Anne Holt
Anne Holt
Norski rithöfundurinn Anne Holt er fædd árið 1958. Hún er lögfræðingur að mennt og vann fyrir norska ríkissjónvarpið, NRK (The Norwegian Broadcasting Corporation) á árunum 1984–88. Holt vann á lögreglustöðinni í Osló í tvö ár í starfsnámi sínu sem lögfræðingur og eftir það fór hún aftur á NRK þar sem hún vann sem fréttakona og sjónvarpskona í þættinum Dagsrevyen.
Holt opnaði sína eigin lögfræðistofu árið 1994 og var m.a. dómsmálaráðherra í afleysingum. Hún býr í Osló ásamt sambýliskonu og dóttur. Anne Holt gaf út sína fyrstu bók árið 1993. Sú bók var glæpasaga um lesbíska lögreglustjórann Hanne Wilhelmsen. Lövens gap (1997) og Uten ekko (2000) eru einnig með Wilhelmsen í fararbroddi, en meðhöfundur þeirra bóka er Berit Reiss-Andersen.
Alls urðu bækurnar um Wilhelmsen átta talsins, en frá árinu 2001 hóf Holt útgáfu nýs bókaflokks sem kallast Vik/Stubø-bókaflokkurinn. Það sem mér ber er fyrsta bókin í þeim bókaflokki og nú er sjálfstætt framhald hennar Það sem aldrei gerist einnig komin út á íslensku. Bækur hennar hafa verið gefnar út í tuttugu og fimm löndum og hafa selst í meira en fjórum milljónum eintaka.
Grein birtist um Anne Holt í Lesbók Morgunblaðsins þann 01.08.2010. Þar er sagt að hún hafi skipað sér á sess meðal fremstu krimmahöfunda Norðurlandanna. Blaðamaður lýsir henni sem skáldsagnarpersónu í góðri bók, þar sem hún sé greinilega kona með bein í nefinu. Hún hafi áorkað meiru en flestir geti á heilli lífstíð og Holt segist hafa unun af skrifunum sem hún sinnir eins og venjulegri vinnu með tilheyrandi aga.

