Iðunn Steinsdóttir
Iðunn Steinsdóttir
Iðunn Steinsdóttir fæddist á Seyðisfirði árið 1940. Hún lauk stúdentsprófi frá MA árið 1960 og kennsluréttindaprófi frá KHÍ 1981. Árið 1982 kom fyrsta bók hennar út og síðan 1987 hefur hún að mestu leyti stundað ritstörf. Iðunn hefur skrifað bækur fyrir börn á öllum aldri og einnig fyrir unglinga.
Tvær bóka hennar, Víst er ég fullorðin og Þokugaldur, eru skrifaðar með fullorðna lesendur í huga, ekki síður en unglinga. Í þeirri síðarnefndu leitar hún í þjóðsagnaarfinn. Haustgríma er eina bók hennar sem var markaðssett fyrir fullorðna. Hún byggir á frásögn úr Landnámabók.
Meirihlutinn af bókum Iðunnar er miðaður við lesendur á aldrinum níu til tólf ára. Tvær þeirra gerast í ímyndaðri veröld og skírskotar önnur, Fjársjóðurinn í Útsölum, til hörmunganna í Júgóslavíu undir lok 20. aldar en hin, Gegnum þyrnigerðið, til sameiningar Evrópu eftir að járntjaldið féll. Hún hefur jafnframt komið út í Þýskalandi undir nafninu Durch die Dornenhecke.
Nokkrar bókanna eru byggðar á bernskuminningum og
lýsa lífinu í smábæ upp úr miðri öldinni.
Af bókum hennar fyrir lítil börn má nefna Drekasögu sem var gefin út samtímis á íslensku og ensku, Dragon Story, og seríu með fjórtán smábókum um óþekktarangana Snuðru og Tuðru, sem eru nokkurs konar handbækur í uppeldi með afar glettnu ívafi.
Iðunn hefur um árabil skrifað námsbækur fyrir grunnskólann og Umferðarráð. Hún hefur líka skrifað á annan tug leikrita. Flest þeirra eru unnin í samvinnu við systur hennar, Kristínu Steinsdóttur og hafa nokkur þeirra verið sýnd víða um land og eitt í Færeyjum.
Iðunn hefur hlotið margskonar verðlaun og viðurkenningar, en ber þar helst að nefna Íslensku Barnabókaverðlaunin, heiðurslaun Bókasafnssjóðs og að vera kjörin heiðursfélagi Rithöfundasambands Íslands.
Iðunn Steinsdóttir was born on January 5, 1940 in Seyðisfjörður. After highschool she went on to study at Iceland's Teacher Training College, and graduated in 1981. Iðunn worked for the Coastal Shipping Line from 1960 - 1962 and then taught in children's schools for some years, both in Húsavík in the north of Iceland and in Reykjavík. Since 1987 she has concentrated on her writing career. Iðunn was a member of the board of Húsavík's Drama Company from 1968 – 1972, and sat on the board of the Soroptimist-club of Reykjavík from 1989 - 1991. She was on the editorial board of the journal Children and Books, published by IBBY in Iceland from 1985 – 1989, and co-edited the book Dagamunur (Make a Day of It), to commemorate the 70th anniversary of the Women's Clubs Association of the People of Þingeyjasýsla South (Kvenfélagssambands Suður-Þingeyinga 1975). Iðunn is the chairman of Children and Books, the Icelandic department of the IBBY association.
Iðunn Steinsdóttir's first published work was the children's book Knáir krakkar (Clever Kids) in 1982 and since then she has sent forward numerous children's books, among them the hugely popular books about the two pranksters Snuðra and Tuðra. Many short stories by Iðunn have appeared in the children's magazine Æskan (Youth), and she has also written stories for the children's hour on radio and television. Iðunn has written manuscripts for television films and series for children as well a writing the manuscript for the educational film Ég veðja á Ísland (I Put My Money on Iceland), for The National Centre for Educational Materials. She has written a number of textbooks for primary schools, as well as children's textbooks for The Icelandic Traffic Council. She has written many lyrics for songs. Iðunn has co-authored plays together with her sister, writer Kristín Steinsdóttir. Iðunn has received a number of awards for her writings.
VERK BIRT Á ÍSLENSKU
Útkomnar bækur:
Knáir krakkar Bókhlaðan, Rv. 1982
Fúfú og fjallakrílin Bókhlaðan, Rv. 1983
Fjallakrílin, óvænt heimsókn Bókhlaðan, Rv. 1984
Jólasveinarnir AB, Rv. 1986
Olla og Pési AB, Rv. 1987
Víst er ég fullorðin AB, Rv. 1988
Drekasaga AB, Rv. 1989
Skuggarnir í fjallinu AB, Rv. 1990
Gegnum Þyrnigerðið Vaka-Helgafell, Rv. 1991
Snuðra og Tuðra verða vinir Iðunn, Rv. 1991
Snuðra og Tuðra í búðarferð Iðunn, Rv. 1991
Snuðra og Tuðra fara í strætó Iðunn, Rv. 1991
Snuðra og Tuðra í miðbænum Iðunn, Rv. 1991
Snuðra og Tuðra missa af matnum Iðunn, Rv. 1991
Fjársjóðurinn í Útsölum Iðunn, Rv. 1992
Snuðra og Tuðra halda jól Iðunn, Rv. 1992
Snuðra og Tuðra eiga afmæli Iðunn, Rv. 1992
Snuðra og Tuðra laga til í skápum Iðunn, Rv. 1992
Snuðra og Tuðra og fjóshaugurinn Iðunn, Rv. 1992
Snuðra og Tuðra láta gabba sig Iðunn, Rv. 199
Er allt að verða vitlaust? Iðunn, Rv. 1993
Með bómull í skónum Iðunn, Rv. 1994
Ævar á grænni grein Iðunn, Rv. 1995
Þokugaldur Iðunn, Rv. 1996
Út í víða veröld Iðunn, Rv. 1997
Haustgríma Iðunn, Rv. 2000
Snuðra og Tuðra í jólabakstri Salka, Rv. 2002
Snuðra og Tuðra fara til tannlæknis Salka, Rv. 2003
Kynjaverur í Kverkfjöllum Salka, Rv. 2003
Galdur Vísdómsbókarinnar Salka, Rv. 2005
Snuðra og Tuðra laga til Salka, Rv. 2005
Mánudagur - bara einu sinni í viku Salka, Rv. 2007
Snuðra og Tuðra og peningapúkinn Salka, Rv. 2007
Endurútgáfa
Snuðra og Tuðra verða vinir Salka, Rv. 2006
Snuðra og Tuðra í búðarferð Salka, Rv. 2006
Snuðra og Tuðra fara í strætó Salka, Rv. 2006
Snuðra og Tuðra í miðbænum Salka, Rv. 2006
Snuðra og Tuðra missa af matnum Salka, Rv. 2007
Hljóðbækur:
Snuðra og Tuðra, 12 sögur Dimma, Rv. 2004
Drekasaga og Leitin að gleðinni Dimma, Rv. 2005
Jólasveinarnir Dimma, Rv. 2006
Ævar á grænni grein Dimma, Rv. 2007
Efni í safnritum:
Smásagan Aspadista og erfðagóss / Smásögur listahátíðar ; AB, Rv. 1986.
Smásagan Fjögralaufasmárinn / Yrkja; Iðunn, Rv. 1990.
Smásagan Fyrst þarf ég að finna Bíldu / Barnanna hátíð blíð ; Forlagið, Rv. 1993.
Smásagan Sjö á landi sjö í sjó / Ormagull; MM, Rv. 1994
Leikþættirnir Tíu mínútur á Hlemmi og Við ruslagáminn / Leikum leikrit; MM, Rv. 1996
Þrjú ljóð í Raddir að austan Ljóð Austfirðinga / Félag ljóðaunnenda á Austurlandi 1999
Smásagan: Skírn sem segir sex / Töfrataflið; Félag íslenskra bókaútgefenda Rv. 2002
Þrjú ljóð í Djúpar rætur, hugverk þingeyskra kvenna / Pjaxi Rv. 2002
Bókarkafli í Huldumál, hugverk austfirskra kvenna / Pjaxi ehf. Rv. 2003
Smásagan Þá hlógu goðin / Auga Óðins, MM Rv. 2003
Smásagan Víða spretta brönugrösin / Skáldaval, Stoð og styrkur Rv. 2003
Námsbækur:
Bras og þras á Bunulæk Námsgagnastofnun, Rv. 1985
Iðunn og Eplin Námsgagnastofnun, Rv. 1987
Ormurinn í Lagarfljóti Námsgagnastofnun, Rv. 1991
Lesum saman Námsgagnastofnun, Rv. 1992
Lesum meira saman Námsgagnastofnun, Rv. 1994
Litlu landnemarnir Námsgagnastofnun, Rv. 2001
Óðinn og bræður hans Námsgagnastofnun, Rv. 2006
Mörkin horfin Námsgagnastofnun, Rv. 2007
Í samvinnu við sr. Sigurð Pálsson:
Brauð lífsins Námsgagnastofnun, Rv. 1994
Ljós heimsins Námsgagnastofnun, Rv. 1995
Upprisan og lífið Námsgagnastofnun, Rv. 1996
Birtan Námsgagnastofnun, Rv. 1997
Stjarnan Námsgagnastofnun, Rv. 1998
Regnboginn Námsgagnastofnun, Rv. 1999
Ég er húsið mitt. Önnur bók bók. Útg. Krossgötur
Umferðarskólinn Ungir vegfarendur Rv. 1993-1995:
Álfar og endurskin
Græni karlinn kemur alltaf aftur
Áfram, krakkar, einn tveir, þrír
Hann á afmæli í dag
Handrit að sjónvarpsmyndum:
Lóa litla Rauðhetta, RÚV 1987.
Á jólaróli, þættir, RÚV 1987.
Jólin nálgast í Kærabæ, jóladagatal, RÚV 1988.
Fótboltastrákurinn, RÚV 1989
Snuðra og Tuðra, þættir, RÚV 1990-1992
Kvikmyndahandrit:
Ég veðja á Ísland. Mynd um uppblástur og landgræðslu, gerð fyrir tilstuðlan Námsgagnastofnunar. Myndbær sá um framleiðsluna. Frumsýnd 1991.
Katla gamla Kvikmyndagerðin Terra 2005
Frumflutt leikrit:
Draugaglettur, Leikfélag Flateyrar 1989
Föstudagur hjá smáfuglunum. Samið fyrir Áfengisvarnarráð. Frumflutt í Álftamýrarskóla 1992. Leikið í skólum víðs vegar um land 1992-1993 í tengslum við samkeppni sem Áfengisvarnarráð efnir til.
Leikrit í samvinnu við Kristínu Steinsdóttur:
Síldin kemur og síldin fer, frumsýnt hjá Leikfélagi Húsavíkur 1986
19. júní, RÚV hljóðvarp 1987
19 júní, sviðsverk með söngvum, frumsýnt á Höfn 1987
Enginn skaði skeður, RÚV hljóðvarp 1987
Fugl í búri, útvarpsleikrit 1987
Fugl í búri, breytt í sviðsverk og frumsýnt hjá Snúð og Snældu, Rvík 1992
Síldin er komin, söngleikur, Leikfélag Reykjavíkur 1988
Eyrnalangir og annað fólk, Leikfélag Akureyrar 1989
Randaflugur, barnaleikrit 1989, frumsýnt á Flateyri
Keli þó, umferðarleikrit fyrir börn unnið í samvinnu við Alþýðuleikhúsið og Umferðarráð 1990.
Reimleikar í risinu. Frumflutt af Snúð og Snældu í Rvík1995.
Aldamótaeleksír. Samið í tilefni af aldarafmæli Seyðisfjarðar. Frumflutt af Leikfélagi Seyðisfjarðar 1995.
Systur í syndinni. Frumflutt af Leikfélagi Akureyrar 1999.
Erlendar útgáfur:
The good dragon AB, Rv. 1989
Durch die Dornenhecke Georg Bitter Verlag, Recklinghausen 1993
Efni í safnritum:
Smásagan Seitsemän maalla ja seitsemän meressä / Piilokansan tarinoita. Islantilais novellaja ja - kirjailijoita; BTJ Kirjastopalvelu, Helsinki 2001
Smásagan Siete en tierra, siete en la mar / Historias desde el hielo;
RBA Libros Barcelona 2003
Smásagan Sju på land, sju i sjø / Kulens side, Dimma 2007
Verðlaun og viðurkenningar
Bras og þras á Bunulæk : 1.- 3. verðlaun í samkeppni
Námsgagnastofnunar um léttlestrarefni árið1984.
Aspadista og erfðagóss:valin til birtingar í bókinni
Smásögur listahátíðar, AB 1986, að undangenginni samkeppni hjá Reykjavíkurborg.
19. júní: 1. verðlaun í leikritasamkeppni Ríkisútvarpsins árið1986.
Mánablóm og Randaflugur 2. og 3. verðlaun í verðlaunasamkeppni
Leikfélags Reykjavíkur árið1989.
Olla og Pési: Verðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur árið 1988
Gegnum Þyrnigerðið: Íslensku barnabókaverðlaunin árið 1991
Gegnum Þyrnigerðið: Á heiðurslista IBBY samtakanna 1992
Er allt að verða vitlaust?: Viðurkenning Íslandsdeildar IBBY 1994
Námsefni í Kristinfræði: Verðlaun Hagþenkis 1997
Heiðurslaun Bókasafnssjóðs 2000
Kjörin heiðursfélagi Rithöfundasambands Íslands 26. apríl 2007.

