TAROT-KVÖLD SÖLKU HEFJA AFTUR GÖNGU SÍNA!
*vorum að bæta við tveimur námskeiðum í mars! Þökkum frábærar móttökur*
Verið velkomin á tarot-kvöld Sölku þar sem nornin Íris Ann Sigurðardóttir kennir grunnatriði tarot-lesturs, hvernig leggja skal spilin og lesa úr þeim.
Innifalið í verðinu er handbók um tarot, falleg tarot-spil, léttvínsglas (eða óáfengur drykkur) og að sjálfsögðu kennslan. Pláss er fyrir 18 manns á námskeiðinu. Tvær dagsetningar eru í boði, 6. mars og 18. mars.
* þeir sem þegar eiga Tarot-bókina og spilin geta valið um að fá bókina Lesið í tarot eða Leiðarvísir nornarinnar að sjálfsrækt í staðinn *
Námskeiðin fara fram í bókabúð Sölku á Hverfisgötu 89-93, 101 Reykjavík. Þau hefjast kl. 20 og áætlað er að námskeiðin standi til kl. 22.
Verið hjartanlega velkomin!
]]>Stórhöfuðborgarsvæðið, Selfoss, Akranes, Borgarnes og Keflavík: fyrir hádegi 23. desember
Aðrir landshlutar: fyrir hádegi 22. desember
]]>18.-22. desember - opið frá 11-22
Þorláksmessa 23. desember - opið frá 11-23
Aðfangadagur 24. desember - opið frá 11-13
Lokað er 25., 26. og 31. desember.
]]>
Á bás Sölku verður svo hægt að læra tarot-lestur og -lagnir og Elsa Harðardóttir kemur til okkar og kennir okkur að hekla fallegar jólakúlur. Að sjálfsögðu verða allar bækur ársins til sölu á góðum kjörum og aldrei að vita nema við bjóðum upp á gotterí. Opið er frá 11-17 báða dagana.
Við hlökkum til að sjá ykkur í stuði!
]]>Elsa Harðardóttir er forfallinn heklari og uppskriftir eftir hana hafa meðal annars birst í erlendum handavinnutímaritum. Hún þróaði uppskriftirnar og hugmyndirnar í bókinni í samstarfi við dóttur sína.
Við fögnum útgáfunni í bókabúð Sölku fimmtudaginn 23. nóvember kl. 17.
]]>Hin íslenska litabók eftir Sísí Ingólfsdóttur er komin út á íslensku og ensku! Samhliða útgáfunni stendur yfir listasýning og uppboð í kjallara Sölku við Hverfisgötu til og með laugardagsins 2. september. Verið hjartanlega velkomin!
Ferðastu um Ísland og gefðu sköpunargleðinni lausan tauminn með þessari skemmtilegu og einstöku litabók úr smiðju listakonunnar Sísíar Ingólfsdóttur. Í Hinni íslensku litabók má finna 54 myndir sem sýna íslenska náttúru, þjóðlíf, menningu og ýmis sérkenni íslensku þjóðarinnar. Meðal þess sem finna má á myndunum er:
…og margt, margt fleira!
]]>Um helgina hlaut bókin um Jómfrúna alþjóðlegu matreiðslubókaverðlaunin Gourmand við hátíðlega athöfn í Umeå í Svíþjóð og sannaðist þar með það sem margir telja sig þegar vita, nefnilega að Jómfrúin er best í heimi! Jakob E. Jakobsson höfundur bókarinnar og eigandi Jómfrúarinnar tók við verðlaununum og voru útgefendur hjá Sölku með í för við þetta gleðilega tilefni.
Matreiðslubækur frá fleiri en 200 löndum taka þátt í Gourmand ár hvert en verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1995.
]]>Matreiðslubækur frá fleiri en 200 löndum taka þátt í Gourmand ár hvert en verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1995.
Íslendingar hafa löngum þekkt töfra Jómfrúarinnar í Lækjargötu. Fáir veitingastaðir eiga jafnmarga fastagesti og á aðventunni er nánast ómögulegt að fá þar borð því gestir tryggja sér sitt pláss með margra mánaða fyrirvara og sumir meira að segja með margra ára fyrirvara og eiga sitt borð ár eftir ár. Jafnvel hafa heyrst sögur af því að borðapantanirnar gangi í erfðir.
Á 25 ára afmæli Jómfrúarinnar gaf bókaútgáfan Salka út matreiðslubók veitingahússins en hún fangar andrúmsloftið sem í Lækjargötunni ríkir og í henni má finna uppskriftir að fjölmörgum réttum sem prýtt hafa matseðilinn í gegnum tíðina, sögu veitingastaðarins og vitnisburð fastakúnna sem allir kalla Jómfrúna sína. Á boðstólum á Jómfrúnni er, og hefur alltaf verið, danskt smurbrauð í bland við aðra sígilda danska rétti að ógleymdum guðaveigum til að væta kverkarnar. Hefðin er í hávegum höfð á Jómfrúnni og stefna hennar er að halda kúrsinum stöðugum á langri og farsælli leið. Hún er fjölskyldufyrirtæki og höfundur bókarinnar er Jakob E. Jakobsson, eigandi Jómfrúarinnar og sonur stofnandans Jakobs Jakobssonar. Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir tekur fallegar ljósmyndir bókarinnar, Ómar Valur Steindórsson yfirkokkur veitingastaðarins hafði umsjón með uppskriftum og Brynjólfur Óli Árnason sá um drykkjaruppskriftir. Að bókinni kemur svo að sjálfsögðu einnig annað starfsfólk á Jómfrúnni á sinn einstaka hátt.
„Eftir að hafa ítrekað rekið okkur á það að barnabækur gerðu ekki ráð fyrir okkar fjölskylduformi ákváðum við að okkur langaði að bæta úr því,“ segir Ingileif og heldur áfram: „En það er ekki bara okkar fjölskylduform sem endurspeglast ekki í barnabókum, heldur einnig fjölbreytileiki fjölda barna þarna úti þegar kemur að kynhneigð, kynvitund, uppruna, útliti, áhugamálum og fjölskyldumynstri. Okkur langaði því að skrifa bækur sem búa til pláss fyrir öll börn til að vera nákvæmlega eins og þau eru.“
Ingileif og María hafa áður sent frá sér barnabókina Vertu þú! Litríkar sögur af fjölbreytileikanum sem fékk frábærar viðtökur hjá lesendum.
Um Úlf og Ylfu:
Dagurinn í dag er enginn venjulegur dagur. Í dag ætlar Úlfur að fara í ævintýraleiðangur með Ylfu, bestu vinkonu sinni. Það er svo margt skemmtilegt hægt að gera þegar ímyndunaraflið er með í för! Þá getur íslenskur mói breyst í sléttur Afríku og lítil tjörn orðið að Atlantshafinu. Úlfur getur ekki beðið eftir að segja mömmum sínum frá ævintýrum vinanna í lok dags.
]]>Hefur þig dreymt um að vera í skemmtilegum bókaklúbbi? Þá erum við með góðar fréttir! Fyrsti leshringur bókabúðar Sölku við Hverfisgötu verður haldinn þriðjudaginn 28. mars kl. 20.
Fjallað og rætt verður um tvær bækur margfalda metsöluhöfundarins Colleen Hoover, Þessu lýkur hér og Verity, sem báðar eru komnar út í íslenskri þýðingu. Þýðendur og útgefendur bókanna, Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir, verða á staðnum og stýra leshringnum.
]]>Fjallað og rætt verður um tvær bækur margfalda metsöluhöfundarins Colleen Hoover, Þessu lýkur hér og Verity, sem báðar eru komnar út í íslenskri þýðingu. Þýðendur og útgefendur bókanna, Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir, verða á staðnum og stýra leshringnum.
Bækurnar eru báðar á frábæru tilboði í bókabúð Sölku og í vefverslun og við hvetjum ykkur til að næla ykkur í þessar bækur sem farið hafa sem stormsveipur um bókaheiminn á góðu verði! Bókabarinn verður að sjálfsögðu opinn og við búumst við líflegum og skemmtilegum umræðum! Hér má kaupa bækurnar á tilboði:
]]>