Hildur Hákonardóttir
Hildur Hákonardóttir
Hildur Hákonardóttir fæddist í Reykjavík árið fyrir seinni heimstyrjöldi. Hún ólst upp í borgarjaðrinum þar sem hún lærði að rækta og una sér við alls konar jarðargróður. Hildur hefur komið víða við og verið viðloðandi ýmsar hræringar í þjóðfélaginu sem voru á döfinni á árunum frá 1968 og fram undir 1980. Hún tók virkan þátt í kvennabaráttunni og var meðlimur í SÚM hópnum.
En þegar innkaupa- og neysluþjóðfélagið tók við söðlaði Hildur um og flutti á lítið grasbýli í Ölfusinu. Þaðan stundaði hún vefnað, stjórnaði Byggða- og listasafni Árnessýslu og ræktaði grænmeti til heimilisins. Eftir alvarlegt bílslys minnkuðu öll umsvif og þegar söfnin fluttu frá Selfossi á Eyrarbakka og í Hveragerði sneri Hildur sér að því að koma niður á blað ýmsu því sem hún hefur verið að iðja við um ævina. En ræktunina og samlíf við plöntur og handverkskonur í Þingborg stunda hún áfram eftir getu.

Hildur og Þór eiginmaður hennar

