Guðni Gunnarsson
Guðni Gunnarsson
Guðni hefur mikla reynslu af hug-og heilsurækt eftir að hafa starfað sem lífsráðgjafi í rúmlega 20 ár. Hann er meðal annars fyrsti einkaþjálfarinn á Íslandi og stofnandi og upphafsmaður GlóMotion og Rope Yoga hugmyndafræðinnar, sem nýtur vaxandi vinsælda bæði hérlendis og vestanhafs.
Guðni er fæddur 1954 og uppalinn í Keflavík. Í dag rekur hann Rope Yoga Setrið í Listhúsinu í Laugardal og GlóMotion International. Hann starfar samhliða því við lífsráðgjöf, námskeiða- og fyrirlestrahald, þjálfun GlóMotion kennara, almenna GlóMotion þjálfun og skriftir.
Starfsferill Guðna við hug- og heilsurækt spannar þrjátíu ár og var hann fyrsti einkaþjálfari á Íslandi. 1982 stofnaði hann Vaxtarræktina hf en hún var í senn innflutningsverslun og líkamsræktarstöð og hafði það að markmiði að hvetja til andlegrar, huglægrar og líkamlegrar heilsuræktar. Fjórum árum síðar hóf Guðni samstarf við Björn Leifsson þegar Vaxtarræktin var lögð niður sem fyrirtæki en starfsemi hennar var flutt í World Class í Skeifunni.
Árið 1986 stofnaði Guðni tímaritið Líkamsrækt og næring og fram til ársins 1988 var hann útgefandi og aðalritstjóri þess. Á árunum 1987–1989 veitti hann forstöðu deildar innan Máttar fyrir heildræna þjálfun hugar og líkama. Máttur var hugarfóstur hóps lækna og starfsfólks í heilbrigðiskerfinu þar sem lögð var áhersla á nýja og heildræna nálgun við heilsu og líkamsþjálfun. Samhliða þessum störfum
aflaði Guðni sér víðtækrar þekkingar á samspili huga og líkama í gegnum jóga, næringarfræði, náttúruleg bætiefni og líkamsþjálfun.
Sú hugmyndafræði sem Guðni hefur hannað og þróað er einkum afrakstur dvalar hans í Los Angeles á tímabilinu 1990–2006. Þar starfaði hann við heildræna þjálfun líkama og sálar og við lífsráðgjöf fyrir einstaklinga og hópa. Samhliða vann hann að þróun og hönnun Rope Yoga kerfisins og æfingastöðvarinnar, en kerfið tengir hugrækt, líkamsrækt, næringarfræði og orkuumsýslu í eitt heildrænt velsældarkerfi.
Árið 2006 flutti Guðni aftur til Íslands, stofnaði Rope Yoga Setrið og hóf að þróa Rope Yoga kerfið yfir í GlóMotion. GlóMotion býr yfir fleiri tegundum æfinga og þar er lögð aukin áhersla á það hvað við nærum og á hvaða forsendum. GlóMotion námskeið hafa verið kennd í Rope Yoga Setrinu við góðar undirtektir frá árinu 2008.
Bækur Guðna eru
Guðni heldur fyrirlestra um allt land.
Hægt er að hafa samband í síma 535-3800 eða með tölvupósti á matturviljans@glomotion.is.


