Sigrún Huld Þorgrímsdóttir
Sigrún Huld Þorgrímsdóttir
Sigrún Huld Þorgrímsdóttir er fædd 1952 í Garði í Mývatnssveit. Hún er hjúkrunarfræðingur og starfar nú við hjúkrun aldraðra. Hún hefur lengi haft áhuga á sögu lands og þjóðar og iðulega nýtt þann áhuga til að mynda betri tengsl við skjólstæðinga sína.
Sigrún Huld er hjúkrunarfræðingur og hefur hún sérstakan áhuga á að starfa í þágu öldraðra. Sá áhugi hvatti hana til að skrifa sérstaka bók sem tileinkuð er minningarvinnu með öldruðum. Bókin er skemmtilega uppsett eftir tímabilum í mannkynssögunni, en fanga er víða leitað, t.d. í sagnfræði, þjóðfræði, alþýðufróðleik, skáldsögum, barnabókum og ljóðum.
Sigrún hefur m.a. kynnt sér aðferðir til að nota minningar og lífssögu aldraðra til að bæta líðan þeirra á ýmsan hátt. Hún hefur skrifað bók um bakgrunn aldraðra Íslendinga, en henni er m.a. ætlað að veita yngri kynslóðum innsýn í reynsluheim fólksins sem nú er aldrað.
Sigrún Huld er með í smíðum bók um gönguferðir fyrir börn á ýmsum aldri í nágrenni Reykjavíkur.

