forlag með sál
Fréttir
RikkaISLkapanet

Rikka og töfrahringurinn eftir Hendrikku Waage

Rikka á töfrahring og með hans hjálp getur hún ferðast í tíma og rúmi um víðáttur Íslands ásamt vinkonu sinni. Bókin bregður upp myndum af áhugaverðum stöðum og skemmtilegum ævintýrum sem börn geta lent í á töfralandinu Íslandi og höfðar til barna á öllum aldri. Tilgangurinn er að skapa löngun hjá smáfólkinu til að ferðast um landið og njóta dásemda náttúrunnar. Þetta er einnig dálítil fræðslusaga sem vekur okkur til meðvitundar um hvers vegna við eigum að gæta jarðarinnar fyrir komandi kynslóðir.

Þetta er fyrsta bókin í bókaröð af svipuðum toga, sem ætlað er að kanna spennandi og framandi lönd sem hvert og eitt býr yfir sínum sérkennum og menningu.

Skoða/kaupa bókina

 

Mikið er þetta falleg saga. Og svo er hún líka kennslustund í landafræði. Það var unaðsleg reynsla að fá að kynnast Íslandi með augum yngstu kynslóðarinnar. Boðskapur sögunnar er greinilega sá að við eigum að láta gott af okkur leiða, vera væn og vingjarnleg – og biðja þess að heimurinn verði réttlátari og friðvænlegri. Þakka þér, Hendrikka, fyrir að leyfa okkur að kynnast barninu í sjálfri þér.

Betty Williams – friðarverðlaunahafi Nóbels

 

Sagan er afspyrnu skemmtileg og full af krafti og orku – skyldulesning fyrir börn á aldrinum 5 til 11 ára.

 Magnús Scheving – Sportacus – Latibær

 

Hendrikka Waage er þekktur alþjóðlegur skartgripahönnuður. Hún er frumkvöðull og fagurkeri og hefur ómældan áhuga á listum. Hendrikka hefur starfað og búið í mörgum löndum, þar á meðal á Indlandi, Japan, Rússlandi, Bandaríkjunum og Bretlandi. Hún er forseti Alþingis barna og einn af stofnendum þess. Markmið þessra góðgerðasamtaka er að finna sjálfbærar skipulagðar lausnir á sviði mannréttinda. Einnig hvetja þau stjórnvöld og einkaaðila til að stuðla að umhverfisvernd og því að öll börn hafi jafnan rétt til að þroska hæfileika sína, höfuðstöðvarnar eru í Vín í Austurríki. Hendrikka gefur höfundarlaun sín til góðgerðasjóðs Alþingis barna, en tilgangur sjóðsins er að skapa heim þar sem allir hafa jöfn tækifæri – án mismununar vegna fjárhagsstöðu, kynþáttar eða trúarskoðana. www.kidsparliament.org.

Ágóði vegna sölu á vegum Icelandair rennur til Vildarbarna.

www.rikkaogtofrahringurinn.com

 

                                  RikkaISLkapanet                   RikkaENSKkapanet


Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica