forlag með sál
Fréttir

GRILLAÐ - ný og girnileg grillbók

Einfalt - gott - grinilegt

GRILLADHvað er skemmtilegra en að galdra fram grillveislu með vinum og vandamönnum? Nákvæmlega ekkert!

Meistarkokkurinn Völundur Snær, Sigurður Gíslason og Stefán Ingi Svansson töfra hér fram einfalda, góða og girnilega grillrétti. Það er bókstaflega allt grillað; fiskur, kjöt, pítsa, ávextir, grænmeti … nefndu það!

Að auki er kafli með ofurgirnilegum kryddblöndum og BBQ-sósum, svalandi drykkjum og eftirréttum sem gleðja bæði líkama og sál.

Nú eru sjónvarpsþættir á RÚV sem bera sama heiti og bókin, „Grillað“. Þar sýna þeir félagar snilldartakta og galdra fram hvern grillréttinn á eftir öðrum. Þættirnir verða á dagskrá í allt sumar á fimmtudögum kl. 19:40, strax eftir fréttir.

Það er upplagt að fylgjast vel með, fá vatn í munninn og byrja að undirbúa grillveislur helgarinnar.

Smelltu hér til að horfa á þættina á netinu.

Kaupa bókina...

Brot úr bókinni

Ég hef lengi gengið með í maganum hugmyndina að sjónvarpsþáttum og bók um grill og það var síðan á einhverjum símafundinum hjá okkur Sigurði Gíslasyni að ég náði að plata hann í þetta verkefni með mér og síðan fylgdi Stebbi í kjölfarið. Með tvo af bestu kokkum landsins gat þetta ekki orðið annað en skemmtilegt og í sameiningu ákváðum við að hafa þetta einfalt og grilla bara það sem okkur þykir best!

Það er fátt skemmtilegra en að hittast í góðra vina hópi, börn og foreldrar, vinir og vandamenn og galdra fram grillveislu. Ég vona innilega að uppáhaldsréttir okkar félaganna eigi eftir að falla ykkur í geð.
(Völundur Snær Völundarson, úr formála.)


Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica