forlag með sál
  • Ari_Kr

Ari Kr. Sæmundsen

Ari Kr. Sæmundsen

Íslenskir

Ari Kr. Sæmundsen rekur innflutningsfyrirtækið Gróco ehf. sem státar af titlinum fyrirmyndarfyrirtæki VR 2008. Hann er doktor í veirufræði og var einhverju sinni kallaður menntaðasti heildsali landsins í Nýju Lífi. Ari þekktur fyrir leiftrandi frásagnargleði og nýlega kom út smásagnasafn eftir hann, sem nefnist Með stein í skónum.

Eitt af þjóðareinkennum Íslendinga er taumlaus frásagnargleði og ærlegur sögumaður er síður en svo feiminn við a kríta liðugt ef svo ber undir. Sögur Ara bera þess sannarlega merki.

„Haft var eftir útlendingi sem eitt sinn heimsótti landið að sér virtist sem allir Íslendingar spiluðu á hljóðfæri og hefðu gefið út a.m.k. eina bók. Ef tambórína og gyðingaharpa flokkast sem hljóðfæri þá þótti ég nokkuð efnilegur á mínum yngri árum, en ég átti alltaf eftir að skrifa bók. Nú er ég búinn að því. Í þeim smásögum, sem hér birtast, er sumt satt en mest er uppspuni. Sögusviðið er margbreytilegt og sögurnar má sjálfsagt flokka sem gamansögur, en í flestum þeirra er þó að finna einhver skilaboð. Ég læt þér efitr, lesandi góður, að rýna í þau skilaboð, en vona að þú skemmtir þér eins vel við lesturinn og ég gerði við skriftirnar."

- Ari Kr. Sæmundsen

 




Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica