forlag með sál
Fréttir
Thad_sem_mer_ber

„Það sem mér ber“ eftir Anne Holt er komin út

Anne Holt er einn frægasti sakamálahöfundur Norðmanna. Bækur hennar hafa verið gefnar út í 25 löndum og hafa selst í meira en fjórum milljónum eintaka. Skoski glæpasagnahöfundurinn Val McDermid hefur lýst bókum hennar á þann veg að hún nái að fanga myrkur Norðurlandanna með raunverulegum hætti.

Norski rithöfundurinn Anne Holt er fædd árið 1958. Hún er lögfræðingur að mennt og vann fyrir norska ríkissjónvarpið, NRK (The Norwegian Broadcasting Corporation) á árunum 1984–88. Holt vann á lögreglustöðinni í Osló í tvö ár í starfsnámi sínu sem lögfræðingur og eftir það fór hún aftur á NRK þar sem hún vann sem fréttakona og sjónvarpskona í þættinum Dagsrevyen. Holt opnaði sína eigin lögfræðistofu árið 1994 og var m.a. dómsmálaráðherra í afleysingum. Hún býr í Osló ásamt sambýliskonu og dóttur.

Anne Holt gaf út sína fyrstu bók árið 1993. Sú bók var glæpasaga um lesbíska lögreglustjórann Hanne Wilhelmsen. Lövens gap (1997) og Uten ekko (2000) eru einnig með Wilhelmsen í fararbroddi, en meðhöfundur þeirra bóka er Berit Reiss-Andersen. Alls urðu bækurnar um Wilhelmsen átta talsins, en frá árinu 2001 hóf Holt útgáfu nýs bókaflokks sem kallast Vik/Stubø-bókaflokkurinn. Það sem mér ber er fyrsta bókin í þeim bókaflokki og er Salka stolt að kynna fyrstu bókina til sögunnar á Íslandi.


Af bókarkápu: Emilie, níu ára, hverfur á leið heim úr skólanum. Eftir liggur skólataskan hennar og lítill fíflavöndur. Sex dögum síðar er litla drengnum Kim rænt úr rúminu sínu um miðja nótt. Fljótlega er líki hans skilað og á því er miði þar sem stendur: „ÞAR FÉKKSTU MAKLEG MÁLAGJÖLD.” Inger Johanne Vik vinnur við rannsóknir. Hún er jafn miður sín yfir barnsránunum og aðrir í nágrenninu en þegar Yngvar Stubø, yfirmaður í rannsóknarlögreglunni í Osló, biður hana um aðstoð við að upplýsa málið neitar hún í fyrstu þótt hún hafi starfað í FBI og sé bæði lögfræðingur og sálfræðingur að mennt. En þegar enn eitt barnið hverfur úr strætisvagni nr. 20 í Osló, á háannatíma og án þess að nokkur hafi séð neitt óvanalegt, taka málin nýja stefnu…

Skoða/kaupa bókina


Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica