forlag með sál
  • sylvia-plath-photograph

Sylvia Plath

Sylvia Plath

Erlendir

Sylvia birti sitt fyrsta ljóð átta ára gömul. Vel gefin, næm og reyndi að ná fullkomnun í flestu sem hún tók sér fyrir hendur; á yfirborðinu hin fullkomna dóttir, vinsæl í skóla, fékk toppeinkunnir. Þegar hún hóf nám í Smith háskólanum með skólastyrk hafði hún birt þónokkur ljóð í blöðum og á meðan dvöl hennar stóð samdi hún yfir 400 ljóð.

Undir yfirborðinu lá hins vegar dekkri og þyngri persóna sem að sumu leyti var að hægt að tengja við dauða föður hennar þegar hún var átta ára. Sumarið eftir fyrsta ár hennar í háskólanum dvaldi hún í sem gesta-ritstjóranemi í New York við tímaritið Madamoiselle. Sylviu tókst næstum því að taka sig af lífi þegar hún kom heim, með svefnpillum og lýsti því seinna í nærri-ævisögulegri skáldsögunni Glerhjálmurinn.

Eftir tímabil endurhæfingar sem fól í sér raflostmeðferðir og sálrænar meðferðir sneri Sylvia til baka í skólann og útskrifaðist frá Smith með láði 1955 og vann Fullbright skólastyrk til að hefja nám við Cambridge í Englandi. Sylvia giftist enska lárviðrarskáldinu Ted Hughes árið 1956 og árið 1960 þegar hún var 28 ára kom fyrsta ljóðabók hennar Colossus út í Englandi. Ljóðin í þeirri bók sýndu hvers hún var megnuð en voru samt bara fyrirheit um það koma skyldi. Sylvia og Ted hreiðruðu um sig í sveitaþorpinu Devon en aðeins tveimur árum eftir fæðingu fyrsta barnsins þeirra brast hjónabandið.

Veturinn 1962 -1963 þann kaldasta í manna minnum, bjó Sylvia í lítilli íbúð í London með börnum sínum þar sem hún skrifaði á milli fjögur og átta á morgnana – áður en börnin vöknuðu og kláraði eitt ljóð á dag. Þann 11 febrúar 1963 tók Sylvia sitt eigið líf og tveimur árum síðar kom Ariel – samansafn af hennar síðustu ljóðum út.




Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica