Harpa Jónsdóttir
Harpa Jónsdóttir
Harpa er ekki síður þekkt sem textíllistamaður og áhugaljósmyndari, en sem rithöfundur. Hún hefur haldið einkasýningar á útsaumsverkum sínum, meðal annars á torgi Þjóðminjasafnsins og í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Verk hennar hafa birst í erlendum blöðum og tímaritum og hún hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir þau. Harpa var bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar árið 2002.

Fyrsta bók Hörpu, Ferðin til Samiraka, hlaut íslensku barnabókaverðlaunin, árið 2002. Önnur bók hennar, ljóðabókin Húsið, kom út árið 2008. Nú er svo komin út, hjá Sölku, þriðja bók Hörpu, spennusagan; Eitt andartak í einu.
Vefsíða Hörpu er www.harpaj.net