forlag með sál
  • Bradshaw

John Bradshaw

Erlendir

John Bradshaw er metsöluhöfundur, vinsæll sjónvarpsmaður og sálmeðferðarfræðingur. Hann kom hugtakinu um hið innra barn á kortið og hefur gefið út fimm metsölubækur, þar á meðal er Heimkoman. Bradshaw hefur breytt lífi fjölmargra með kenningum sínum um hvernig við getum öðlast ró og frið - verið heil í nútíðinni.

Oft hefur æskan neikvæð áhrif á sálarlífið sem verður til þess að við náum ekki að lifa og njóta lífsins sem heilsteyptir fullorðnir einstaklingar. Bradshaw telur að nauðsynlegt sé að sættast við barnið sem býr innra með okkur öllum, en til þess að svo geti orðið þurfum við að gera upp fortíðina og finna okkar sanna sjálf.

Bækur Bradshaw fjalla um hvernig við getum losnað við reiðina og hugsanir sem brjóta okkur niður. Hann leggur ríka áherslu á að hver og einn byggi upp heilbrigt sjálfstraust, traust sambönd og átti sig á því hvert hann vilji í raun og veru stefna. Bradshaw hefur upplifað flest sem hann skrifar um því hann ólst upp hjá brotinni fjölskyldu. Faðir hans var alkahólisti sem yfirgaf fjölskylduna með tilheyrandi afleiðingum. Þrátt fyrir að Bradshaw hafi náði góðum árangri í skóla var hann jafnframt stjórnlaus táningur sem á endanum varð virkur alkahólisti. Bradshaw tókst á við fíknina og drakk í síðasta sinn þann 11. desember 1968. Síðustu áratugi hefur hann unnið sem trúarfræðingur, ráðgjafi, sálmerðferðarfræðingur og fyrirlesari.

Heimasíða Bradshaw http://www.johnbradshaw.com/


Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica