Guðrún Hannesdóttir
Guðrún Hannesdóttir
Frá árinu 1994 hefur Guðrún unnið við ritstörf og myndskreytingar eigin bóka fyrir börn. Frá sama tíma, og raunar lengur, hefur hún einnig safnað alþýðukveðskap úr skriflegri og munnlegri geymd og hefur úrval úr þessu efni birst í þremur bókum hennar.
Guðrún starfaði sem bókasafnsfræðingur í mörg ár, m.a. Bókasafni Listasafns Íslands, Bókasafni Listaháskóla Íslands, Bókasafni Myndlistarskólans í Reykjavík. Hún var forstöðumaður á læknisfræðibókasafni Landakotsspítala 1979-1994.
Guðrún hefur haldið erindi tengd vísnasöfnun sinni og hafa tvö þeirra birst á prenti “Guð gaf mér eyra…” (Börn og menning 1. tbl. 2003) og “Hver var að hlæja?” (Börn og menning 1. tbl. 2007).
Guðrún sat í stjórn samtakanna Barna og bóka, Íslandsdeildar Ibby. Samtökin gefa út tímaritið Börn og menningu og sat Guðrún í ritstjórn þess til 2002. Hún er félagi í Rithöfundasambandi Íslands og SÍUNG. Árið 1994 hlaut hún viðurkenningu Íslandsdeildar Ibby fyrir bókina Gamlar vísur handa nýjum börnum. Hún hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin (ásamt Sigrúnu Helgadóttur) fyrir bókina Risinn þjófótti og skyrfjallið 1996. Bókin Risinn þjófótti og skyrfjallið var á heiðurslista Ibby á alþjóðaráðstefnu í Delhi 1998. Henni var veitt sérstök viðurkenning fyrir ljóðið “Þar” í ljóðasamkeppninni “Ljóðstafur Jóns úr Vör”, sem Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar stendur fyrir 2004. Guðrún hlaut “Ljóðstaf Jóns úr Vör” fyrir ljóðið “Offors”2007.
Bækur Guðrúnar Hannesdóttur:
- Gamlar vísur handa nýjum börnum (GH safnaði og myndskreytti). Reykjavík: Forlagið 1994. Hlaut viðurkenningu Íslandsdeildar Ibby. Sama ár veittu Samtök iðnaðarins prentsmiðjunni Odda viðurkenningu vegna vandaðrar prentvinnu við bókina.
- Fleiri gamlar vísur handa nýjum börnum (GH safnaði og myndskreytti). Reykjavík: Forlagið 1995. Risinn þjófótti og skyrfjallið (höfundur: Sigrún Helgadóttir; GH myndskreytti). Reykjavík: Vaka-Helgafell 1996. Hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 1996; tekin á heiðurslista Ibby á alþjóðaráðstefnu í Delhi 1998.
- Sagan af skessunni sem leiddist (GH myndskreytti eigin sögu). Reykjavík: Forlagið 1997.
- Kerling vill hafa nokkuð fyrir snúð sinn (þjóðsaga; GH myndskreytti). Reykjavík: Forlagið 1998.
- Eina kann ég vísu... (GH safnaði og myndskreytti). Reykjavík: Forlagið 1999.
- Einhyrningurinn (GH myndskreytti eigin sögu). Reykjavík: Bjartur, 2001.
- Sagan af Pomperipossu með langa nefið (GH þýddi og myndskreytti sögu Axels Wallengrens). Reykjavík: Bjartur 2001.
- Hvar? (GH myndskreytti eigin sögu). Reykjavík: Bjartur 2003.
- Gormur: saga um tólf litla ánamaðka (GH myndskreytti eigin sögu) prentuð í tilraunaskyni í nokkrum eintökum 2006.
- Guðrún myndskreytti söguna “Ögurstund” í samvinnu við Vilborgu Dagbjartsdóttur í bókinni “Heil brú” sem gefin var út af Máli og menningu 2007.
- Fléttur – ljóðabók. Reykjavík: Bókaútgáfan Salka 2007.
- Staðir. Reykjavík: Bókaúgáfan Salka 2010.
Hreyfimyndir eftir verkum Guðrúnar Hannesdóttur:
Ríkisútvarpið Sjónvarp hefur ákveðið að gera hreyfimyndir til sýningar veturinn 2007-2008 eftir tveim bókum Guðrúnar: Sagan af Pomperipossu með langa nefið og Hvar?
Guðrún Hannesdóttir hefur sýnt bókaskreytingar sínar á eftirfarandi stöðum:
1997: Á alþjóðaráðstefnu IFLA í Bella Center, Kaupmannahöfn 31. ágúst til 5. september.
1997-1998: Á sýningu menningarstofnunarinnar Katholische Akademie í Hamborg í samvinnu við menntamálaráðuneytið, þar sem kynnt var íslensk barnamenning, 6. nóvember 1997 til 16. janúar 1998.
1998: Á sýningunni “Myndskreytingar í íslenskum barnabókum” í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, 17. febrúar til 29. mars.
1998: Á samsýningu Fyrirmyndar-FÍT í Listasafni ASÍ við Freyjugötu, 10. til 25. janúar. 1998: Sýning á bókum á heimsþingi IBBY samtakanna í Delhi, Indlandi.
1999: Einkasýning á Súfistanum, bókaverslun Máls og menningar, í desembermánuði.
2000: Á fyrstu norrænu barnabókamessunni í Øxnehallen, Kaupmannahöfn, 18. til 20. febrúar. 2000: Einkasýning í Bókasafni Mosfellsbæjar 14. apríl til 10. maí.
2000: Á norrænni ráðstefnu: “Myndabók, billedbok, kuvakirja” á vegum Ord & Bilde í Bergen 9. til 10. nóvember. Flutti þar fyrirlestur um efnið “Om att lage bilderböker utfra tradisjonsstoff.”
2001: Á samsýningu í Grófarsal Borgarbókasafns Reykjavíkur : “Myndir úr íslenskum barnabókum”.
2002-2003: Á sýningu norrænna bókaskreytinga í Bolzano, Ítalíu, á vegum Associazione Teatrio í Feneyjum. Sýningin var sett upp víðar á Ítalíu.
2003: Sýning á myndskreytingum úr nýjum íslenskum barnabókum, “Þetta vilja börnin sjá!” opnuð 22. nóvember.
2005: Biennial of Illustrations Bratislava (BIB)
2006: Sýning á myndskreytingum úr nýjum íslenskum barnabókum “Þetta vilja börnin sjá!” í Gerðubergi, og víðar um land.
2007: Sýning á myndskreytingum úr nýjum barnabókum “Þetta vilja börnin sjá” í Gerðubergi og víðar.

