Afleggjarinn hefur verið tilnefnd til Prix Roman du FNAC í Frakklandi.
Auður Ava Ólafsdóttir hefur verið tilnefnd til bókmenntaverðlaunanna Prix Roman du Fnac 2010 í Frakklandi fyrir skáldsögu sína Afleggjarinn. Afleggjarinn hlaut Menningarverðlaun DV í bókmenntum og var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2009. Tilnefningarnar til Prix Roman du Fnac eru þær fyrstu á komandi bókmenntavertíð í Frakklandi og verða verðlaunin veitt í lok ágúst. Útgefandi Afleggjarans í Frakklandi er bókaforlagið Zulma og heitir skáldsagan Rosa Candida í franskri þýðingu Catherine Eyjólfsson.
Bókin kemur í verslanir í Frakklandi um miðjan ágúst en fór í dreifingu til gagnrýnenda og “bókalesara” bókabúða s.l. vor. Það eru 900 manns úr frönskum bókaiðnaði sem standa að vali á bókum sem tilnefnd eru árlega til Prix Roman du Fnac. Útgáfufyrirtækið Zulma hefur þegar fengið afar jákvæð viðbrögð við Afleggjara Auðar og hefur ákveðið að láta prenta annað upplag. Þá hefur franska forlagið einnig keypt útgáfuréttinn af skáldsögu Auðar Ava; Rigning í nóvember.
Hér má lesa frétt um Auði á mbl.is : http://mbl.is/mm/folk/frettir/2010/08/18/tilnefnd_til_prix_roman_du_fnac/
