"Borða, biðja, elska" endurútgefin með nýrri bíómyndakápu
Þriðja prentun komin
Salka endurútgefur Borða, biðja, elska með nýrri kápu. Í tilefni þess að bíómyndin Eat, Pray, Love með Juliu Roberts í aðalhlutverki verður frumsýnd í haust er bókin gefin út með nýrri bíómyndakápu.
Tvö upplög af bókinni hafa selst upp nú þegar og þykir Sölku það tilhlökkunarefni að sjá nýju myndina. Borða, biðja, elska er saga um konu sem skilur við manninn sinn og heldur af stað út í heim til að finna sjálfa sig. Bókin hefur vakið mikla athygli og er enn í fyrsta sæti á metsölulista New York Times, en hún hefur verið á þeim lista í 182 vikur. Í dag er hún í fjórða sæti á metsölulista Eymundsson yfir mest seldu bækur á Íslandi.
Hér má sjá sýnishorn úr myndinni: http://www.youtube.com/watch?v=mjay5vgIwt4
