forlag með sál
Fréttir

Þetta vilja börnin sjá!

dimmalimm

Sýningin Þetta vilja börnin sjá! stendur enn í Gerðubergi. Þar má sjá myndir úr völdum barna- og unglingabókum ársins 2011.
     Sýningin hefur verið haldin árlega í Gerðubergi frá árinu 2002. Myndskreytingar þeirra bóka sem eru til sýnis keppa jafnframt um íslensku myndskreytiverðlaunin sem kennd eru við Dimmalimm Sigurvergarinn er kunngerður við opnun sýningarinnar.
     Dómnefnd valdi í myndskreytingar Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur í ár og óskum við henni til hamingju.

Sýningin Þetta vilja börnin sjá! stendur til 1. apríl í Gerðubergi (Gerðubergi 3-5) og er opin virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16 og er aðgangur ókeypis.



Myndskreytingar flestra barnabóka Sölku í ár fengu tilnefningu en tilnenfndir voru:
Agnieszka Nowak,
Baldur Jóhannsson,
Bjarni Þór Bjarnason (en hann hefur m.a. myndskreytt bækurnar um Bínu),
Björk Bjarkadóttir,
Brynhildur Jenný Bjarnadóttir,
Elvar Ingi Helgason,
Guðrún Kristín Magnúsdóttir,
Halla Þórlaug Óskarsdóttir með bókina Agnar Smári – Tilþrifin í tónlistarskólanum,
Kristín Ragna Gunnarsdóttir,
Linda Ólafsdóttir,
Margrét E. Laxness (en hún starfar hjá Sölku og hefur myndskreytt nokkrar Sölkubækur; m.a. Einstök mamma),
Óskar Jónasson,
Ragnheiður Gestsdóttir,
Rósa Grímsdóttir,
Sigrún Eldjárn,
Sigrún Guðjónsdóttir,
Stella Sigurgeirsdóttir með bókina Auður og gamla tréð – Jógabók fyrir börn,
Þórarinn Már Baldursson og
Þórir Karl Celin með bókina Fangarnir í trénu.






Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica