forlag með sál
Fréttir

Sultur allt árið

Sultur_framhlNETHér áður fyrr einskorðaðist sultugerð að mestu við haustið sem er uppskera berja og rabarbara.

Nú er öldin önnur og hér leiðir Sigurveig Káradóttir, matgæðingur og eigandi Matarkistunnar, okkur um heim sultugerðar þar sem hráefnið er fjölbreytt og hægt að sulta allan ársins hring. Henni verður allt úr öllu; hvort sem um er að ræða banana, gulrætur, gojiber, eða bláberin okkar góðu.

Í bókinni er ekki eingöngu að finna hinar hefðbundnu sultur heldur ýmislegt annað sem hentar nútímalegum og heilsusamlegum matarháttum.

Uppskriftirnar eru einfaldar og upplagðar til að kóróna aðalmáltíðina, brauðmetið eða kökuna.
Einnig er sulta í fallegri krukku skemmtileg gjöf.

Smelltu hér til að kaupa bókina...



nestiskapaNETSigurveig Káradóttir er einnig einn af þremur höfundum að bókinni Hollt nesti heiman að.
Þar er að finna um það bil 70 uppskriftir sem eru hver annarri ljúffengari og hollari en að sama skapi einfaldar og nýstárlegar.


Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica