forlag með sál
Fréttir

Metsölubækur vikunnar  26. maí -1. júní


25 gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu eftir Reyni Ingibjartsson hefur slegið í gegn og er nú í efsta sæti Gongul_islheildarlista (mest seldar bækur í öllum flokkum)  Pennans/Eymundsson. Eftir aðeins þrjá daga náði bókin þriðja sæti listans, hún seldist upp og var endurprentuð fáeinum dögum síðar.


Salka á einnig bókina í efsta sæti barnabókalistans, Rikka og töfrahringurinn eftir Hendrikku Waage. Fjallabók barnanna eftir Sigrúnu Huld hefur verið á lista yfir mest seldu barnabækurnar frá því hún kom út og hin gullfallega ljósmyndabók Iceland – So quiet eftir Kristján Inga situr enn sem fastast á lista bóka fyrir erlenda ferðamenn.

Allar bækurnar fjalla á einn eða annan hátt um að njóta náttúru og/eða útivistar og samveru. Þetta gleður okkur sérstaklega, þar sem Salka hefur alla tíð lagt áherslu á náttúru- og mannvæn gildi.






Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica