Sigrún María Kristinsdóttir
Sigrún María Kristinsdóttir
Sigrún María Kristinsdóttir hefur starfað sem blaðamaður á Íslandi og í Kanada í nær tvo áratugi, og stundar nú doktorsnám í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands. Hún er einnig verðandi móðir ættleidds barns frá Tékklandi,
Sigrún María skrifaði Óskabörn, fyrstu bókina um ættleiðingar á Íslandi í 45 ár. Óskabörn er viðtalsbók, þar sem kjörfjölskyldur og fagfólk segja frá reynslu sinni hvað ættleiðingar varðar. Rætt er við ættleidda einstaklinga, fólk sem bíður eftir barni, kjörforeldra, sálfræðinga, geðlækna, barnalækna, kennara og svo mætti lengi telja.

