Norski rithöfundurinn Anne Holt er fædd árið 1958. Hún er lögfræðingur að mennt og vann fyrir norska ríkissjónvarpið, NRK (The Norwegian Broadcasting Corporation) á árunum 1984–88. Holt vann á lögreglustöðinni í Osló í tvö ár í starfsnámi sínu sem lögfræðingur og eftir það fór hún aftur á NRK þar sem hún vann sem fréttakona og sjónvarpskona í þættinum Dagsrevyen.
Lesa meira
Ari Kr. Sæmundsen rekur innflutningsfyrirtækið Gróco ehf. sem státar af titlinum fyrirmyndarfyrirtæki VR 2008. Hann er doktor í veirufræði og var einhverju sinni kallaður menntaðasti heildsali landsins í Nýju Lífi. Ari þekktur fyrir leiftrandi frásagnargleði og nýlega kom út smásagnasafn eftir hann, sem nefnist Með stein í skónum.
Lesa meira
Ari Trausti, fæddur 1948, er rithöfundur, skáld, jarðvísindamaður, útvarps- og sjónvarpsmaður. Hann hefur skrifað fjölda bóka á ýmsum málum um jarðfræði og náttúru Íslands. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir bækur sínar.
Hausið 2010 kom út bókin Út í birtuna sem samanstendur af hugvekjum í máli og myndum. Arnfríður Guðmundsdóttir, guðfræðiprófessor, leggur hér út af völdum textum úr Biblíunni sem öðlast nýja vídd með gullfallegum myndum listakonunnar Æju. Bókin gefur nútímalega mynd af uppbyggjandi skilaboðum hinnar helgu bókar og býr yfir huggun og hvatningu til lesanda um að handa ótrauður áfram, út í birtuna, til móts við nýjan dag.
Lesa meira
Astrid Lindgren fæddist 14. nóvember 1907 í Svíþjóð. Hún skrifaði margar bækur fyrir börn og af þeim sem komið hafa út á íslensku má nefna Emil í Kattholti, Lína langsokkur, Börnin í Ólátagarði og Madditt.
Lesa meira
Ágústa er alin upp á Ísafirði og hefur alltaf heillast af vettlingum. Vettlingar hafa spilað stórt hlutverk í lífi hennar og hún ákvað því að búa til uppskriftir að 50 vettlingum fyrir flest tækifæri. Salka gefur út bók hennar, Hlýjar hendur. Hún segist hvorki vera hönnuður né handavinnukennari heldur sé það ekki einkamál þeirra. Ágústa er líffræðingur og rekstarhagfræðingur og hefur lengst af starfað í alþjóðaviðskiptum.
Lesa meira
Árni er íþróttakennari í grunnskóla með B.ed gráðu frá Kennaraháskóla Íslands. Hann er ennfremur með einkaþjálfarapróf frá Íþróttakennarafélagi Íslands. Hann hefur lengi unnið við þjálfun og haldið fyrirlestra um líkamsrækt.
Lesa meira
Ásthildur lauk Meistaraprófi, með áherslu á talmeinafræði frá USA árið 1999, og hefur hefur mikla reynslu af ráðgjöf og vinnu með að styrkja boðskiptafærni ungra barna. Árið 1996 stofnaði hún ásamt öðrum talmeinafræðingum eigin talmeinastofu; Talþjálfun Reykjavíkur. Bókaútgáfan Salka gaf út bókina um Bínu bálreiðu árið 2006. Bókin byggir á langri reynslu höfundarins í vinnu sinn sem talmeinafræðingur.
Lesa meira
Barbara Berger er fædd í Bandaríkjunum en býr nú og starfar í Danmörku. Hún hefur skrifað margar sjálfsræktarbækur sem hafa verið hver annarri vinsælli víða um heim, m.a. í Bandaríkjunum og í Evrópu.
Lesa meira
Birgitta Jónsdóttir er fædd í Reykjavík arið 1967. Hún ólst upp í Þorlákshöfn og Reykjavík en stundaði einnig nám í heimavistarskólum. Birgitta gaf út sína fyrstu ljóðabók, Frostdingla, sem hún jafnframt myndskreytti, árið 1989. Sjálfsævisöguleg Dagbók kameljónsins kom út hjá Sölku árið 2005.
Lesa meiraÞeir Bjarni og Loftur eru báðir starfandi blaðamenn. Bjarni er ritstjóri Iceland Review og Loftur hefur unnið hjá tímaritinu Séð og heyrt. Þeir skrifa og ritstýra fallegri uppskriftabók sem Salka gefur út; Spriklandi lax í boði veiðikokka.
Eftir farsælan söngferil með Savanna tríói hóf Björn störf sem hönnuður við sjónvarpið. Síðustu 20 árin hefur hann hannað sýningar í söfnum og fengist við myndgerð sem því fylgir. Björn hefur gert 70 þætti fyrir sjónvarp um merkar byggingar, sögustaði og menningarminjar og fáir þekkja betur hinn sjónræna, íslenska menningararf.
Lesa meiraBragi Magnússon (1917-2001) starfaði lengi að íþrótta og félagsmálum í heimabæ sínum, Siglufirði. Hann var alla tíð góður íþróttamaður og formaður í stjórn margra félaga.
Lesa meira
Bruce McMillan hefur skrifað og myndskreytt fleiri barnabækur um íslensk efni en nokkur annar bandarískur höfundur og hann hefur hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir mörg verka sinna.
Lesa meira
Bryndís Víglundsdóttir skrifar sniðugar sögur um jólasveina. Hún fæddist í Reykjavík árið 1934. Hún hefur sérfræðimenntun og mikla starfsreynslu af kennslu og vinnu með fötluð börn, sem sérkennari og skólastjóri. Lengst af var hún skólastjóri Þroskaþjálfaskóla Íslands.
Lesa meira
Bubba Morthens þarf vart að kynna, en hann er einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar. Ástríða Bubba fyrir utan tónlistina (að sjálfsögðu) er veiði. Bubbi féll fyrir Laxá í Aðaldal og Salka gefur út bók hans sem ber hið einfalda heiti: Áin.
Lesa meira
Byron Kathleen Reid er viðskiptamanneskja og móðir sem býr í suður Kaliforníu í Bandaríkjunum. Á fertugsaldri varð hún alvarlega þunglynd. Í næstum tvö ár gat hún varla farið fram úr rúminu og var heltekin af hugsunum um sjálfsmorð.
Lesa meira
Carolyn Parkhurst hefur gefið út tvær skáldsögur og hefur önnur þeirra verið þýdd á íslensku. Það er bókin Leyndarmál Lorelei sem Salka gaf út árið 2005. Hún býr í Washington ásamt manni sínum og tveimur börnum.
Lesa meira
Clare er bandarískur rithöfundur sem hefur ritstýrt bókum á borð við Endalausa hollustu. Hún tók saman girnilegar uppskriftir að grænmetis- og ávaxtassöfum í bókina.
Darri er fæddur í Reykjavík árið 1974. Hann er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og útskrifaðist frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands árið 2000. Hann hefur starfað lengstum við auglýsingastörf og sinnt þar viðskiptaumsjón og hugmyndavinnu. Svo er hann líka pabbi.
Lesa meira
Don Miguel Ruiz er af ætt græðara og ólst upp í sveit í Mexíkó hjá móður sinni sem var græðari (curandera) og afa sem var seiðmaður (nagual). Miguel valdi að fara í læknisfræði og verða skurðlæknir.
Lesa meira
Eckhart Tolle býr í Vancouver í Bresku Kólumbíu. Bækur hans og fyrirlestrar byggja á því besta úr tímalausum kenningum leiðtoga og heimspekinga allt frá fornöld að leiðum til að öðlast vellíðan.
Lesa meira
Elfu Gísladóttur leikkonu bar oft á góma varðandi stofnun Stöðvar 2 á sínum tíma og þegar hún giftist Jóni Óttari Ragnarssyni. Elfa var mikið vestan hafs fyrstu átján ár ævi sinnar og síðastliðin átján ár en þess á milli bjó hún á Íslandi.
Lesa meira
Elizabeth Gilbert fæddist í Conneticut 1969 og stundaði nám í New York. Hún hefur starfað sem blaðamaður og rithöfundur í þó nokkur ár, en sló í gegn fyrir alvöru með bókinni Borða, biðja, elska sem er sjálfsævisöguleg lýsing á leit hennar að hamingjunni.
Lesa meira
Erla Dóris Halldórsdóttir er hjúkrunarfræðingur frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1979 og með sérmenntun í gjörgæsluhjúkrunar frá Haukeland sykehus í Björgvin í Noregi. Erla er með B.A.-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands 1996 og M.A.-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2000. Nú leggur Erla stund á doktorsnám í sagnfræði við Háskóla Íslands.
Lesa meiraErla útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1988 og lauk svo prófi úr málaradeild listaskóla í Trier, Þýskalandi árið 1991. Hún hefur starfað við myndlist síðan hún luak námi. Erla hefur myndskreytt barnabækur frá árinu 1991 og ásamt því kennt við myndlistarskóla Kópavogs. Erla hefur hlotið margar innlendar sem erlendar viðurkenningar fyrir bókaskreytingar og árið 2001 var hún ein af fjórum bæjarlistamönnum Kópavogs.
Eva Rún Þorgeirsdóttir starfar sem jógakennari og kennir bæði börnum og fullorðnum. Hún hlaut jógakennararéttindi árið 2009 hjá Guðjóni Bergmann og lærði að kenna börnum jóga undir leiðsögn Gurudass Kaur Khalsa. Eva hefur einnig lært skapandi verkefnastjórnun við Kaospilot-háskólann í Danmörku og hefur starfað við ýmiss konar viðburðastjórnun, m.a. skipulagt viðburði fyrir börn. Auk þess hefur hún unnið við dagskrárgerð í sjónvarpi og blaðamennsku.
Lesa meira
Eyrún Ýr Tryggvadóttir er fædd árið 1978, tveggja barna móðir og starfar sem forstöðumaður Bókasafnsins á Húsavík. Hún hefur sent frá sér þrjár skáldsögur. Sú fyrsta, Annað tækifæri (2004) fór aldrei í almenna dreifingu en árið 2008 kom út bókin Hvar er systir mín hjá Sölku og ári síðar sjálfstætt framhald þeirrar sögu, Fimmta barnið. Þriðja bókin, Ómynd, kom út árið 2011.
Hvar er systir mín og Fimmta barnið voru báðar tilnefndar til Blóðdropans, verðlauna Hins íslenska glæpafélags.
Skírnarnafn Fay Weldon er í raun Franklin Birkinshaw og fæddist hún í Worcestershire í Englandi í bókmenntasinnaða fjölskyldu. Fey eyddi fyrstu æviárunum á Nýja – Sjálandi þar sem faðir hennar starfaði sem læknir en þegar foreldrarnir skildu þá flutti hún með móður sinni aftur til Englands.
Lesa meira
Ljósmyndarinn Fiann Paul er án efa þekktastur á Íslandi fyrir portrettmyndir sínar af börnum sem voru á horni Lækjargötu og Austurstrætis. Í bók hans Goðsögninni sameinast ævintýralega fallegar ljósmyndir úr íslensku landslagi og þroskasaga sem vísar ekki bara inn á við heldur líka aftur í norræna goðafræði. Fiann hefur farið víða um heim og dvalið langdvölum í Himalajafjöllunum, Nepal og Grænlandi, svo eitthvað sé nefnt. Sérstöku ástfóstri hefur hann þó tekið við Ísland og býr ýmist hér eða í Los Angeles.
Lesa meiraFlorence Helga Thibault er alin upp í Frakklandi en heldur tryggð við Ísland, land móður sinnar, með því að senda ungum Íslendingum fallegar og litríkar Lúlúsögur. Hún hefur starfað við hönnun og myndskreytingar bæði hér og í Frakklandi.
Lesa meira
Fredrik Härén skrifaði Hugmyndabókina sem kom út árið 2008 hjá Sölku. Hann hefur á skömmum tíma orðið einn eftirsóttasti fyrirlesari Svíþjóðar, um efni eins og sköpunarkraftinn, hugmyndaþróun og sjálfstæða atvinnustarfsemi.
Lesa meira
Freyja Haraldsdóttir er fædd 1986. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ jólin 2005 og stundar nú nám í þroskaþjálfafræði við Háskóla Íslands. Alma Guðmundsdóttir er fædd 1984. Hún var stuðningsfulltrúi Freyju um tíma og hreifst þá af viðhorfum hennar og óbilandi kjarki.
Lesa meira
Guðjón Ragnar Jónasson er fæddur í Reykjavík árið 1974. Um tíma var hann bóndi í Fljótshlíð, enda menntaður búfræðingur frá Hvanneyri. Í dag er hann hinsvegar kennari í Austurbæjaskóla í Reykjavík.
Lesa meira
Guðlaugur er fæddur á Dalvík árið 1950 og er Íslendingur. Hann hefur verið búsettur í Kaupmannahöfn frá árinu 1974. Guðlaugur gekk í Kaupmannahafnarháskóla til að læra bókmenntafræði og hefur ekki snúið heim til Íslands aftur, en hefur tekið að sér að kynna Ísland Dönum og Íslendingum Danmörku af miklum móð. Hann hefur kennt íslensku, rekið menningarhús á Vestur-Sjálandi og hefur hann um árabil verið leiðsögumaður Íslendinga í Kaupmannahöfn.
Guðni hefur mikla reynslu af hug-og heilsurækt eftir að hafa starfað sem lífsráðgjafi í rúmlega 20 ár. Hann er meðal annars fyrsti einkaþjálfarinn á Íslandi og stofnandi og upphafsmaður GlóMotion og Rope Yoga hugmyndafræðinnar, sem nýtur vaxandi vinsælda bæði hérlendis og vestanhafs.
Lesa meira
Guðrún er frumkvöðull í umhverfisvænni ferðaþjónustu og vinnu að vottun fyrirtækja og félaga. Hún hefur skrifað fjölda bóka um sjálfsrækt og heilsumál og haldið ýmiss konar námskeið með áherslu á hugrænt atferli, heilsu og jákvæðni.
Lesa meira
Frá árinu 1994 hefur Guðrún unnið við ritstörf og myndskreytingar eigin bóka fyrir börn. Frá sama tíma, og raunar lengur, hefur hún einnig safnað alþýðukveðskap úr skriflegri og munnlegri geymd og hefur úrval úr þessu efni birst í þremur bókum hennar.
Lesa meira
Guðrún Jóhannsdóttir er gift og á tvö uppkomin börn. Á háskólaárunum bjó hún í mörg ár erlendis og kynntist matarhefðum bæði frakka og Kaliforníubúa. Innblásin af hversdagseldamennsku þessara þjóða hóf Guðrún að skrifa matarpistilinn "Til hnífs og skeiðar" fyrir Fréttablaðið haustið 2003 með áherslu á spennandi og ferska en ódýra rétti.
Lesa meiraHalla Þórlaug Óskarsdóttir (f. 1988) útskrifaðist af eðlisfræðibraut 1 Menntaskólans í Reykjavík árið 2008. Þá fór hún í Myndlistarskóla Reykjavíkur og þaðan lá svo leiðin í myndlistarnám við Listaháskóla Íslands en hún lýkur þar námi næsta vor.
Lesa meira
Saga Hallgríms Jónssonar frá Laxamýri, Reynsluslóðir lögreglumanns og íþróttakappa, er saga hvunndagshetju og afreksmanns, eftirminnileg lýsing á samfélagi og lífsbaráttu nýliðinnar aldar.
Lesa meira
Hallveig Thorlacius á ættir að rekja til sögukvenna og hefur notað sögurnar sem amma hennar sagði barnabörnum sínum í eldhúsinu sem efnivið í sérstakan frásagnarstíl. Hún notar leikbrúður og virkjar jafnframt áhorfendur sína til þátttöku - lætur börnin helst fara heim með þá tilfinningu að þeim hafi tekist að bjarga lífi söguhetjunnar.
Lesa meira
Harpa Dís Hákonardóttir er 18 ára Kópavogsbúi. Hún er á þriðja ári í Menntaskólanum við Hamrahlíð og lærir á píanó í Tónlistarskóla Kópavogs. Árið 2009 kom út fyrsta bók Hörpu Dísar, Galdrasteinninn og Fangarnir í trénu, sjálfstætt framhald hennar, árið 2011
Harpa er ekki síður þekkt sem textíllistamaður og áhugaljósmyndari, en sem rithöfundur. Hún hefur haldið einkasýningar á útsaumsverkum sínum, meðal annars á torgi Þjóðminjasafnsins og í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Verk hennar hafa birst í erlendum blöðum og tímaritum og hún hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir þau. Harpa var bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar árið 2002.
Lesa meira
Hélène Magnússon fæddist í Frakklandi árið 1969. Hún lauk meistaraprófi í lögum og starfaði um skeið sem lögmaður í París. Árið 1995 söðlaði hún um og flutti til Íslands þar sem hún hóf myndlistar- og hönnunarnám. Hún á þrjár dætur og starfar nú sem sjálfstæður hönnuður.
Lesa meira
Hendrikka Waage er þekktur alþjóðlegur skartgripahönnuður og er fyrsti Íslendingurinn sem hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu á því sviði. Hendrikka er forseti og einn af stofnendum Alþingis barna sem eru góðgerðasamtök með höfuðstöðvar i Vín, Austurríki.
Lesa meira
Herdís Magnea Hübner er 54 ára, gift Hrafni Norðdahl og á með honum þrjú börn; Halldóru Björk, Eirík Örn og Val. Þau búa á Ísafirði
Lesa meira
Gyðingastúlkan Hélène Berr fæddist í París 1921. Hún stundaði nám í rússnesku og enskum bókmenntum við Sorbonne-háskóla, auk þess sem hún spilaði á fiðlu. Þegar Nasistar réðust inn í Frakkland í seinni heimstyrjöld hóf Hélène að halda dagbók.
Lesa meira
Hildur Hákonardóttir fæddist í Reykjavík árið fyrir seinni heimstyrjöldi. Hún ólst upp í borgarjaðrinum þar sem hún lærði að rækta og una sér við alls konar jarðargróður. Hildur hefur komið víða við og verið viðloðandi ýmsar hræringar í þjóðfélaginu sem voru á döfinni á árunum frá 1968 og fram undir 1980. Hún tók virkan þátt í kvennabaráttunni og var meðlimur í SÚM hópnum.
Lesa meira
Hlín Agnarsdóttir er leikstjóri, leikskáld, leiklistarráðunautur og rithöfundur. Hún gaf út bókina Að láta lífið rætast - Ástarsaga aðstandanda hjá Sölku.
Lesa meira
Kokkinn Hrefnu Rósu Sætran þarf vart að kynna, en hún er einn eigandi Fiskmarkaðarins sem staðsettur er í Aðalstræti 12 í Reykjavík. Hún hefur vakið athygli fyrir ungan aldur, langa afrekaskrá, og þroskaðan og sérhæfðan smekk. Hrefna keppir fyrir hönd Íslands í kokkalandsliðinu og hefur verið með eigin matreiðsluþætti á Skjá einum.
Nú hefur hún bætt enn einni rósinni í hnappagatið með sinni fyrstu bók, Fiskmarkaðurinn
Lesa meira
Hugo Þórisson sálfræðingur er mörgum að góðu kunnur. Hann hefur starfað að bættum samskiptum barna og foreldra í yfir 30 ár og hjálpað ótal fjölskyldum.
Lesa meira
Iðunn Steinsdóttir fæddist á Seyðisfirði árið 1940. Hún lauk stúdentsprófi frá MA árið 1960 og kennsluréttindaprófi frá KHÍ 1981. Árið 1982 kom fyrsta bók hennar út og síðan 1987 hefur hún að mestu leyti stundað ritstörf. Iðunn hefur skrifað bækur fyrir börn á öllum aldri og einnig fyrir unglinga.
Lesa meira
Ingibjörg Hjartardóttir er fædd á Tjörn í Svarfaðardal 18. maí 1952, dóttir hjónanna Hjartar Eldjárns Þórarinssonar og Sigríðar Hafstað. Hún ólst upp á Tjörn ásamt sex systkinum. Hún er bókasafnsfræðingur að mennt og vann lengst framan af á ýmsum bókasöfnum, bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Frá 1995 hefur hún að mestu leyti fengist við ritstörf þó hún hafi inn á milli tekið hlutastörf m.a verið forstöðumaður Bókasafns Ólafsfjarðar í nokkur ár.
Eiginmaður hennar er Ragnar Stefánsson, jarðskjálftafræðingur og synir hennar eru Þórarinn Hugleikur Dagsson, myndasöguhöfundur og leikskáld og Þormóður Dagsson, bókmenntafræðingur og blaðamaður.
Nancy er tengdamóðir Ingibjargar og þær búa í sitthvorri heimsálfunni, Nancy í Bandaríkjunum og Ingibjörg á Íslandi. Sonur Ingibjargar er fyrirmynd söguhetjunnar Daníel sem sagan Flugvélakossar fjallar um. Ingibjörg og Nancy eru báðar grunnskólakennarar sem hafa mikinn áhuga á barnabókmenntum.
Jack Kornfield er fæddur árið 1945. Hann hefur kennt hugleiðslu undanfarin þrjátíu ár og er mikilsvirtur leiðbeinandi í andlegri iðkun. Sigurður Skúlason íslenskaði valda kafla úr tveimur þekktustu bókum Kornfields.
Lesa meira
Jim Stovall, fjárfestir og frumkvöðull ársins 1997, tók þátt í að stofna sjónvarpsstöðina NTN, sem gerir kvikmyndir og sjónvarp aðgengilegt fyrir 13 milljónir blindra eða sjónskertra. Hann varð síðar framkvæmdastjóri hennar. Sjónvarpsstöðin hefur hlotið Emmy og alþjóðleg kvikmynda- og myndbandaverðlaun og nýtur einnig mikilla vinsælda meðal þeirra sem hafa fulla sjón. Jim Stovall hlotnaðist sami heiður og veittur var Walt Disney, Orson Wells og fjórum forsetum Bandaríkjanna, þegar hann var valinn einn af Tíu framúrskarandi ungum Bandaríkjamönnum.
Lesa meira
John Bradshaw er metsöluhöfundur, vinsæll sjónvarpsmaður og sálmeðferðarfræðingur. Hann kom hugtakinu um hið innra barn á kortið og hefur gefið út fimm metsölubækur, þar á meðal er Heimkoman. Bradshaw hefur breytt lífi fjölmargra með kenningum sínum um hvernig við getum öðlast ró og frið - verið heil í nútíðinni.
Lesa meira
Jóhannes Eiríksson, prentari er áhugaljósmyndari og mikill áhugamaður um sögu Íslands og fornsögunnar.
Lesa meiraKaren Kristín Ralston er Bandaríkjamaður, búsett á Íslandi með íslenskum eiginmanni sínum. Þau eiga saman fjögur börn en tvö barna þeirra hafa verið greind með einhverfu.
Lesa meira
Kristian, fæddur árið 1974, er búsettur í Reykjavík. Kristian er fæddur í Danmörku árið 1974 þar sem hann ólst upp fyrstu ár ævi sinnar. Hann bjó á Íslandi 1980 - 1981 og frá 1985, en dvaldi við nám í Bretlandi frá 1995 þar sem hann lauk prófi í hugbúnaðarverkfræði, Software Engineering (BS), frá University of Glamorgan í Wales 1999.
Kristín er fædd árið 1953. Hún er með próf frá myndlista-og handíðaskóla Íslands og lauk MA gráðu í myndlist í Bretlandi. Auk þess er hún með BA gráðu í ensku og listasögu. Kristínhefur starfað sem myndlistakona, myndmenntakennari, safnkennari og bókavörður og hefur hún einnig haldið fjölda sýninga á verkum sínum. Kristín vinnur aðallega með vatnslitum, þurrkrít og klippimyndum.
Lesa meira
Kristín Ómarsdóttir er fædd 24. september 1962 í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hún lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskóla í Hafnarfirði 1981, stundaði síðan nám í bókmenntum og spænsku við Háskóla Íslands og nám í spænsku við háskóla í Barcelona og Kaupmannahöfn. Kristín hefur jöfnum höndum fengist við ljóða- og skáldsagnagerð, smásögur og leikritun. Bækur eftir Kristínu hafa verið þýddar á önnur mál og ljóð hennar hafa birst í erlendum safnritum.
Lesa meiraKristjana María Kristjánsdóttir er grunnskólakennari á unglingastigi og hefur starfað með ungu fólki á ýmsum sviðum. Carpe diem er fyrsta skáldsaga Kristjönu Maríu en hún hefur samið þrjú leikrit sem sett hafa verið upp með unglingum víða um land.
Lesa meira
Kristján er fæddur árið 1957. Hann er oft kallaður “Skerjafjarðarskáldið” og er hann landanum allvel kunnur fyrir ljóð sín og texta.
Lesa meira
Kristján Ingi hefur tekið ljósmyndir frá tíu ára aldri, er hann eignaðist sína fyrstu kassamyndavél. Hann starfaði lengi sjálfstætt sem ljósmyndari fyrir ýmis blöð, tímarit, fyrirtæki og stofnanir, eða þar til ársins 1985 er hann tók við rekstri Leturprents ehf. Hann rak prentsmiðjuna til haustsins 2006 þegar hann seldi fyrirtækið og tók aftur upp myndavélina.
Lesa meira
Lawrence Schimel er fæddur árið 1971 í New York. Hann hefur skrifað yfir 45 bækur fyrir bæði börn og fullorðna. Barnabókin Sylvía og drekinn kom út hjá Sölku árið 2007.
Lesa meira
Lilja Sólrún greindist með brjóstakrabbamein og fór í kjölfarið í lyfjameðferð sem hafði slæmar aukaverkanir. Í bók sinni Er lítið mein yfirtók líf mitt fjallar Lilja Sólrún um reynslu sína, hún lítur til baka og dregur upp svipmyndir minninga.
Lesa meira
Louise L. Hay er einn vinsælasti fyrirlesari og lífsráðgjafi í Bandaríkjunum. Hún hefur hjálpað fólki um allan heim að bæta lífsgildi sín og viðhorf með því að nota mátt jákvæðra staðfestinga. Bækur hennar hafa verið þýddar á 29 tungumál í 35 löndum um allan heim.
Lesa meiraLóa Maja er fædd og uppalin í Hrísey og er afar mikill Hríseyingur. Hún er næstyngst af fjórum systkynum og fjögurra barna mamma. Hún er mikil fjölskyldumanneskja og auk þess dýravinur.
Lesa meira
Lóa Pind Aldísardóttir hafði lengi skrifað og unnið fyrir blöð og fjölmiðla þegar hún lagði á brattann og mætti með þykkan handritsbunka í grænni tösku inn á forlagsskrifstofu Sölku sumarið 2007 og óskaði eftir útgáfu. Fyrsta skáldsagan Sautjándinn kom út um haustið. Hún býr í Reykjavík og á tvo syni og eina stjúpdóttur.
Lesa meira
Margrét Lóa writes poetry and her first published work, the poetry collection Glerúlfar (Glass Wolves), came out in 1985. She has been the publisher of many of her own books and has also designed and illustrated them. In addition to her poetry books, Margrét Lóa has conducted a sound structure which was performed in the gallery Hlust and a book-art piece for Gallerí Barmur (Gallery Chest; a moveable gallery situated on people's chests). She has been a creative writing teacher at workshops run for children by the Reykjavík City Library and also in the Gerðuberg Cultural Center in Reykjavík. She was the editor of the literary magazine Andblær for two years.
Lesa meira
Maria Ernestam er ein áhugaverðasta og virtasta sænska skáldkona nútímans. Stíll hennar þykir með eindæmum sérstakur og er jafnvel til orðatiltæki meðal sænskra blaðamanna og gagnrýnenda en þeir segja að stíllinn sé „Ernestamískur” (Ernestamian), en þá er átt við að stíllinn sé alvarlegur með svörtum humor í bland.
Lesa meira
Marita van der Vyver er frá Suður-Afríku. Hún hefur unnið til fjölmargra verðlauna en sögur hennar einkennast af frásagnargleði og takmarkalausu hugarflugi. Salka gaf út bókina Engillinn hennar Grétu árið 2003.
Lesa meira
Masaru Emoto fæddist í Yokohama í Japan 1943. Hann kom víða við og í Bandaríkjunum hugmyndum um smásjárklasa og tækni til að greina segulómun. Þannig hófst leitin að leyndardómum vatnsins.
Lesa meira
Maxine Gaudio heilari og orkumeistari er einn okkar besti Íslandsvinur og býr til skiptis á Íslandi og í Bandaríkjunum. Hún hefur stúderað íslenska þjóðarsál og leiðbeint mörgum hérlendis í átt til betra lífs og lumar jafnvel á einföldum en áhrifaríkum ráðum fyrir þjóð sem stendur á tímamótum.
Lesa meira
Michael Pollan er fæddur árið 1955. Hann ólst upp á Long Island og stundaði nám við Bennington College, Oxford University og Columbia University, þaðan sem hann lauk MA-prófi í ensku. Pollan býr nú á vesturströnd Bandaríkjanna, á flóasvæðinu, ásamt eiginkonu sinni, listmálaranum Judith Belzer, og syni þeirra, Isaac.
Lesa meira
Michèle Roberts er fædd árið 1949, tuttugu mínútum á eftir tvíburasystur sinni Marguerite. Móðir hennar er frönsk en faðir hennar enskur og Michèle ólst upp í Englandi. Roberts var m.a. tilnefnd til Bookerverðlaunanna fyrir Dætur hússins.
Lesa meira
Naomi Moryama og William Doyle skrifuðu bókina Japanskar konur - hraustar og grannar. Þau upplifðu það af eigin raun að dvelja til Tókýó í mánuð og kílóin hrundu af þeim. Það eina sem þau gerðu var að borða heimilismatinn hjá foreldrum Moryama í Japan.
Lesa meira
Nojud Ali frá Jemen vakti heimsathygli þegar hún, aðeins tíu ára, krafðist skilnaðar frá manni sem hún hafði verið gift. Henni var veittur skilnaður og hún varð að hetju sem er fyrirmynd annara stúlkna í svipuðum aðstæðum.
Saga Nojoud vekur athygli á stöðu kvenna og stúlkna á þessum slóðum, en mikill meirihluti þeirra er giftur fyrir átján ára aldur.
Lesa meira
Pamela Lyndon Travers eða Helen Lyndon Goff, eins og hún hét upphaflega, fæddist árið 1899 í Ástralíu. Hún starfaði sem rithöfundur, leikkona og blaðamaður en sló í gegn með bókunum um Mary Poppins.
Lesa meira
Pjetur Hafstein Lárusson fæddist í Vestmannaeyjum 31. ágúst 1952, en flutti á fyrsta ári upp á fastalandið. Þegar hann var tvítugur lá leið hans til Svíþjóðar, þar sem hann stundaði nám í blaðamennsku. Fyrsta ljóðabók Pjeturs, Leit að línum, kom út árið 1972, en alls eru frumortar ljóðabækur hans nú orðnar fjórtán að tölu.
Lesa meiraRafn hefur átt drjúgan þátt í að koma Íslandi á framfæri frá því hann byrjaði að taka myndir árið 1955. Myndir hans hafa birst á ýmsum vettvangi, s.s. á póstkortum, í bæklingum, dagatölum, frímerkjum og vefsíðum. Rafn hefur haldið fjölda ljósmyndasýninga, bæði hérlendis sem erlendis.
Randy Pausch lést fyrir aldur fram, aðeins 46 ára gamall. Þegar hann þurfti að kveðja starfsvettvang sinn í Carnegie Mellon háskóla, þar sem hann var prófessor í tölvunarfræðum, vegna þess að hann átti aðeins fáa mánuði eftir ólifaða, ákvað hann að halda fyrirlestur um lífsferil sinn.
Lesa meira
Reynir er mikill útivistarmaður og komið að mörgum verkefnum sem snúa að því að útbúa leiðarlýsingar og kort um áhugaverða staði og landssvæði. Nýjasta viðbótin við höfundarverk Reynis er göngubókaflokkur sem Salka gefur út.
Lesa meira
Rhonda Byrne er fædd árið 1955 í Ástralíu. Hún skrifaði metsölubókina The Secret eða Leyndarmálið sem Salka gaf út árið 2007. Einnig hefur verið gefin út DVD diskur um Leyndarmálið sem er einnig fáanlegur hjá Sölku.
Lesa meira
Rita Emmett hefur skrifað þrjár bækur og hafa tvær þeirra komið út hjá Sölku. Hún er bæði fyrirlesari og ráðgjafi og hefur kennt mörgum listina við að losa sig við drasl og drífa í hlutunum.
Lesa meira
Sandra Benítez er fædd og uppalin í El Salvador en býr nú í Minnesota. Hún hefur skrifað margar bækur þar sem sögusviðið er El Salvador en ein þeirra, Hjómið eitt, var gefin út á íslensku árið 2005.
Lesa meira
Sigríður er fædd árið 1946 á Hjarðarfelli og uppalin þar. Hún varð B.A. frá Háskóla Íslands árið 1969. Sama ár flutti Sigríður til Haïti og svo til Frakklands 1970. Hún hefur búið í París síðan.
Lesa meira
Sigríður Ásta er textílhönnuður að mennt og hefur undanfarin ár rekið Kirsuberjatréð.
Lesa meira
Þessi þekktasta spákona Íslands hefur nú gefið út spennandi spáspil og sjálfseflingar-disk, sem fást hér hjá okkur í Sölku.
Lesa meira
Sigrún Huld Þorgrímsdóttir er fædd 1952 í Garði í Mývatnssveit. Hún er hjúkrunarfræðingur og starfar nú við hjúkrun aldraðra. Hún hefur lengi haft áhuga á sögu lands og þjóðar og iðulega nýtt þann áhuga til að mynda betri tengsl við skjólstæðinga sína.
Lesa meira
Sigrún María Kristinsdóttir hefur starfað sem blaðamaður á Íslandi og í Kanada í nær tvo áratugi, og stundar nú doktorsnám í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands. Hún er einnig verðandi móðir ættleidds barns frá Tékklandi,
Lesa meira
Sigurður A Magnússon er mikilsvirtur rithöfundur, skáld og fræðimaður. Hann hefur unnið ötullega að félagsmálum og gengt formannsstöðu í fjölmörgum samtökum, þ.á.m. Félagi íslenskra leikdómenda og Rithöfundasambands Íslands. Sigurður er einnig þekktur fyrir ferðabækur sínar og leiðsöguferðir um framandi slóðir, þ.á.m. um Austurlönd nær, Grikkland, Indland, Nepal, Japan og Brasilíu.
Sigurður Skúlason er fæddur árið 1946. Hann hefur starfað sem leikari og hefur leikið mörg aðalhlutverk á sviði, en einnig í bíómyndum og sjónvarpsmyndum. Auk þess hefur hann einnig fengist töluvert við ritstörf; þýðingar, frumsmíð, þáttagerð fyrir útvarp o.fl.
Lesa meira
Sigurjón Pétursson og Þóra Hrönn Njálsdóttir eru áhugaljósmyndarar búsett í Hafnarfirði. Þau Sigurjón og Þóra Hrönn hafa farið víða um heim til ljósmyndunar og hafa ljósmyndað á Íslandi í fjóra áratugi auk þess sem þau hafa m.a. ljósmyndað í Alaska, Norður-Ameríku, Kína, Innri Mongólíu, Lebanon, Namibíu og á Grænlandi.
Lesa meira
Snorri Birgir Snorrason er reyndur og víðförull kokkur. Hann hefur unnið víða í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan. Snorri átti og rak Sticks´n´Sushi, einn af vinsælli veitingastöðum borgarinnar um árabil. Hunang samanstendur af grafísku hönnuðunum þeim Ragnhildi Ragnarsdóttur og Sigrúnu Sigvaldadóttur. Þær eru hugmyndasmiðir bókarinnar Súpa og stóll ásamt Snorra.
Lesa meira
Sophie Kinsella hefur skrifað fimm bækur um kaupalkann Rebeccu Bloomwood. Fyrsta bókin Draumaveröld kaupalkans kom út hjá Sölku árið 2005 og var loksins endurprentuð 2008.
Lesa meira
Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir er lektor í guðfræðilegri siðfræði við Háskóla Íslands.
Lesa meiraSr. Bragi Skúlason er fæddur 1957. Hann lauk prófi frá H.Í. 1982 og kennsluréttindum frá H.Í. 1983. Hann starfaði sem sóknarprestur í fríkirkjunni í Hafnarfirði, í söfnuði Vestur-Íslendinga í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum og í Vestmannaeyjum. Hann lauk sérnámi í sálgæslu í Minneapolis 1987 og hóf störf á Landspítala háskólasjúkrahúsi 1989 og hefur starfað þar síðan.
Lesa meiraStefanía Guðbjörg Gísladóttir er fædd í Seldal, Norðfirði árið 1959 og alin upp í níu systkina hópi. Hún er sjúkraliði að mennt og hefur unnið fjölbreytileg störf, þ.á,m. við búskap.
Lesa meira
Steinunn Þorvaldsdóttir starfar sem textahöfundur, líkamsræktarþjálfari og almannatengslaráðgjafi. Ragnhildur Gísladóttir er ein ástsælasta tónlistarkona þjóðarinnar og sennilega þekktust fyrir að hafa verið meðlimur Stuðmanna og Grýlanna.
Lesa meiraStella Sigurgeirsdóttir er myndlistarkona. Hún lauk B.A. prófi frá Listaháskóla Íslands (LHÍ) árið 2000 og B.Ed. prófi frá myndlistarskori Kennaraháskóla Íslands (KHÍ) árið 1996. Jafnframt því að starfa við myndlist hefur hún unnið við sjónvarp, kvikmyndir og leikhús og þá einkum við gerð leikmynda, leikmuna og búninga. Auk þess hefur Stella fengist við kennslu og leiðsögn. Stella býr einnig til barnaleikföng og ýmsa muni undir merkinu Slowstars.
Lesa meira
Höfundarnir, Stephen C. Lundin, Harry Paul og John Christensen, fengu hugmynd að bókinni Fiskur! þegar þeir kynntust í hinni feikivinsælu fiskbúð Pike Place í Seattle, Kanada. Fiskur! er heiti á hugmyndakerfi sem hefur bætt starfsárangur og vinnuánægju fólks víða um heim.
Sue Ellen Cooper tók þá ákvörðun að lífinu skyldi ekki vera lokið eftir fimmtugt. Hún ákvað að fimmtugasti afmælisdagurinn væri sérstakt fagnaðarefni og keypti sér rauðan hatt í tilefni dagsins.
Lesa meira
Susan Nolen-Hoeksema er prófessor í sálarfræði. Hún hefur hlotið margs konar viðurkenningar frá alþjóðlegum sjóðum og stofnunum fyrir rannsóknir á ofhugsun kvenna síðustu tuttugu árin.
Lesa meira
Susannah Marriott er þriggja dætra móðir, rithöfundur og fyrirlesari sem hefur sérhæft sig í heilsu, uppeldi og grænum lífsstíl. Eftir hana hafa komið út 19 bækur, sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála, auk þess sem hún skrifar fyrir tímarit á borð við Marie Claire, Weekend Guardian, Top Santé og Junior.
Lesa meira
Suzanne Martin er doktor í sjúkraþjálfun og hefur yfir 25 ára reynslu á sviði heilsu og hreyfiþjálfunar. Suzanne er yfirsjúkraþjálfari hjá Smuin Balletinum í San Francisco og rekur einnig eigin stofu. Martin skrifaði bókina Teygjur.
Lesa meira
Sylvia birti sitt fyrsta ljóð átta ára gömul. Vel gefin, næm og reyndi að ná fullkomnun í flestu sem hún tók sér fyrir hendur; á yfirborðinu hin fullkomna dóttir, vinsæl í skóla, fékk toppeinkunnir. Þegar hún hóf nám í Smith háskólanum með skólastyrk hafði hún birt þónokkur ljóð í blöðum og á meðan dvöl hennar stóð samdi hún yfir 400 ljóð.
Lesa meira
Thomas Möller er hagverkfræðingur og MBA. Hann starfar sem framkvæmdastjóri og eigendi Rýmis-Ofnasmiðjunnar ehf. auk þess að starfa sem ráðgjafi hjá eigin ráðgjafarfyrirtæki, Consultis ehf. Thomas er einnig kennari í Vörustjórnun í Viðskiptafræðideild HR.
Lesa meira
Thomas W. Phelan er þekktur og vinsæll bandarískur sálfræðingur sem hefur sérþekkingu á agamálum og athyglisbresti hjá börnum. Hann setti fram 1-2-3 aðferðina sem nú er orðin þekkt um allan heim.
Lesa meira
Tricia Kreitman er ráðgjafi og dálkahöfundur hjá tveimur unglingablöðum í Bretlandi Hún er menntuð í sálarfræði og hefur sérhæft sig í kynlífsráðgjöf.
Tricia skrifaði bókina Stelpa, stattu á þínu! sem kom út árið 2001 hjá Sölku.
Lesa meiraUnnur er fædd árið 1951. Hún er með háskólapróf í bókmenntafræði, hagsögu og uppeldis- og kennslufræði. Unnur er kennari en stundar nú nám í Svíþjóð.
Lesa meira
Úlfar Finnbjörnsson er ástríðufullur veiðimaður sem hefur brennandi áhuga á að nýta bráðina sem best. Úlfar hefur stundum verið nefndur villti kokkurinn, enda fer hann víða og stundar fjölbreytta veiðimennsku auk þess að vera matreiðslumeistari á heimsmælikvarða. Hann er þó sannkölluð fyrirmynd annarra veiðimanna og umgengst náttúruna af sannri virðingu.
Lesa meiraVandana Shiva er heimsþekkt baráttukona á sviði umhverfis- og mannréttindamála, ötull talsmaður lífræns landbúnaðar og einn atkvæðamesti gagnrýnandi erfðabreytinga á nytjaplöntum. Einnig hefur hún barist fyrir kvenréttindum og bent á hættuna sem fylgir því að staðbundin þekking glatist vegna hnattrænna áhrifa og sóunar á náttúruauðlindum.
Lesa meira
Victoria Moran er þekktur fyrirlesari og höfundur fjölmargra bóka um listina að lifa. Með jákvæðum huga hefur henni tekist að þróa öflugar aðferðir til að gæða hversdagslífið töfrum og efla innri frið og hugarró.
Lesa meira
Vilhelm Gunnarsson hefur starfað sem ljósmyndari á Fréttablaðinu síðan 2003 og myndað marga merkisatburði í sögu þjóðarinnar – Vilhelm Gunnarsson has worked as a photographer for the Fréttablaðið newspaper since 2003 and has witnessed and shot many historical events in Iceland, though none have affected him as strongly as the Eyjafjallajökull eruption.
Lesa meira
Sænski rithöfundurinn og sagnfræðingurinn Vilhelm Moberg (1898-1973) skrifaði eitt frægasta ritverk sitt í fjórum hlutum á árunum 1949-1959. Ritröðin fjallar um veruleika sem blasti við mörgum Svíum á þessum árum; að flýja heimaland sitt vegna erfiðra aðstæðna heimafyrir. Sagan fjallar um fjölskyldu sem flyst búferlum frá Smálöndunum í Svíþjóð til Minnesota í Bandaríkjunum og skiptast á skin og skúrir í lífi þeirra.
Lesa meira
Meistarakokkurinn Völundur Snær Völundarson er fæddur í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu Völundur lauk námi í Hótel og veitingaskóla Íslands, með prófi árið 1995, en samhliða náminu starfaði hann á veitingahúsi Perlunnar. Ári síðar gerðist Völundur Snær lærlingur við veitingastaðinn "Domaine de Clairefontaine" sem rekinn er af matreiðslumeistaranum Philippe Girardon (Meilleurs Ouvrier de France 1997). Árið 1997 lagði Völundur leið sína til Bandaríkjanna, þar sem hann réðist sem matreiðslumaður við The Colombia Gorge Hotel í Hood River í Oregonfylki. Völundur sneri aftur heim árið 1998 og starfaði um skeið í Mosfellsbakaríi. Þaðan fór hann aftur til Bandaríkjanna og hóf störf við hinn rómaða veitingastað Charlies Trotters í Chicago.Völundur Snær sneri aftur heim til Íslands vorið 1999 og tók til starfa sem næstæðsti matreiðslumaður við Hótel Holt í Reykjavík og vann þá með matreiðslumeistaranum Hákoni Má Örvarssyni.
Þorbjörg Hafsteinsdóttir er hjúkrunarfræðingur að mennt og næringarþerapisti. Í yfir tuttugu ár hefur hún rannsakað mataræði og nútímalífsstíl og komist að niðurstöðu um hvers konar matur, vítamín og bætiefni viðhalda best æsku og lífsþrótti.
Lesa meira
Þóra Jónsdóttir frá Laxamýri er ein athyglisverðasta samtímaskáldkona okkar. Hún yrkir meðal annars um ástina, náttúruna og órjúfanleg tengsl við fortíðina. Ljóð Þóru hafa sterkan heildarsvip og henni tekst sífellt að koma lesanda sínum á óvart.
Lesa meira
Þóra hefur um árabil starfað hjá ýmsum fjölmiðlum við dagskrárgerð, blaðamennsku og pistlaskrif, auk þess að sinna ritstörfum og þýðingum. Hún er m.a. fyreverandi umsjónarmaður Stundinnar okkar, höfundur unglingabókarinnar Ef þú bara vissir, þýðandi bókarinnar Japanskar konur, hraustar og grannar og pistlahöfundur á pressan.is. Hún býr nú á Bahamaeyjum ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum, þar sem þau reka veitingastað og fást við þáttagerð.
Þórarinn Hjartarson er fæddur á Tjörn í Svarfaðardal árið 1950. Síðustu tíu árin hefur hann einkum unnið við skriftir auk þess sem hann syngur og kveður ef þess er óskað. Sumarið 2008.kom út bókin Eg skal kveða um eina þig alla mína daga - Ástarljóð Páls Ólafssonar sem Þórarinn tók saman.
Lesa meiraÞær Þórey og Lóa voru heilt ár að safna hugmyndum fyrir bókina Reykjavík barnanna sem Salka gefur út. Þórey átti hugmyndina en Lóa skrifaði og hannaði bókina.
Þórhallur Heimisson varð stúdent frá Menntaskólann að Laugarvatni árið 1981. Hann nam sagnfræði við Háskóla Íslands 1981-1982 en lauk kandidatsprófi í guðfræði frá sama skóla 1988 og vígðist prestur 1989. Þórhallur stundaði framhaldsnám í trúarbragðafræðum við Árósarháskóla í Danmörku 1990-1992 og við Uppsalaháskóla í Svíþjóð 1993-1996. Stundaði hann prestsstörf í sænsku kirkjunni á sama tíma.
Lesa meira
Þórunn Hjartardóttir er fædd í Reykjavík 28.f ebrúar 1965 Þórunn býr í Vesturbænum, er fráskilin og á tvær dætur, Steinunni og Katrínu Harðardætur. Þórunn er myndlistarmaður að mennt en hefur mikið til unnið við mörgu sem tengist íslensku, lestri og orðnotkun.
Þura lærði tísku- og ljósmyndaförðun hjá myndlistarkonunni og förðunarmeistaranum Línu Rut Karlsdóttur. Auk þess er hún snyrtifræðingur með meistara- og alþjóðleg Cidescoréttindi í snyrtifræðum. Þetta er athafnasöm ung kona sem kom inn á ritstjórn Sölku með skýra hugmynd í kollinum um þá bók sem hún vissi að vantaði á íslenskan markað.
Lesa meira