Þuríður Stefánsdóttir
Þuríður Stefánsdóttir
Þura lærði tísku- og ljósmyndaförðun hjá myndlistarkonunni og förðunarmeistaranum Línu Rut Karlsdóttur. Auk þess er hún snyrtifræðingur með meistara- og alþjóðleg Cidescoréttindi í snyrtifræðum. Þetta er athafnasöm ung kona sem kom inn á ritstjórn Sölku með skýra hugmynd í kollinum um þá bók sem hún vissi að vantaði á íslenskan markað.
Förðun - þín stund er hnitmiðuð, falleg og aðgengileg bók, full af mikilvægum upplýsingum fyrir konur sem vilja líta vel út!
Þura hefur starfað á snyrtistofu, kennt förðun og snyrtingu, hannað eigin förðunarlínu og haldið förðunarnámskeið fyrir konur á öllum aldri. Í dag starfar hún fyrst og fremst í förðunargeiranum ásamt því að nema listfræði við Háskóla Íslands.

