Hendrikka Waage kynnir Rikku og töfrahringinn í New York
Þann 4. ágúst kynntu Sameinuðu þjóðirnar formlega að bókin Rikka og töfrahringurinn á Íslandi eftir Hendrikku Waage, hafi verið valin af þeirra hálfu til að auka skilning á menntunar- og umhverfismálum á alþjóðavísu.
Hendrikka var viðstödd atburðinn í New York til að kynna bók sína og fylgja henni úr hlaði, en Rikka verður fáanleg í verslun Sameinuðu þjóðanna. Á Íslandi hefur Rikka heldur betur slegið í gegn, en hún hefur verið á metsölulista bókabúðanna í sumar. Hluti af tekjum bóksölunnar rennur til góðgerðasjóðs Alþingis barna sem Hendrikka tók þátt í að stofna og hefur sjóðurinn það að markmiði að skapa öllum börnum jöfn tækifæri. Rikka og töfrahringurinn á Íslandi er ætluð börnum á aldrinum 5-11 ára og er fáanleg bæði á ensku og íslensku. Hljóðbók á báðum tungumálum er væntanleg á næstu dögum.
Bókin er sú fyrsta í röð bóka sem Hendrikka hyggst skrifa til að kynna börnum einkenni ýmissa landa, en næsta bók mun fjalla um Indland. Í fyrstu bókinni eru ýmsir helstu staðir á Íslandi kynntir um leið og Rikka heimsækir þá og lendir í ótal ævintýrum ásamt vinkonu sinni.
Sjá nánar um Rikku á: http://rikkaandhermagicring.com/ og http://www.rikkaogtofrahringurinn.com/
