Fréttir
Sameinuðu þjóðirnar velja Rikku og töfrahringinn
Nýverið var Hendrikku Waage, höfundi Rikku og töfrahringsins, tilkynnt að Sameinuðu þjóðirnar hefðu valið bókina til að vekja athygli á menntunar- og umhverfismálum.
Sameinuðu þjóðirnar munu halda útgáfuboð í höfuðstöðvum sínum í New York þar sem þetta verður formlega tilkynnt. Þetta er gríðarstór fjölmiðlaatburður þar sem öllum aðildarfulltrúum SÞ verður boðið ásamt blaðafulltrúum og samstarfsfélögum SÞ.
Viðurkenningin er einnig góð almenn landkynning og fylgir vel eftir landkynningarátakinu Inspired by Iceland.
Þess má geta að hluti af andvirði bókarinnar rennur í styrktarsjóð Alþingis Barnanna sem styrkir jafnrétti barna til náms.

