forlag með sál
  • maxine_rgb

Maxine Gaudio

Maxine Gaudio

Erlendir

Maxine Gaudio heilari og orkumeistari er einn okkar besti Íslandsvinur og býr til skiptis á Íslandi og í Bandaríkjunum. Hún hefur stúderað íslenska þjóðarsál og leiðbeint mörgum hérlendis í átt til betra lífs og lumar jafnvel á einföldum en áhrifaríkum ráðum fyrir þjóð sem stendur á tímamótum.

Maxine er velþekkt í Bandaríkjunum fyrir vinnu hennar með andleg málefni, rannsóknir og kennslu til að hjálpa fólki að létta á streitu, auka orku og takast á við erfið málefni. Hún hefur þróað nýjar aðferðir við slökun og reiki, þar sem fornar leiðir eru sameinaðar nútíma vísindum og lístíl. Fjöldi erlendra samtaka og tímarita hafa vísað til og notast við störf Maxine, m.a O, The Oprah Magazine og Business week.

 

Heilunarkraftur Maxine og jákvæð lífssýn hefur kennt mörgum að virkja sína eigin hæfileika til að öðlast jafnvægi og hamingju og gera lífið innihaldsríkara.

 

„Ég gerði max að fararstjóra á ferðalagi mínu um andlega heima. Því er þessi bók um líf hennar og starf nú komin út á íslensku. Vonandi verður hún til þess að fleiri leggja upp í ferðalag og finni sinn fararstjóra."

- Jón Ólafsson, athafnamaður.

 

Lesið meira um Maxine Gauio hér.




Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica