forlag með sál

Íslenskir

Ari Kr. Sæmundsen - Íslenskir

Ari_Kr

Ari Kr. Sæmundsen rekur innflutningsfyrirtækið Gróco ehf. sem státar af titlinum fyrirmyndarfyrirtæki VR 2008. Hann er doktor í veirufræði og var einhverju sinni kallaður menntaðasti heildsali landsins í Nýju Lífi. Ari þekktur fyrir leiftrandi frásagnargleði og nýlega kom út smásagnasafn eftir hann, sem nefnist Með stein í skónum.

Lesa meira
 

Ari Trausti Guðmundsson - Íslenskir

Ari_Trausti

Ari Trausti, fæddur 1948, er rithöfundur, skáld, jarðvísindamaður, útvarps- og sjónvarpsmaður. Hann hefur skrifað fjölda bóka á ýmsum málum um jarðfræði og náttúru Íslands. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir bækur sínar.

Lesa meira
 

Arnfríður Guðmundsdóttir og Æja - Íslenskir

Arnfridur_Aeja

Hausið 2010 kom út bókin Út í birtuna sem samanstendur af hugvekjum í máli og myndum. Arnfríður Guðmundsdóttir, guðfræðiprófessor, leggur hér út af völdum textum úr Biblíunni sem öðlast nýja vídd með gullfallegum myndum listakonunnar Æju. Bókin gefur nútímalega mynd af uppbyggjandi skilaboðum hinnar helgu bókar og býr yfir huggun og hvatningu til lesanda um að handa ótrauður áfram, út í birtuna, til móts við nýjan dag.

Lesa meira
 

Ágústa Þóra Jónsdóttir - Íslenskir

Agusta_Thora_Jonsdottir

Ágústa er alin upp á Ísafirði og hefur alltaf heillast af vettlingum. Vettlingar hafa spilað stórt hlutverk í lífi hennar og hún ákvað því að búa til uppskriftir að 50 vettlingum fyrir flest tækifæri. Salka gefur út bók hennar, Hlýjar hendur. Hún segist hvorki vera hönnuður né handavinnukennari heldur sé það ekki einkamál þeirra. Ágústa er líffræðingur og rekstarhagfræðingur og hefur lengst af starfað í alþjóðaviðskiptum.

Lesa meira
 

Árni Heiðar Ívarsson - Íslenskir

arniheidar

Árni er íþróttakennari í grunnskóla með B.ed gráðu frá Kennaraháskóla Íslands. Hann er ennfremur með einkaþjálfarapróf frá Íþróttakennarafélagi Íslands. Hann hefur lengi unnið við þjálfun og haldið fyrirlestra um líkamsrækt.

Lesa meira
 

Ásthildur Bj. Snorradóttir - Íslenskir

Asthildur

Ásthildur lauk Meistaraprófi, með áherslu á talmeinafræði frá USA árið 1999, og hefur hefur mikla reynslu af ráðgjöf og vinnu með að styrkja boðskiptafærni ungra barna. Árið 1996 stofnaði hún ásamt öðrum talmeinafræðingum eigin talmeinastofu; Talþjálfun Reykjavíkur. Bókaútgáfan Salka gaf út bókina um Bínu bálreiðu árið 2006. Bókin byggir á langri reynslu höfundarins í vinnu sinn sem talmeinafræðingur.

Lesa meira
 

Birgitta Jónsdóttir - Íslenskir

birgitta1

Birgitta Jónsdóttir er fædd í Reykjavík arið 1967. Hún ólst upp í Þorlákshöfn og Reykjavík en stundaði einnig nám í heimavistarskólum. Birgitta gaf út sína fyrstu ljóðabók, Frostdingla, sem hún jafnframt myndskreytti, árið 1989. Sjálfsævisöguleg Dagbók kameljónsins kom út hjá Sölku árið 2005.

Lesa meira
 

Bjarni Brynjólfsson og Loftur Atli Eiríksson - Íslenskir

Þeir Bjarni og Loftur eru báðir starfandi blaðamenn. Bjarni er ritstjóri Iceland Review og Loftur hefur unnið hjá tímaritinu Séð og heyrt. Þeir skrifa og ritstýra fallegri uppskriftabók sem Salka gefur út; Spriklandi lax í boði veiðikokka.

Lesa meira
 

Bragi Magnússon - Íslenskir

Bragi Magnússon (1917-2001) starfaði lengi að íþrótta og félagsmálum í heimabæ sínum, Siglufirði. Hann var alla tíð góður íþróttamaður og formaður í stjórn margra félaga. 

Lesa meira
 

Bryndís Víglundsdóttir - Íslenskir

Bryndis_Viglundsdottir

Bryndís Víglundsdóttir skrifar sniðugar sögur um jólasveina. Hún fæddist í Reykjavík árið 1934. Hún hefur sérfræðimenntun og mikla starfsreynslu af kennslu og vinnu með fötluð börn, sem sérkennari og skólastjóri. Lengst af var hún skólastjóri Þroskaþjálfaskóla Íslands.

Lesa meira
 

Bubbi Morthens - Íslenskir

Bubbi-5

Bubba Morthens þarf vart að kynna, en hann er einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar. Ástríða Bubba fyrir utan tónlistina (að sjálfsögðu) er veiði. Bubbi féll fyrir Laxá í Aðaldal og Salka gefur út bók hans sem ber hið einfalda heiti: Áin.

Lesa meira
 

Darri Johansen - Íslenskir

Darri Johansen

Darri er fæddur í Reykjavík árið 1974. Hann er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og útskrifaðist frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands árið 2000. Hann hefur starfað lengstum við auglýsingastörf og sinnt þar viðskiptaumsjón og hugmyndavinnu. Svo er hann líka pabbi.

Lesa meira
 

Elfa Gísladóttir og Anna Ólafsdóttir Björnsson - Höfundar

Elfa

Elfu Gísladóttur leikkonu bar oft á góma varðandi stofnun Stöðvar 2 á sínum tíma og þegar hún giftist Jóni Óttari Ragnarssyni. Elfa var mikið vestan hafs fyrstu átján ár ævi sinnar og síðastliðin átján ár en þess á milli bjó hún á Íslandi.

Lesa meira
 

Erla Sigurðardóttir - Íslenskir

Erla útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1988 og lauk svo prófi úr málaradeild listaskóla í Trier, Þýskalandi árið 1991. Hún hefur starfað við myndlist síðan hún luak námi. Erla hefur myndskreytt barnabækur frá árinu 1991 og ásamt því kennt við myndlistarskóla Kópavogs. Erla hefur hlotið margar innlendar sem erlendar viðurkenningar fyrir bókaskreytingar og árið 2001 var hún ein af fjórum bæjarlistamönnum Kópavogs.

Lesa meira
 

Eva Rún Þorgeirsdóttir - Íslenskir

Eva Rún Þorgeirsdóttir starfar sem jógakennari og kennir bæði börnum og fullorðnum. Hún hlaut jógakennararéttindi árið 2009 hjá Guðjóni Bergmann og lærði að kenna börnum jóga undir leiðsögn Gurudass Kaur Khalsa. Eva hefur einnig lært skapandi verkefnastjórnun við Kaospilot-háskólann í Danmörku og hefur starfað við ýmiss konar viðburðastjórnun, m.a. skipulagt viðburði fyrir börn. Auk þess hefur hún unnið við dagskrárgerð í sjónvarpi og blaðamennsku.

Lesa meira
 

Eyrún Ýr Tryggvadóttir - Íslenskir

Eyrun2

Eyrún Ýr Tryggvadóttir er fædd árið 1978, tveggja barna móðir og starfar sem forstöðumaður Bókasafnsins á Húsavík. Hún hefur sent frá sér þrjár skáldsögur. Sú fyrsta, Annað tækifæri (2004) fór aldrei í almenna dreifingu en árið 2008 kom út bókin Hvar er systir mín hjá Sölku og ári síðar sjálfstætt framhald þeirrar sögu, Fimmta barnið. Þriðja bókin, Ómynd, kom út árið 2011.


Hvar er systir mín og Fimmta barnið voru báðar tilnefndar til Blóðdropans, verðlauna Hins íslenska glæpafélags.

Lesa meira
 

Florence Helga Thibault - Íslenskir

f_helga

Florence Helga Thibault er alin upp í Frakklandi en heldur tryggð við Ísland, land móður sinnar, með því að senda ungum Íslendingum fallegar og litríkar Lúlúsögur. Hún hefur starfað við hönnun og myndskreytingar bæði hér og í Frakklandi.

Lesa meira
 

Freyja Haraldsdóttir & Alma Guðmundsdóttir - Íslenskir

Freyja og Alma

Freyja Haraldsdóttir er fædd 1986. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ jólin 2005 og stundar nú nám í þroskaþjálfafræði við Háskóla Íslands. Alma Guðmundsdóttir er fædd 1984. Hún var stuðningsfulltrúi Freyju um tíma og hreifst þá af viðhorfum hennar og óbilandi kjarki.

Lesa meira
 

Guðjón Ragnar Jónasson - Íslenskir

gudjon_ragnar_jonasson

Guðjón Ragnar Jónasson er fæddur í Reykjavík árið 1974. Um tíma var hann bóndi í Fljótshlíð, enda menntaður búfræðingur frá Hvanneyri. Í dag er hann hinsvegar kennari í Austurbæjaskóla í Reykjavík.

Lesa meira
 

Guðlaugur Arason - Íslenskir

Gudlaugur_Arason

Guðlaugur er fæddur á Dalvík árið 1950 og er Íslendingur. Hann hefur verið búsettur í Kaupmannahöfn frá árinu 1974. Guðlaugur gekk í Kaupmannahafnarháskóla til að læra bókmenntafræði og hefur ekki snúið heim til Íslands aftur, en hefur tekið að sér að kynna Ísland Dönum og Íslendingum Danmörku af miklum móð. Hann hefur kennt íslensku, rekið menningarhús á Vestur-Sjálandi og hefur hann um árabil verið leiðsögumaður Íslendinga í Kaupmannahöfn.

Lesa meira
 

Guðni Gunnarsson - Íslenskir

Gudni_Gunnarsson

Guðni hefur mikla reynslu af hug-og heilsurækt eftir að hafa starfað sem lífsráðgjafi í rúmlega 20 ár. Hann er meðal annars fyrsti einkaþjálfarinn á Íslandi og stofnandi og upphafsmaður GlóMotion og Rope Yoga hugmyndafræðinnar, sem nýtur vaxandi vinsælda bæði hérlendis og vestanhafs.

Lesa meira
 

Guðrún G. Bergmann - Íslenskir

Gudrun_Bergmann

Guðrún er frumkvöðull í umhverfisvænni ferðaþjónustu og vinnu að vottun fyrirtækja og félaga. Hún hefur skrifað fjölda bóka um sjálfsrækt og heilsumál og haldið ýmiss konar námskeið með áherslu á hugrænt atferli, heilsu og jákvæðni.

Lesa meira
 

Guðrún Hannesdóttir - Íslenskir

Gudrun_Hannesd

Frá árinu 1994 hefur Guðrún unnið við ritstörf og myndskreytingar eigin bóka fyrir börn. Frá sama tíma, og raunar lengur, hefur hún einnig safnað alþýðukveðskap úr skriflegri og munnlegri geymd og hefur úrval úr þessu efni birst í þremur bókum hennar.

Lesa meira
 

Guðrún Jóhannsdóttir - Íslenskir

Hollt_og_odyrt

Guðrún Jóhannsdóttir er gift og á tvö uppkomin börn. Á háskólaárunum bjó hún í mörg ár erlendis og kynntist matarhefðum bæði frakka og Kaliforníubúa. Innblásin af hversdagseldamennsku þessara þjóða hóf Guðrún að skrifa matarpistilinn "Til hnífs og skeiðar" fyrir Fréttablaðið haustið 2003 með áherslu á spennandi og ferska en ódýra rétti.

Lesa meira
 

Halla Þórlaug Óskarsdóttir - Íslenskir

Halla Þórlaug Óskarsdóttir (f. 1988) útskrifaðist af eðlisfræðibraut 1 Menntaskólans í Reykjavík árið 2008. Þá fór hún í Myndlistarskóla Reykjavíkur og þaðan lá svo leiðin í myndlistarnám við Listaháskóla Íslands en hún lýkur þar námi næsta vor.

Lesa meira
 

Hallgrímur Jónsson frá Laxamýri - Íslenskir

Hallgrimur_Jonsson

Saga Hallgríms Jónssonar frá Laxamýri, Reynsluslóðir lögreglumanns og íþróttakappa, er saga hvunndagshetju og afreksmanns, eftirminnileg lýsing á samfélagi og lífsbaráttu nýliðinnar aldar.

Lesa meira
 

Hallveig Thorlacius - Íslenskir

Hallveig_Thorl

Hallveig Thorlacius á ættir að rekja til sögukvenna og hefur notað sögurnar sem amma hennar sagði barnabörnum sínum í eldhúsinu sem efnivið í sérstakan frásagnarstíl. Hún notar leikbrúður og virkjar jafnframt áhorfendur sína til þátttöku - lætur börnin helst fara heim með þá tilfinningu að þeim hafi tekist að bjarga lífi söguhetjunnar.

Lesa meira
 

Harpa Dís Hákonardóttir - Íslenskir

Harpa_Dis_Hakonardottir

Harpa Dís Hákonardóttir er 18 ára Kópavogsbúi. Hún er á þriðja ári í Menntaskólanum við Hamrahlíð og lærir á píanó í Tónlistarskóla Kópavogs. Árið 2009 kom út fyrsta bók Hörpu Dísar, Galdrasteinninn og Fangarnir í trénu, sjálfstætt framhald hennar, árið 2011


Lesa meira
 

Harpa Jónsdóttir - Íslenskir

Harpa_Jonsdottir

Harpa er ekki síður þekkt sem textíllistamaður og áhugaljósmyndari, en sem rithöfundur. Hún hefur haldið einkasýningar á útsaumsverkum sínum, meðal annars á torgi Þjóðminjasafnsins og í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Verk hennar hafa birst í erlendum blöðum og tímaritum og hún hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir þau. Harpa var bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar árið 2002.

Lesa meira
 

Helene Magnusson - Íslenskir

Helen Magnusson

Hélène Magnússon fæddist í Frakklandi árið 1969. Hún lauk meistaraprófi í lögum og starfaði um skeið sem lögmaður í París. Árið 1995 söðlaði hún um og flutti til Íslands þar sem hún hóf myndlistar- og hönnunarnám. Hún á þrjár dætur og starfar nú sem sjálfstæður hönnuður.

Lesa meira
 

Hendrikka Waage - Íslenskir

Hendrikka

Hendrikka Waage er þekktur alþjóðlegur skartgripahönnuður og er fyrsti Íslendingurinn sem hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu á því sviði. Hendrikka er forseti og einn af stofnendum Alþingis barna sem eru góðgerðasamtök með höfuðstöðvar i Vín, Austurríki.

Lesa meira
 

Hildur Hákonardóttir - Íslenskir

Hildur Hákonardóttir

Hildur Hákonardóttir fæddist í Reykjavík árið fyrir seinni heimstyrjöldi. Hún ólst upp í borgarjaðrinum þar sem hún lærði að rækta og una sér við alls konar jarðargróður. Hildur hefur komið víða við og verið viðloðandi ýmsar hræringar í þjóðfélaginu sem voru á döfinni á árunum frá 1968 og fram undir 1980. Hún tók virkan þátt í kvennabaráttunni og var meðlimur í SÚM hópnum.

Lesa meira
 

Hlín Agnarsdóttir - Íslenskir

hlin_agnars

Hlín Agnarsdóttir er leikstjóri, leikskáld, leiklistarráðunautur og rithöfundur. Hún gaf út bókina Að láta lífið rætast - Ástarsaga aðstandanda hjá Sölku.

Lesa meira
 

Hrefna Rósa Sætran - Íslenskir

Hrefna_Saetran

Kokkinn Hrefnu Rósu Sætran þarf vart að kynna, en hún er einn eigandi Fiskmarkaðarins sem staðsettur er í Aðalstræti 12 í Reykjavík. Hún hefur vakið athygli fyrir ungan aldur, langa afrekaskrá, og þroskaðan og sérhæfðan smekk. Hrefna keppir fyrir hönd Íslands í kokkalandsliðinu og hefur verið með eigin matreiðsluþætti á Skjá einum.

Nú hefur hún bætt enn einni rósinni í hnappagatið með sinni fyrstu bók, Fiskmarkaðurinn

Lesa meira
 

Hugo Þórisson - Íslenskir

hugo

Hugo Þórisson sálfræðingur er mörgum að góðu kunnur. Hann hefur starfað að bættum samskiptum barna og foreldra í yfir 30 ár og hjálpað ótal fjölskyldum.

Lesa meira
 

Iðunn Steinsdóttir - Íslenskir

Iðunn Steinsdóttir

Iðunn Steinsdóttir fæddist á Seyðisfirði árið 1940. Hún lauk stúdentsprófi frá MA árið 1960 og kennsluréttindaprófi frá KHÍ 1981. Árið 1982 kom fyrsta bók hennar út og síðan 1987 hefur hún að mestu leyti stundað ritstörf. Iðunn hefur skrifað bækur fyrir börn á öllum aldri og einnig fyrir unglinga.

Lesa meira
 

Ingibjörg Hjartardóttir - Íslenskir

Ingibjorg_Hjartadottir

Ingibjörg Hjartardóttir er fædd á Tjörn í Svarfaðardal 18. maí 1952, dóttir hjónanna Hjartar Eldjárns Þórarinssonar og Sigríðar Hafstað. Hún ólst upp á Tjörn ásamt sex systkinum. Hún er bókasafnsfræðingur að mennt og vann lengst framan af á ýmsum bókasöfnum, bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Frá 1995 hefur hún að mestu leyti fengist við ritstörf þó hún hafi inn á milli tekið hlutastörf m.a verið forstöðumaður Bókasafns Ólafsfjarðar í nokkur ár.
Eiginmaður hennar er Ragnar Stefánsson, jarðskjálftafræðingur og synir hennar eru Þórarinn Hugleikur Dagsson, myndasöguhöfundur og leikskáld og Þormóður Dagsson, bókmenntafræðingur og blaðamaður.

Lesa meira
 

Ingibjörg Vilbergsdóttir og Nancy Myer - Íslenskir

Nancy er tengdamóðir Ingibjargar og þær búa í sitthvorri heimsálfunni, Nancy í Bandaríkjunum og Ingibjörg á Íslandi. Sonur Ingibjargar er fyrirmynd söguhetjunnar Daníel sem sagan Flugvélakossar fjallar um. Ingibjörg og Nancy eru báðar grunnskólakennarar sem hafa mikinn áhuga á barnabókmenntum.

Lesa meira
 

Jóhannes Eiríksson - Íslenskir

Njala

Jóhannes Eiríksson, prentari er áhugaljósmyndari og mikill áhugamaður um sögu Íslands og fornsögunnar.

Lesa meira
 

Karen Kristín Ralston - Íslenskir

Karen Kristín Ralston er Bandaríkjamaður, búsett á Íslandi með íslenskum eiginmanni sínum. Þau eiga saman fjögur börn en tvö barna þeirra hafa verið greind með einhverfu.

Lesa meira
 

Kristian Guttesen - Íslenskir

kristian_guttesen

Kristian, fæddur árið 1974, er búsettur í Reykjavík. Kristian er fæddur í Danmörku árið 1974 þar sem hann ólst upp fyrstu ár ævi sinnar. Hann bjó á Íslandi 1980 - 1981 og frá 1985, en dvaldi við nám í Bretlandi frá 1995 þar sem hann lauk prófi í hugbúnaðarverkfræði, Software Engineering (BS), frá University of Glamorgan í Wales 1999.

Lesa meira
 

Kristín Arngrímsdóttir - Íslenskir

Kristin-Arngrimsdottir

Kristín er fædd árið 1953. Hún er með próf frá myndlista-og handíðaskóla Íslands og lauk MA gráðu í myndlist í Bretlandi. Auk þess er hún með BA gráðu í ensku og listasögu. Kristínhefur starfað sem myndlistakona, myndmenntakennari, safnkennari og bókavörður og hefur hún einnig haldið fjölda sýninga á verkum sínum. Kristín vinnur aðallega með vatnslitum, þurrkrít og klippimyndum.

Lesa meira
 

Kristín Ómarsdóttir - Íslenskir

Kristín Ómarsdóttir

Kristín Ómarsdóttir er fædd 24. september 1962 í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hún lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskóla í Hafnarfirði 1981, stundaði síðan nám í bókmenntum og spænsku við Háskóla Íslands og nám í spænsku við háskóla í Barcelona og Kaupmannahöfn. Kristín hefur jöfnum höndum fengist við ljóða- og skáldsagnagerð, smásögur og leikritun. Bækur eftir Kristínu hafa verið þýddar á önnur mál og ljóð hennar hafa birst í erlendum safnritum.

Lesa meira
 

Kristjana María Kristjánsdóttir - Íslenskir

Kristjana María Kristjánsdóttir er grunnskólakennari á unglingastigi og hefur starfað með ungu fólki á ýmsum sviðum. Carpe diem er fyrsta skáldsaga Kristjönu Maríu en hún hefur samið þrjú leikrit sem sett hafa verið upp með unglingum víða um land.

Lesa meira
 

Kristján Hreinsson - Íslenskir

kristjan-hreinsson

Kristján er fæddur árið 1957. Hann er oft kallaður “Skerjafjarðarskáldið” og er hann landanum allvel kunnur fyrir ljóð sín og texta.

Lesa meira
 

Kristján Ingi Einarsson - Íslenskir

Kristjan_Ingi_Einarsson

Kristján Ingi hefur tekið ljósmyndir frá tíu ára aldri, er hann eignaðist sína fyrstu kassamyndavél. Hann starfaði lengi sjálfstætt sem ljósmyndari fyrir ýmis blöð, tímarit, fyrirtæki og stofnanir, eða þar til ársins 1985 er hann tók við rekstri Leturprents ehf. Hann rak prentsmiðjuna til haustsins 2006 þegar hann seldi fyrirtækið og tók aftur upp myndavélina.

Lesa meira
 

Lilja Sólrún Halldórsdóttir - Íslenskir

Lilja_Solrun

Lilja Sólrún greindist með brjóstakrabbamein og fór í kjölfarið í lyfjameðferð sem hafði slæmar aukaverkanir. Í bók sinni Er lítið mein yfirtók líf mitt fjallar Lilja Sólrún um reynslu sína, hún lítur til baka og dregur upp svipmyndir minninga.

Lesa meira
 

Lovísa María Sigurgeirsdóttir - Íslenskir

Loa_Maja

Lóa Maja er fædd og uppalin í Hrísey og er afar mikill Hríseyingur. Hún er næstyngst af fjórum systkynum og fjögurra barna mamma. Hún er mikil fjölskyldumanneskja og auk þess dýravinur.

Lesa meira
 

Lóa Pind Aldísardóttir - Íslenskir

Lóa Pind Aldísardóttir

Lóa Pind Aldísardóttir hafði lengi skrifað og unnið fyrir blöð og fjölmiðla þegar hún lagði á brattann og mætti með þykkan handritsbunka í grænni tösku inn á forlagsskrifstofu Sölku sumarið 2007 og óskaði eftir útgáfu. Fyrsta skáldsagan Sautjándinn kom út um haustið. Hún býr í Reykjavík og á tvo syni og eina stjúpdóttur.

Lesa meira
 

Margrét Lóa Jónsdóttir - Höfundar

Margret_loa

Margrét Lóa writes poetry and her first published work, the poetry collection Glerúlfar (Glass Wolves), came out in 1985. She has been the publisher of many of her own books and has also designed and illustrated them. In addition to her poetry books, Margrét Lóa has conducted a sound structure which was performed in the gallery Hlust and a book-art piece for Gallerí Barmur (Gallery Chest; a moveable gallery situated on people's chests). She has been a creative writing teacher at workshops run for children by the Reykjavík City Library and also in the Gerðuberg Cultural Center in Reykjavík. She was the editor of the literary magazine Andblær for two years.

Lesa meira
 

Pjetur Hafstein Lárusson - Íslenskir

pjetur

Pjetur Hafstein Lárusson fæddist í Vestmannaeyjum 31. ágúst 1952, en flutti á fyrsta ári upp á fastalandið. Þegar hann var tvítugur lá leið hans til Svíþjóðar, þar sem hann stundaði nám í blaðamennsku. Fyrsta ljóðabók Pjeturs, Leit að línum, kom út árið 1972, en alls eru frumortar ljóðabækur hans nú orðnar fjórtán að tölu.

Lesa meira
 

Rafn Hafnfjörð - Íslenskir

Rafn hefur átt drjúgan þátt í að koma Íslandi á framfæri frá því hann byrjaði að taka myndir árið 1955. Myndir hans hafa birst á ýmsum vettvangi, s.s. á póstkortum, í bæklingum, dagatölum, frímerkjum og vefsíðum. Rafn hefur haldið fjölda ljósmyndasýninga, bæði hérlendis sem erlendis.

Lesa meira
 

Reynir Ingibjartsson - Íslenskir

Reynir_Ingibergsson

Reynir er mikill útivistarmaður og komið að mörgum verkefnum sem snúa að því að útbúa leiðarlýsingar og kort um áhugaverða staði og landssvæði. Nýjasta viðbótin við höfundarverk Reynis er göngubókaflokkur sem Salka gefur út.

Lesa meira
 

Sigríður Gunnarsdóttir - Íslenskir

sigridur

Sigríður er fædd árið 1946 á Hjarðarfelli og uppalin þar. Hún varð B.A. frá Háskóla Íslands árið 1969. Sama ár flutti Sigríður til Haïti og svo til Frakklands 1970. Hún hefur búið í París síðan.

Lesa meira
 

Sigríður Klingenberg - Samstarfsaðilar

Sigridur_Klingenberg_cd

Þessi þekktasta spákona Íslands hefur nú gefið út spennandi spáspil og sjálfseflingar-disk, sem fást hér hjá okkur í Sölku.

Lesa meira
 

Sigrún Huld Þorgrímsdóttir - Íslenskir

Sigrun_Huld

Sigrún Huld Þorgrímsdóttir er fædd 1952 í Garði í Mývatnssveit. Hún er hjúkrunarfræðingur og starfar nú við hjúkrun aldraðra. Hún hefur lengi haft áhuga á sögu lands og þjóðar og iðulega nýtt þann áhuga til að mynda betri tengsl við skjólstæðinga sína.

Lesa meira
 

Sigrún María Kristinsdóttir - Íslenskir

sigrun

Sigrún María Kristinsdóttir hefur starfað sem blaðamaður á Íslandi og í Kanada í nær tvo áratugi, og stundar nú doktorsnám í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands. Hún er einnig verðandi móðir ættleidds barns frá Tékklandi,

Lesa meira
 

Sigurður A. Magnússon - Íslenskir

sigurdur_A

Sigurður A Magnússon er mikilsvirtur rithöfundur, skáld og fræðimaður. Hann hefur unnið ötullega að félagsmálum og gengt formannsstöðu í fjölmörgum samtökum, þ.á.m. Félagi íslenskra leikdómenda og Rithöfundasambands Íslands. Sigurður er einnig þekktur fyrir ferðabækur sínar og leiðsöguferðir um framandi slóðir, þ.á.m. um Austurlönd nær, Grikkland, Indland, Nepal, Japan og Brasilíu.

Lesa meira
 

Sigurður Skúlason - Íslenskir

Sigurður Skúlason er fæddur árið 1946. Hann hefur starfað sem leikari og hefur leikið mörg aðalhlutverk á sviði, en einnig í bíómyndum og sjónvarpsmyndum. Auk þess hefur hann einnig fengist töluvert við ritstörf; þýðingar, frumsmíð, þáttagerð fyrir útvarp o.fl.

Lesa meira
 

Sigurjón Pétursson og Þóra Hrönn Njálsdóttir - Íslenskir

Sigurjon_og_Thora_svhv

Sigurjón Pétursson og Þóra Hrönn Njálsdóttir eru áhugaljósmyndarar búsett í Hafnarfirði. Þau Sigurjón og Þóra Hrönn hafa farið víða um heim til ljósmyndunar og hafa ljósmyndað á Íslandi í fjóra áratugi auk þess sem þau hafa m.a. ljósmyndað í Alaska, Norður-Ameríku, Kína, Innri Mongólíu, Lebanon, Namibíu og á Grænlandi.

Lesa meira
 

Snorri Birgir Snorrason og Hunang - Höfundar

supa_og_stoll

Snorri Birgir Snorrason er reyndur og víðförull kokkur. Hann hefur unnið víða í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan. Snorri átti og rak Sticks´n´Sushi, einn af vinsælli veitingastöðum borgarinnar um árabil. Hunang samanstendur af grafísku hönnuðunum þeim Ragnhildi Ragnarsdóttur og Sigrúnu Sigvaldadóttur. Þær eru hugmyndasmiðir bókarinnar Súpa og stóll ásamt Snorra.

Lesa meira
 

Sólveig Anna Bóasdóttir - Íslenskir

solveig-anna-boasdottir

Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir er lektor í guðfræðilegri siðfræði við Háskóla Íslands.

Lesa meira
 

Sr. Bragi Skúlason - Íslenskir

Sr. Bragi Skúlason er fæddur 1957. Hann lauk prófi frá H.Í. 1982 og kennsluréttindum frá H.Í. 1983. Hann starfaði sem sóknarprestur í fríkirkjunni í Hafnarfirði, í söfnuði Vestur-Íslendinga í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum og í Vestmannaeyjum. Hann lauk sérnámi í sálgæslu í Minneapolis 1987 og hóf störf á Landspítala háskólasjúkrahúsi 1989 og hefur starfað þar síðan.

Lesa meira
 

Stefanía Guðbjörg Gísladóttir - Íslenskir

Stefanía Guðbjörg Gísladóttir er fædd í Seldal, Norðfirði árið 1959 og alin upp í níu systkina hópi. Hún er sjúkraliði að mennt og hefur unnið fjölbreytileg störf, þ.á,m. við búskap.

Lesa meira
 

Steinunn Þorvaldsdóttir og Ragnhildur Gísladóttir - Íslenskir

Ragga-Gisla-og-Steinunn-

Steinunn Þorvaldsdóttir starfar sem textahöfundur, líkamsræktarþjálfari og almannatengslaráðgjafi. Ragnhildur Gísladóttir er ein ástsælasta tónlistarkona þjóðarinnar og sennilega þekktust fyrir að hafa verið meðlimur Stuðmanna og Grýlanna.

Lesa meira
 

Stella Sigurgeirsdóttir - Íslenskir

Stella Sigurgeirsdóttir er myndlistarkona. Hún lauk B.A. prófi frá Listaháskóla Íslands (LHÍ) árið 2000 og B.Ed. prófi frá myndlistarskori Kennaraháskóla Íslands (KHÍ) árið 1996.  Jafnframt því að starfa við myndlist hefur hún unnið við sjónvarp, kvikmyndir og leikhús og þá einkum við gerð leikmynda, leikmuna og búninga. Auk þess hefur Stella fengist við kennslu og leiðsögn. Stella býr einnig til barnaleikföng og ýmsa muni undir merkinu Slowstars.

Lesa meira
 

Thomas Möller - Íslenskir

Thomas_Moller_svhv-1

Thomas Möller er hagverkfræðingur og MBA. Hann starfar sem framkvæmdastjóri og eigendi Rýmis-Ofnasmiðjunnar ehf. auk þess að starfa sem ráðgjafi hjá eigin ráðgjafarfyrirtæki, Consultis ehf.  Thomas er einnig kennari í Vörustjórnun í Viðskiptafræðideild HR.

Lesa meira
 

Unnur Sólrún Bragadóttir - Íslenskir

Unnur er fædd árið 1951. Hún er með háskólapróf í bókmenntafræði, hagsögu og uppeldis- og kennslufræði. Unnur er kennari en stundar nú nám í Svíþjóð.

Lesa meira
 

Úlfar Finnbjörnsson - Íslenskir

ulfar_hofundamynd

Úlfar Finnbjörnsson er ástríðufullur veiðimaður sem hefur brennandi áhuga á að nýta bráðina sem best. Úlfar hefur stundum verið nefndur villti kokkurinn, enda fer hann víða og stundar fjölbreytta veiðimennsku auk þess að vera matreiðslumeistari á heimsmælikvarða. Hann er þó sannkölluð fyrirmynd annarra veiðimanna og umgengst náttúruna af sannri virðingu.

Lesa meira
 

Valgeir Skagfjörð - Íslenskir

Valgeir Skagfjörð

Umfjöllun væntanleg ...

Lesa meira
 

Vilhelm Gunnarsson - Íslenskir

vilhelm

Vilhelm Gunnarsson hefur starfað sem ljósmyndari á Fréttablaðinu síðan 2003 og myndað marga merkisatburði í sögu þjóðarinnar – Vilhelm Gunnarsson has worked as a photographer for the Fréttablaðið newspaper since 2003 and has witnessed and shot many historical events in Iceland, though none have affected him as strongly as the Eyjafjallajökull eruption.

Lesa meira
 

Völundur Snær Völundarson - Íslenskir

Völundur Snær

Meistarakokkurinn Völundur Snær Völundarson er fæddur í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu Völundur lauk námi í Hótel og veitingaskóla Íslands, með prófi árið 1995, en samhliða náminu starfaði hann á veitingahúsi Perlunnar. Ári síðar gerðist Völundur Snær lærlingur við veitingastaðinn "Domaine de Clairefontaine" sem rekinn er af matreiðslumeistaranum Philippe Girardon (Meilleurs Ouvrier de France 1997). Árið 1997 lagði Völundur leið sína til Bandaríkjanna, þar sem hann réðist sem matreiðslumaður við The Colombia Gorge Hotel í Hood River í Oregonfylki. Völundur sneri aftur heim árið 1998 og starfaði um skeið í Mosfellsbakaríi. Þaðan fór hann aftur til Bandaríkjanna og hóf störf við hinn rómaða veitingastað Charlies Trotters í Chicago.Völundur Snær sneri aftur heim til Íslands vorið 1999 og tók til starfa sem næstæðsti matreiðslumaður við Hótel Holt í Reykjavík og vann þá með matreiðslumeistaranum Hákoni Má Örvarssyni.

Lesa meira
 

Þorbjörg Hafsteinsdóttir - Íslenskir

Thorbjorg

Þorbjörg Hafsteinsdóttir er hjúkrunarfræðingur að mennt og næringarþerapisti. Í yfir tuttugu ár hefur hún rannsakað mataræði og nútímalífsstíl og komist að niðurstöðu um hvers konar matur, vítamín og bætiefni viðhalda best æsku og lífsþrótti.

Lesa meira
 

Þóra Jónsdóttir - Íslenskir

Thora_Jonsdottir

Þóra Jónsdóttir frá Laxamýri er ein athyglisverðasta samtímaskáldkona okkar. Hún yrkir meðal annars um ástina, náttúruna og órjúfanleg tengsl við fortíðina. Ljóð Þóru hafa sterkan heildarsvip og henni tekst sífellt að koma lesanda sínum á óvart.

Lesa meira
 

Þóra Sigurðardóttir - Íslenskir

Thora_hofundur

Þóra hefur um árabil starfað hjá ýmsum fjölmiðlum við dagskrárgerð, blaðamennsku og pistlaskrif, auk þess að sinna ritstörfum og þýðingum. Hún er m.a. fyreverandi umsjónarmaður Stundinnar okkar, höfundur unglingabókarinnar Ef þú bara vissir, þýðandi bókarinnar Japanskar konur, hraustar og grannar og pistlahöfundur á pressan.is. Hún býr nú á Bahamaeyjum ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum, þar sem þau reka veitingastað og fást við þáttagerð.

Lesa meira
 

Þórarinn Hjartarson - Íslenskir

Þórarinn Hjartarson

Þórarinn Hjartarson er fæddur á Tjörn í Svarfaðardal árið 1950. Síðustu tíu árin hefur hann einkum unnið við skriftir auk þess sem hann syngur og kveður ef þess er óskað. Sumarið 2008.kom út bókin Eg skal kveða um eina þig alla mína daga - Ástarljóð Páls Ólafssonar sem Þórarinn tók saman.

Lesa meira
 

Þórey Vilhjálmsdóttir og Lóa Auðunsdóttir - Íslenskir

Þær Þórey og Lóa voru heilt ár að safna hugmyndum fyrir bókina Reykjavík barnanna sem Salka gefur út. Þórey átti hugmyndina en Lóa skrifaði og hannaði bókina.

Lesa meira
 

Þórhallur Heimisson - Íslenskir

thorh.mynd

Þórhallur Heimisson varð stúdent frá Menntaskólann að Laugarvatni árið 1981. Hann nam sagnfræði við Háskóla Íslands 1981-1982 en lauk kandidatsprófi í guðfræði frá sama skóla 1988 og vígðist prestur 1989. Þórhallur stundaði framhaldsnám í trúarbragðafræðum við Árósarháskóla í Danmörku 1990-1992 og við Uppsalaháskóla í Svíþjóð 1993-1996. Stundaði hann prestsstörf í sænsku kirkjunni á sama tíma.

Lesa meira
 

Þuríður Stefánsdóttir - Íslenskir

Thura_fordun_fyrir_net

Þura lærði tísku- og ljósmyndaförðun hjá myndlistarkonunni og förðunarmeistaranum Línu Rut Karlsdóttur. Auk þess er hún snyrtifræðingur með meistara- og alþjóðleg Cidescoréttindi í snyrtifræðum. Þetta er athafnasöm ung kona sem kom inn á ritstjórn Sölku með skýra hugmynd í kollinum um þá bók sem hún vissi að vantaði á íslenskan markað.

Lesa meira
 

Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica