forlag með sál
Um Sölku

Sagan okkar

Bókaútgáfan Salka var stofnuð vorið 2000.
Nú starfa níu starfsmenn hjá fyrirtækinu, sem alla tíð hefur vaxið jafnt og þétt og ætíð lagt megináherslu á útgáfu verka eftir konur þó nokkrir karlar séu líka innanborðs. Meira en helmingur titla eru handbækur af ýmsu tagi en þó koma út fáein skáldverk árlega, bæði íslensk og þýdd, og nokkrar ævisögur og barnabækur hafa litið dagsins ljós. Heilsubækur, lífsstílsbækur, matreiðslubækur og ferðabækur skipa stóran sess og bókum fyrir erlenda ferðamenn hefur fjölgað undanfarin misseri.
     Á árinu 2010 voru gefnir út nær 40 titlar hjá Sölku og þar af um 30 íslenskar bækur sem voru alfarið unnar á vegum forlagsins. Þetta er óvenju hátt hlutfall miðað við aðrar bókaútgáfur, enda ríkir mikil bjartsýni og vinnugleði í Sölku sem starfar í anda Leyndarmálsins þar sem stendur: „Hið hugsanlega er mögulegt“.


hus




Salka er forlag með sál.

Staðsetning Sölku


Aukaflokkar



Þetta vefsvæði byggir á Eplica