Fréttir
Ingibjörg Hjartardóttir las úr Hlustaranum
Það var líf og fjör og fjölbreytt dagskrá í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, þann 12. júní.
Rithöfundurinn Ingibjörg Hjartardóttir las upp úr skáldsögu sinni, Hlustarinn, sem kom nýlega út hjá Sölku og hefur hlotið mikið lof og frábæra dóma.
Starfsfólk Ókeibóka kynnti landakort af Íslandi sem Hugleikur Dagsson teiknaði og nýja boli með teikningum úr hinni vinsælu bók Popular Hits.
Að bókalestri loknum var boðið upp á ljúfa tóna sem tónlistarmaðurinn Jóhann Kristinsson sá um að flytja en hann gaf nýlega út plötuna Tropical Sunday.
