Gagnlegar leiðbeiningar
Skil og frágangur á frumsömdum handritum og þýðingum
Í hverjum mánuði fær Salka fjöldann allan af frumsömdum handritum/þýðingum frá hugmyndaríku og skapandi fólki. Við biðjum þá sem skila inn efni að hafa eftirfarandi í huga:
- Panta skal tíma hjá ritstjóra (kristin@salka.is) eða útgefanda (hildur@salka.is)
áður en komið er með handrit til að athuga hvort það sé áhugi fyrir hendi. - Ekki er hægt að skila handriti í tölvupósti. Handriti þarf að skila útprentuðu,
vel frágenginu, prófarkalesnu og snyrtilegu. - Upplýsingar um höfund/þýðanda verða að fylgja með; starf, reynsla o. s. frv.
- Vegna þess hve mörg handrit berast til yfirlestrar gefum við okkur upp í
allt að þrjá mánuði til að halda handritunum. - Á meðan handritið er í yfirlestri hjá Sölku er þess farið á leit að það sé
ekki í skoðun hjá öðrum útgáfum. - Salka áskilur sér rétt til þess að skila handriti til baka án þess að veita
rökstuðning eða skrifa umsögn.
