Astrid Lindgren
Astrid Lindgren
Astrid Lindgren fæddist 14. nóvember 1907 í Svíþjóð. Hún skrifaði margar bækur fyrir börn og af þeim sem komið hafa út á íslensku má nefna Emil í Kattholti, Lína langsokkur, Börnin í Ólátagarði og Madditt.
Astrid Lindgren var farin að nálgast fertugt þegar fyrsta bókin hennar kom út en sú bók var um Línu langsokk. Þá fóru hjólin að snúast og sögurnar tóku að koma út ein af annarri. Hún skrifaði samtals 40 barnabækur og fjöldann allan af myndabókum.
Árið 1958 fékk Astrid Lindgren orðu H.C. Andersens, en það er helsta viðurkenning barnabókahöfunda í heiminum.
Sagan um Emil í Kattholti er til á hljóðbók hjá Sölku.

