forlag með sál
Fréttir
Gudni

4. metsölulisti ársins

                            Eymundsson hefur gefið út fjórða mestölulista ársins 2012.

Á heildarlista, lista yfir mest seldar bækur samtals úr öllum flokkum, er nýútkomin bók Guðna Gunnarssonar Máttur athyglinnar. Í henni beinir Guðni sjónum sínum að því hvernig axla má ábyrgð á eigin lífi og líðan, gera jákvæðar breytingar og lifa í markmiðum sínum.

Salka á heldur betur fleiri bækur á listum vikunnar; í 2. sæti á lista barnabóka er bókin Auður og gamla tréð – jóabók fyrir börn eftir Evu Rúnu Þorgeirsdóttur og Stellu Sigurgeirsdóttur sem kom út nú fyrir jólin. Á lista yfir mest seldar handbækur, fræðibækur og ævisögur eru fjórar bækur frá Sölku; í 1. sæti er Máttur athyglinnar nýútkomin bók eftir Guðna Gunnarsson, í 4. sæti er heklbókin, sem kom út skömmu fyrir jól, Þóra  – heklbók eftir Tinnu Þórudóttur Þorvaldsdóttur, Hollráð Hugos – hlustum á börnin okkar eftir Hugo Þórisson sálfræðing hefur átt fast sæti á metsölulistum og situr hún nú í 6. sæti. Rúsínan í pylsuendanum er bókin Máttur viljans eftir Guðna Gunnarsson en hún kom út í janúar 2011 og var undanfari bókarinnar Máttur athyglinnar.


4v_metsala1

4v_metsala2


Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica