Hrefna Rósa Sætran
Kokkinn Hrefnu Rósu Sætran þarf vart að kynna, en hún er einn eigandi Fiskmarkaðarins sem staðsettur er í Aðalstræti 12 í Reykjavík. Hún hefur vakið athygli fyrir ungan aldur, langa afrekaskrá, og þroskaðan og sérhæfðan smekk. Hrefna keppir fyrir hönd Íslands í kokkalandsliðinu og hefur verið með eigin matreiðsluþætti á Skjá einum.
Nú hefur hún bætt enn einni rósinni í hnappagatið með sinni fyrstu bók, Fiskmarkaðurinn
Hér eru samankomnir uppáhaldsréttir Hrefnu sem hún hefur framreitt á Fiskmarkaðnum en hún gerir þá einfaldari og aðgengilegri fyrir þá sem hafa gaman af því að búa til mat og vilja kalla fram hið ógleymanlega bragð sem Hrefna er þekkt fyrir.

