forlag með sál
Fréttir
Fiskmarkadurinn-Salka-vefutgafa

"Fiskmarkaðurinn" eftir Hrefnu Rósu Sætran er loksins komin út!

Bókin er loksins komin út!

Fiskmarkaðarins hefur verið beðið með eftirvæntingu, enda er það ekki á hverjum degi sem ljóstrað er upp leyndarmálum eins vinsælasta veitingastaðar borgarinnar.

Kokkinn Hrefnu Rósu Sætran þarf vart að kynna, en hún er einn eigandi Fiskmarkaðarins sem staðsettur er í Aðalstræti 12 í Reykjavík. Hún hefur vakið athygli fyrir ungan aldur, langa afrekaskrá, og þroskaðan og sérhæfðan smekk. Hrefna keppir fyrir hönd Íslands í kokkalandsliðinu og hefur verið með eigin matreiðsluþætti á Skjá einum.

Í bókinni er að finna uppáhaldsrétti Hrefnu sem hún hefur framreitt á Fiskmarkaðnum, en hún hefur gert þá einfaldari og aðgengilegri fyrir þá sem hafa gaman af því að búa til mat og vilja kalla fram hið ógleymanlega bragð sem eldamennska hennar er þekkt fyrir.

Stórglæsilegar myndir Kristjáns Maack prýða bókina og umbrot og hönnun var í höndum Arnars Geirs Ómarssonar. Fiskmarkaðurinn er í harðspjaldabroti, 123 síður og var prentuð hjá Prentmet.


Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica