Kristian Guttesen
Kristian Guttesen
Kristian, fæddur árið 1974, er búsettur í Reykjavík. Kristian er fæddur í Danmörku árið 1974 þar sem hann ólst upp fyrstu ár ævi sinnar. Hann bjó á Íslandi 1980 - 1981 og frá 1985, en dvaldi við nám í Bretlandi frá 1995 þar sem hann lauk prófi í hugbúnaðarverkfræði, Software Engineering (BS), frá University of Glamorgan í Wales 1999.
Kristian hefur frá tvítugsaldri birt sögur og ljóð í tímaritum og dagblöðum á Norðurlöndum og á síðasta námsári sínu í Wales ritstýrði hann bókmenntatímaritinu Eclipse. Haustið 2006 var Kristian ritstjóri Hermes, tímarits heimspekinema við Háskóla Íslands. Þá var hann fulltrúi Íslands á skáldahátíðinni Ditet E Naimit í Makedóníu í október 2008. Hann er kvæntur faðir þriggja barna og stundar meistaranám í heimspeki við Háskóla Íslands.
Kristian hefur gefið út tvær bækur hjá Sölku, Mótmæli með þátttöku: Bítsaga (2004) og ljóðabókina Litbrigðamyglu (2005). Einnig þýddi hann Brekkuna, skáldsögu eftir Carl Frode Tiller sem gefin var út árið 2006.
Kristian Guttesen, b. 1974, is the author of seven poetry books in Icelandic, having published his first book in 1995. He was nominated for The 2007 Icelandic Translation Prize, for a translation of the Norwegian novel The Hill (n. Skråninga, by Carl-Frode Tiller), and is currently studying philosophy at The University of Iceland.

