hafa gagnast okkur vel og hvaða gildi hafa leitt okkur á villigötur."
Á þessum orðum hefst bókin Aðgát skal höfð í nærveru sálar eftir Solveigu Láru Guðmundsdóttur.

Þessi glæsilega bók er alfræðirit fyrir allt áhugafólk um nýtingu villibráðar, full af fróðleik, og ómótstæðilegum sælkerauppskriftum.
Hér fer „villti kokkurinn“, Úlfar Finnbjörnsson á kostum – veiðir, verkar og eldar.
"Með þessari nýju bók Úlfars er að mínu viti komin fram ein ýtarlegasta og besta bók með leiðbeiningum og uppskriftum fyrir íslenska villibráð sem hægt er að fá." (Sólveig Baldursdóttir, fv. ritstjóri Gestgjafans)

Samkvæmt metsölulista bókaverslana er bók Þorbjargar Hafsteinsdóttur 10 árum yngri á 10 vikum í 2. sæti á heildarlista yfir mestseldu bækur ársins 2011.
Bókin er full af hvatningu, fróðleik, prófum, reynslusögum og uppskriftum. Fleygðu æskuþjófunum út í hafsauga og öllu því sem dregur úr þér orku – og árangurinn lætur ekki á sér standa.
Smelltu hér til að skoða sýnishorn úr bókinni
Lesa meira
Áður fyrr einskorðaðist sultugerð að mestu við haustið en nú er öldin önnur!
Nú er komin út ofurgirnileg og falleg bók um ýmiss konar sultugerð, kryddmauk, marmelaði og síróp.
Hér leiðir Sigurveig Káradóttir, matgæðingur og eigandi Matarkistunnar, okkur um heim sultugerðar þar sem hráefnið er fjölbreytt og hægt að sulta allan ársins hring.
Smelltu hér til að lesa meira...
Lesa meiraÍ tilefni af fyrirlestri sem Vandana Shiva hélt 29. ágúst gefur Salka út tvær skýrslur samdar af alþjóðanefnd um framtíð matvæla og landbúnaðar.
Bókin hefur selst gríðarlega vel og er 2. prentun væntanleg.
„Á okkar dögum er ræktun og viðhald fjölbreytninnar ekki munaður
heldur forsenda þess að við lifum af.“ - Vandana Shiva
Lesa meiraSmelltu hér til að lesa meira...
Kaupa bókina
Hér er að finna u.þ.b. 70 uppskriftir að nesti og matarpökkum sem eru hver annarri ljúffengari og hollari.
Uppskriftunum fylgja fróðleiksmolar svo nestisgerðin verður bæði skemmtileg og lærdómsrík, ekki síst ef börnin eru höfð með í ráðum.
Höfundar eru Sigurveig Káradóttir, Sigurrós Pálsdóttir og Margrét Gylfadóttir og bókin er prýdd ljósmyndum eftir Gunnar Sverrisson.
Smelltu hér til að skoða sýnishorn...
Lesa meira
Nú er þriðji og næst síðasti hluti hins heimsfæga verks Vilhelms Moberg
kominn í verslanir.
Nýtt land er þriðja bókin um Karl Óskar og Kristínu, sænsku landnemana í Ameríku. Lífsbaráttan er eftir sem áður hörð og vinnan jafn erfið í nýja landinu og í því gamla. Munurinn er hins vegar sá að í Ameríku finnst þeim erfiðið skila árangri og að barnahópurinn eigi bjarta framtíð í vændum.
Smelltu hér til að lesa brot úr bókinni...
Hvað er skemmtilegra en að galdra fram grillveislu með vinum og vandamönnum? Nákvæmlega ekkert!
Nú er leikur einn að galdra fram gómsæta grillveilsu að hætti meistarakokka!
Það er bókstaflega allt grillað; fiskur, kjöt, pítsa, ávextir, grænmeti … nefndu það!
Sjónvarpsþættirnir Grillað verða á dagskrá á RÚV í allt sumar
á fimmtudögum kl. 20.00.
Smelltu hér til að lesa meira...
Lesa meira
Hvað er skemmtilegra en að galdra fram grillveislu með vinum og vandamönnum? Nákvæmlega ekkert!
Hér er meistarkokkurinn Völundur Snær komin á kreik og fær með sér Sigurð Gíslason og Stefán Inga Svansson - útkoman er hrein snilld.
Samhliða útgáfu bókarinnar eru sjónvarpsþættir á RÚV, sem verða á dagskrá í allt sumar kl. 19:40 á fimmtudögum.
Ekki láta góða grillveislu fram hjá þér fara!
Nýja bókin eftir Anne Holt er í 1. sæti á metsölulista Eymundsson, tvær vikur í röð.Hér er á ferðinni sjálfstætt framhald af Það sem mér ber en sú saga sló rækilega í gegn og sat lengi á metsölulistum jafnt hér á landi sem og erlendis.
"Það sem aldrei gerist er ein slyngasta glæpasaga sem ég hef lengi lesið" (Terje Stemland, Aftenposten)
Smelltu hér til að lesa meira...
Lesa meira
Komin er út ný ferðabók með glæsilegum ljósmyndum eftir Vilhelm Gunnarsson.
Vilhelm býður lesendum í ógleymanlega ferð um tíu staði sem eru í uppáhladi hjá honum. Hér sýnir hann okkur fegurð hins stóra jafnt og hins smáa og gleymir ekki dýrunum sem eru hluti af hinni lifandi náttúru.
Smelltu hér til að lesa meira...
Nýja uppskriftabókin sem allir eru að tala um -
fjölbreytt matreiðsla verður leikur einn.
Auk girnilegra uppskrifta er í bókinni mikill fróðleikur um næringargildi og bætiefni og Þorbjörg gefur ótal góð ráð um hvernig við getum haldið okkur ungum og hraustum.
Smelltu hér til að skoða sýnishorn úr bókinni...
Lesa meira
Hér er að finna uppskriftir að gómsætum grillréttum sem auðvelt er að matreiða á gasgrilli eða kolagrilli.
Bókin opnar þér nýjan heim og veitir þér áræði til að bjóða til grillveislu með öryggið uppmálað. Þínar grillveislur verða framvegis með stæl!
Smelltu hér til að lesa meira og skoða sýnishorn úr bókinni...
Lesa meiraByrjaðu daginn með kjarngóðum ávaxta- og grænmetissafa.
Hér er að finna fjölmargar uppskriftir að girnilegu söfum og þeytingum auk gagnlegra ráða varðandi áhöld og aðferðir. Ómissandi hugmyndabanki í hvert eldhús.
Með hverri uppskrift eru upplýsingar um næringargildi og gagnsemi drykkjanna sem veita okkur vellíðan og endalausa hollustu.
Nú er komin út bókin 25 gönguleiðir á Hvalfjarðarsvæðinu eftir Reyni Ingibjartsson. Bókin er í sama flokki og 25 gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu sem kom út í fyrra og nýtur mikilla vinsælda.
Hér er að finna gönguleiðir á hinu svokallaða Hvalfjarðarsvæði, sem teygir sig kringum Esjuna, Akrafjall og Skarðsheiði, auk undirlendisins við Hvalfjörð. Stórátak í skógrækt og uppgræðslu hefur gert Hvalfjarðarsvæðið að mikilli útivistarparadís.
Smelltu hér til að lesa meira og kaupa bókina ...
Myndir úr útgáfugleði bókarinnar 10. maí á Hótel Glym, Hvalfirði

Bók Hildar Hákonardóttur, Ætigarðurinn, er loksins komin aftur úr prentun, grasnytjungum og náttúruunnendum til mikillar gleði.
Hildur, sem einnig er höfundur bókarinnar Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnar, er þekkt fyrir líflega og grípandi frásagnargleði.
Bækur sem hitta í mark hjá öllum þeim sem vilja rækta garðinn sinn og hlú um leið að líkama og sál.
Smelltu á myndirnar til að lesa meira um bækurnar...
Lesa meira
Bók Hildar Hákonardóttur, Ætigarðurinn, er loksins komin aftur úr prentun, grasnytjungum og náttúruunnendum til mikillar gleði.
Miðvikudaginn 11. maí kl. 17:15, í Skipholti 50c , verður Hildur með kynningu á bókinni í Sölku. Þar mun hún gefa góð og hagnýt ráð til að létta áhugasömum garðyrkjustörfin í vor og sumar. Meðal annars hvernig hægt er að fá tunglið í lið með sér til að plöntur vaxi betur og hraðar.
Ókeypis aðgangur og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir!
Smelltu hér til að lesa meira um bókina...
Lesa meiraMilljónir manna hafa notfært sér hugmyndafræði bókarinnar FISKUR! til að auka vinnugleði og bæta starfsárangur.
Nú er sjónum beint að einkalífinu FISKURINN! tekinn inn á heimilið.

Þeir sem tileinka sér lífsspeki FISKS!
...leika sér
...gera öðrum daginn eftirminnilegan
...eru til staðar
...velja sér viðhorf
Smelltu á myndirnar til að lesa meira um bækurnar
Bókaútgáfan Salka hefur frá upphafi látið sig varða um ýmiss konar góðgerðamál, sérstaklega þegar þau lúta að konum.
Á dögunum fengu Kvennaathvarfið og Mæðrastyrksnefnd bókagjöf frá Sölku. Kvennaathvarfið fékk fjölda eintaka af dagatalsbókinni Konur eiga orðið 2011 og Mæðrastyrksnefnd færðum við fjölmörg eintök af Út í birtuna.
Smelltu hér til að lesa meira...
Lesa meira
Máttur Viljans eftir Guðna Gunnarsson hefur fengið mjög góðar móttökur og setið í efstu sætum á metsölulistum Eymundsson síðan bókin kom út í lok janúar. Hún hefur um nokkurt skeið verið uppseld en nú er 2. prentun komin í verslanir.
"Þessi bók á eftir að hrista ærlega upp í þeim sem hafa kjark til að lesa hana
og meðtaka boðskap hennar."
- Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur
Smelltu hér til að kaupa bókina ...
Candida sveppasýking kom út nú í byrjun árs og hefur fengið mjög góðar viðtökur. Bókin hefur nú verið í efstu sætum á metsölulista Eymundsson níu vikur í röð.
Hallgrímur Þ. Magnússon, læknir, og Guðrún G. Bergmann, höfundur sjálfræktarbóka, leggja hér saman krafta sína og fjalla á einfaldan og auðskiljanlegan hátt um það hvað candida sveppasýking er, helstu einkenni, hversu skaðleg hún geti verið líkamanum og hvernig hægt sé að öðlast góða heilsu á ný.
Smelltu hér til að skoða sýnishorn úr bókinni
Þessi bók kom upphaflega út árið 1995 og er eftir Hallgrím Þ. Magnússon lækni og Guðrúnu G. Bergmann höfund sjálfsræktarbóka. Hún var svo endurprentuð 1997 og 1999. Vegna mikillar eftirspurnar er hún nú gefin út aftur en í þetta skipti betrumbætt og endurskrifuð í ljósi ýmissa nýrra rannsókna um þennan algenga en leynda kvilla.
Sjúkdómseinkenni eru útskýrð, fjallað er um fæðusamsetningu, á hvaða tíma sólarhrings helstu líffæri okkar starfa og síðast en ekki síst er sagt frá áhrifaríkum lausnum til að vinna bug á sýkingunni.
Nýverið fjallaði Ingveldur Geirsdóttir um nýjar barnabækur í Fréttablaðinu og fengu Sölkubækur verðskuldaða athygli.
Barnabókina Loðmar fékk fullt hús stiga, fimm stjörnur. Ingveldur hafði þessi orð um bókina:
„Loðmar er flokkuð sem barnabók en er ekkert fyrir börn frekar en fullorðna, hún er listaverk fyrir alla".
Smelltu hér til að kaupa Loðmar
Hrefna Rósa Sætran, nýbakaðaður gull- og silfurverðlaunahafi á heimsmeistaramóti matreiðslumeistara, er enn að bæta við sig fjöðrum, nú með tilnefningu frá Gourmand-verðlaununum sem besti kvenkyns kokkurinn, fyrir bók sína Fiskmarkaðurinn.
Sex íslenskar bækur voru tilnefndar til Gourmand-verðlaunanna en þar af voru fjórar þeirra frá Bókaútgáfunni SÖLKU. Gourmand-verðlaunin eru meðal þeirra virtustu í heiminum á sviði matar- og vínbóka. Alls voru sendar inn bækur frá 154 löndum í keppninna og því um harða samkeppni að ræða.
Salka fagnar því að síðasta bókin sem við gefum út á 10. afmælisárinu er komin í verslanir.
Um er að ræða einstaka ljósmyndabók, Andlit eftir Jónatan Grétarsson. Bókin hefur að geyma 192 ljósmyndir af íslenskum listamönnum. Guðmundur Andri Thorsson skrifar texta við myndir og Guðmundur Oddur Magnússon ritar inngang að þessari glæsilegu bók.
Í tilefni af útgáfu bókarinnar er boðið til sýningar og útgáfuteitis í sýningarsal Iðu, Lækjargötu 2. hæð, í dag klukkan 16:00. Bókin er jafnframt á sérstöku tilboðsverði á heimsíðu Sölku sem ekki má láta fram hjá sér fara.
Framhald af hinni vinsælu bók Vesturfararnir
Hér birtist í fyrsta sinn á íslensku annar hluti hins heimsfræga verks Vilhelms Moberg sem gert var ódauðlegt í eftirminnilegum sjónvarpsþáttum.Landnemarnir er hjartnæm saga af óbilandi baráttuvilja fólks sem á ekkert nema stoltið og hefur engu að tapa nema lífinu.
Mikið gengur á í lífi Óla haustið 2008, þegar hann byrjar í 10. bekk. Ekki nóg með að íslenskt þjóðfélag fari á hliðina með tilheyrandi látum, heldur fara foreldrar hans að fjölga mannkyninu á gamals aldri! Svo kemur ný stelpa í bekkinn og allt breytist. Óli þarf að glíma við aðstæður, tilfinningar og spurningar sem hann hefur fram að því sloppið við. Þórður Helgason er dósent í íslensku við Háskóla Íslands. Hann er velþekkt ljóðskáld og hefur einnig sent frá sér nokkrar vinsælar barna- og unglingabækur. Í þessari bók gefur hann fyndna og spennandi mynd af Nýja Íslandi
Lesa meira
Bókin Út í birtuna eftir guðfræðiprófessorinn Arnfríði Guðmundsdóttur og myndlistakonuna Æju, Þóreyju Magnúsdóttur, er nýkomin út. Bókin boðar von og inniheldur hugvekjur guðfræðiprófessorsins sem myndlistakonan hefur túlkað með listsköpun.
Í samtali við Pressuna útskýrir Arnfríður að bókin sé hugvekja í máli og myndum þar sem Biblíutextar eru túlkaðir í stuttum hugvekjum og myndum.
Smelltu hér til að lesa viðtalið á pressan.is
Fyrir fjórum árum fæddist hugmynd.
Út er komin hjá SÖLKU barnabók sem sem ber hið sérstaka nafn, Loðmar.
Hér er lögð rækt við íslenska tungu á nýstárlegan og spennandi hátt. Höfundarnir, Embla Vigfúsdóttir og Auður Ösp Guðmundsdóttir, sáu bæði um texta og myndir, en þær hafa nýlokið námi í Listaháskóla Íslands. Bókin er innbundin, 34 bls. að lengd og unnin í Prentmeti. Katla Rós Völudóttir og Ragnar Már Nikulásson sáu um grafíska uppsetningu og umbrot.
Lesa meira
Fyndin og fjörleg bók um óborganleg ævintýri jólasveinanna þrettán. Hefur lengi verið uppseld en kemur hér í nýrri útgáfu handa nýrri kynslóð barna.
Þegar jólin nálgast fara skrýtnir nánungar á kreik, þeir klöngrast ofan úr fjöllum og stefna í átt til byggða með sitt síða skegg og úttroðna poka á baki. Hvaða karlar eru með þetta og hvað skyldi vera í pokunum þeirra?
Lesa meira
Guðrún Hannesdóttir er kunn fyrir barnabækur sínar og myndskreytingar. Árið 2007 hlaut hún Ljóðstaf Jóns úr Vör og sama ár sendi hún frá sér Fléttur, sína fyrstu ljóðabók sem hlaut glæsilega dóma.
Þessi ljóðabók gefur henni ekki eftir
Í næstu viku kemur út skáldsaga eftir sænska rithöfundinn Mariu Ernestam. Bókin fjallar um Evu sem var ung að árum þegar hún ákvað að þrauka bernskuna hjá móður sem gerði líf hennar að helvíti. Fjórum áratugum síðar rifna upp gömul sár og hið sama gildir um rósirnar hennar. Skáldsagan þykir mögnuð og er kvikmynd eftir henni er væntanleg á næsta ári.
Bókinni hefur verið dreift á helstu sölustaði og er á aðeins 1990 kr!
Höfundurinn, Michael Pollan, var á Íslandi um helgina til að veita viðtöku hinum virtu friðarverðlaunum úr LennonOno-friðarsjóðnum sem Yoko Ono afhenti við hátiðlega athöfn.
Nú er væntanleg frá Sölku ný bók eftir metsöluhöfundinn Elizabeth Gilbert, sjálfstætt framhald bókarinnar Borða, biðja, elska. Ekkert lát er á vinsældum þeirrar bókar, enda er nú beðið með eftirvæntingu kvikmyndarinnar þar sem Julia Roberts leikur aðalhlutverkið.
Bókin hefur setið efst á metsölulista New York Times í 187 vikur og hefur verið í fyrsta sæti metsölulista bókabúða á Íslandi undanfarnar vikur.
Lesa meira
Fiskmarkaðarins hefur verið beðið með eftirvæntingu, enda er það ekki á hverjum degi sem ljóstrað er upp leyndarmálum eins vinsælasta veitingastaðar borgarinnar. Kokkinn Hrefnu Rósu Sætran þarf vart að kynna, en hún er einn eigandi Fiskmarkaðarins sem staðsettur er í Aðalstræti 12 í Reykjavík.
Hún hefur vakið athygli fyrir ungan aldur, langa afrekaskrá, og þroskaðan og sérhæfðan smekk. Hrefna keppir fyrir hönd Íslands í kokkalandsliðinu og hefur verið með eigin matreiðsluþætti á Skjá einum.
Lesa meira
Íslensk ljóðabók gefin út í Ástralíu!
Um er að ræða bókina Án spora, eftir Stefaníu Guðbjörgu Gísladóttur, sem kom út hjá SÖLKU árið 2007. Stefanía er búsett í Ástralíu.
Fram kemur á vef Norðfirðingafélagsins, að enska þýðingin heiti Without Trace. Stefanía Guðbjörg er ættuð frá bænum Seldal í Norðfirði.
Lesa meira
Tilvalin gjöf til vina erlendis!
Feðginin Helga Sigríður Aradóttir og Ari Trausti Guðmundsson þekkja reykvíska veitingastaði mjög vel og miðla til ferðamannsins af reynslu sinni. 32 veitingastaðir í borginni eru kynntir og allir hafa þeir það sameiginlegt að bjóða upp á góðan mat.
Lesa meira
Auður Ava Ólafsdóttir hefur verið tilnefnd til bókmenntaverðlaunanna Prix Roman du Fnac 2010 í Frakklandi fyrir skáldsögu sína Afleggjarinn.
Lesa meira
Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar, hélt tónleika í garðinum heima hjá sér á Bjarkargötu 2, 101 Reykjavík, á Menningarnótt. Þar söng hann lög af nýútkomnum hljómdiski sínum sem heitir Tímaglasið og innheldur ellefu frumsamin lög og texta Hrólfs. SALKA gefur út diskinn og dreifir honum.
Lesa meira
Salka endurútgefur Borða, biðja, elska með nýrri kápu. Í tilefni þess að bíómyndin Eat, pray, love með Juliu Roberts í aðalhlutverki verður frumsýnd í haust er bókin gefin út með nýrri bíómyndakápu.
Tvö upplög af bókinni hafa selst upp nú þegar og þykir Sölku það tilhlökkunarefni að sjá nýju myndina.
Þann 4. ágúst kynntu Sameinuðu þjóðirnar formlega að bókin Rikka og töfrahringurinn á Íslandi eftir Hendrikku Waage, hafi verið valin af þeirra hálfu til að auka skilning á menntunar- og umhverfismálum á alþjóðavísu. Hendrikka var viðstödd atburðinn í New York til að kynna bók sína og fylgja henni úr hlaði, en Rikka verður fáanleg í verslun Sameinuðu þjóðanna. Á Íslandi hefur Rikka heldur betur slegið í gegn, en hún hefur verið á metsölulista bókabúðanna í sumar. Hluti af tekjum bóksölunnar rennur til góðgerðasjóðs Alþingis barna sem Hendrikka tók þátt í að stofna og hefur sjóðurinn það að markmiði að skapa öllum börnum jöfn tækifæri.
Lesa meira

Anne Holt er einn frægasti sakamálahöfundur Norðmanna. Bækur hennar hafa verið gefnar út í 25 löndum og hafa selst í meira en fjórum milljónum eintaka. Skoski glæpasagnahöfundurinn Val McDermid hefur lýst bókum hennar á þann veg að hún nái að fanga myrkur Norðurlandanna með raunverulegum hætti.


Nýverið var Hendrikku Waage, höfundi Rikku og töfrahringsins, tilkynnt að Sameinuðu þjóðirnar hefðu valið bókina til að vekja athygli á menntunar- og umhverfismálum.
Sameinuðu þjóðirnar munu halda útgáfuboð í höfuðstöðvum sínum í New York þar sem þetta verður formlega tilkynnt. Þetta er gríðarstór fjölmiðlaatburður þar sem öllum aðildarfulltrúum SÞ verður boðið ásamt blaðafulltrúum og samstarfsfélögum SÞ.
Það var líf og fjör og fjölbreytt dagskrá í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, þann 12. júní.
Rithöfundurinn Ingibjörg Hjartardóttir, las upp úr skáldsögu sinni, Hlustarinn, sem kom nýlega út hjá Sölku og hefur hlotið mikið lof og frábæra dóma.
Salka á einnig bókina í efsta sæti barnabókalistans, Rikka og töfrahringurinn eftir Hendrikku Waage. Fjallabók barnanna eftir Sigrúnu Huld hefur verið á lista yfir mest seldu barnabækurnar frá því hún kom út og hin gullfallega ljósmyndabók Iceland – So quiet eftir Kristján Inga situr enn sem fastast á lista bóka fyrir erlenda ferðamenn.
Bækurnar fjalla allar, á einn eða annan hátt, um að njóta náttúru og/eða útivistar og samveru. Þetta gleður okkur sérstaklega, þar sem Salka hefur alla tíð lagt áherslu á náttúru- og mannvæn gildi.
Iðunn Steinsdóttir og Kristín Arngrímsdóttir voru meðal þeirra sem sem hlutu Vorvinda-viðurkenningar frá IBBY samtökunum. Verðlaunin voru veitt í Gunnarshúsi v/Dyngjuveg sunnudaginn 16. maí.
Kristín fékk viðurkenningu fyrir hina gullfallegu bók sína Arngrímur apaskott og fiðlan og Iðunn fyrir framlag sitt til barnamenningar, en Iðunn hefur skrifað fjölmargar barna og unglingabækur og unnið ötult starf til að efla og kynna barnamenningu.
Lesa meira
Bókin Rikka og töfrahringurinn er komin út!
Þetta er fyrsta bókin í bókaröð af svipuðum toga, sem ætlað er að kanna spennandi og framandi lönd sem hvert og eitt býr yfir sínum sérkennum og menningu. Rikka á töfrahring og með hans hjálp getur hún ferðast í tíma og rúmi um víðáttur Íslands ásamt vinkonu sinni.
Nýverið kom út hjá Sölku heillandi bók sem heitir Allra besta gjöfin.
Bókin fjallar um ungan mann sem átti allt en vildi meira. Í stað þess að fá fjárupphæð úr erfðaskrá frænda síns fær hann ýmis verkefni að leysa. Eftir margvíslegar eldraunir hlýtur ungi maðurinn Allra bestu gjöfina en á vegferð sinni lærir hann að meta gömlu góðu mannlegu gildin og áttar sig á að fleira skiptir máli en veraldleg gæði.
Iceland so quiet er nýjasta bók SÖLKU. Þetta er handhæg og falleg landslagsbók í kiljubroti eftir Kristján Inga Einarsson ljósmyndara.
Á síðunum birtast magnaðir staðir í óbyggðum þar sem kyrrð, fegurð og friður ríkir svo við heyrum okkar innstu hugsanir og lokum bókinni endurnærð.
The Ultimate Gift, metsölubók um allan heim, eftir Jim Stovall er nú komin út á Íslensku; ALLRA BESTA GJÖFIN. Bókin fjallar um hvernig uppgötva má tilgang lífsins með því að endurmeta gildi sín og samskipti við aðra.
Endrum og sinnum færðu í hendurnar svo sérstaka bók að þér finnst þú verða að deila henni með öllum sem þú þekkir. Þetta er slík bók.
Búðu þig undir að líf þitt taki breytingum til frambúðar eftir lesturinn ...
Bókin Hlustarinn eftir Ingibjörgu Hjartardóttur er komin úr prentun og farin í allar helstu bókabúðir.
Hlustarinn er þriðja skáldsaga Ingibjargar Hartardóttur, en áður hafa komið út Upp til sigurhæða og Þriðja bónin. Auk þess hefur hún skrifað fjölda leikrita, bæði sviðsverk og úrvarpsleikrit, ævisögu, ljóð og smásögur.
Auður Ava Ólafsdóttir hefur sent frá sér sína fyrstu ljóðabók sem nefnist Sálmurinn um glimmer.
Um er að ræða 57 blaðsíðna söguljóð þar sem tekist er á við ástríður, þjáningu, dauða, endurfæðingu, tungumálið eða skáldskapinn og fegurðina sem „bjargar heiminum á endanum“
Síðasta skáldsaga Auðar, Afleggjarinn sem fékk Menningarverðlaun DV og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandalandaráðs, hlaut mikið lof í Danmörku og kemur innan skamms út í Frakklandi og Þýskalandi.
Nýverið veitti Gourmand akademían verðlaun fyrir
bestu uppskriftabækururnar sem valdar voru úr gríðarlegum fjölda og urðu tvær bækur frá SÖLKU fyrir valinu. Önnur verðlaun í flokki fiskiuppskriftabóka fékk Spriklandi lax í boði veiðikokka og í flokki franskra matreiðslubóka fékk bókin Sælkeragöngur um París – og 60 uppskriftir að hamingjunni á Parísarvísu þriðju verðlaun.
Heimsfrægir matreiðslumenn tóku þátt í keppninni, og meðal verðlaunahafa voru Jamie Oliver, Alain Ducasse og Michel Troisgros.
Fyrsta bók ársins er komin út hjá Sölku. Velkominn Þorri eftir Ragnhildi Gísladóttur og Steinunni Þorvaldsdóttur, og ekki nóg með það, Ragga hefur samið sérstök þorralög sem strax hafa náð athygli tónlistarunnenda.
Þorrinn er tími til að gleðjast – þegar veturinn er harðastur er áskorunin ótvíræð. Okkur hleypur kapp í kinn og þá er gaman. Bókin Velkominn Þorri! hvetur okkur til að taka vel á móti þessum árlega gesti.
Ragnhildur og Steinunn benda á ýmsar skemmtilegar og nýstárlegar leiðir til að halda þorra með viðeigandi föndri og þorraskrauti sem flikkar heldur betur upp á híbýlin og þorraborðhaldið.
Lesa meiraEins og margir eflaust tóku eftir stóðu bókaforlagið SALKA og verslunir Eymundsson fyrir vettlingasöfnun fyrir Mæðrastyrksnefndir í haust. Hugmyndin með verkefninu var fyrst og fremst að benda á stöðuga aukningu fólks sem leitar aðstoðar hjálparstofnanna hérlendis og benda á það að öll getum við lagt brýnum málstað lið með einhverjum hætti.
Lesa meira
Jemenska stúlkan Nujood Ali var aðeins 10 ára þegar hún sótti um og fékk skilnað frá eiginmanni sínum sem var 20 árum eldri en hún. Nú hálfu öðru ári síðar er Ali að reyna að aðstoða Sally Sabahi, sem er aðeins 12 ára, að skilja við eiginmann sinn sem er 21 árs.
Frá þessu er greint í frétt á mbl 14. des.
Þeir tínast úr fjöllunum þessa dagana - einn og einn. Jólasveinatíminn er skemmtilegur og spennandi og þessa dagana vakna kát börn um allt land og þurfa ekkert að óttast kartöflur. Þau finna hina sívinsælu Bínu, sem þau þekkja flest úr leikskólanum og skólanum. Salka varð við ósk sveinka og sendi frá sér Bínu-bækurnar í handhægu jóla-broti, sem smellpassar í skó.