Fréttir
Vorvinda-viðurkenningar frá IBBY samtökunum
Iðunn Steinsdóttir og Kristín Arngrímsdóttir voru meðal þeirra sem sem hlutu Vorvinda-viðurkenningar frá IBBY samtökunum. Verðlaunin voru veitt í Gunnarshúsi v/Dyngjuveg sunnudaginn 16. maí.
Kristín fékk viðurkenningu fyrir hina gullfallegu bók sína Arngrímur apaskott og fiðlan og Iðunn fyrir framlag sitt til barnamenningar, en Iðunn hefur skrifað fjölmargar barna og unglingabækur og unnið ötult starf til að efla og kynna barnamenningu.
