Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Einn plús einn

1,990 ISK

Höfundur Salka Bókaútgáfa

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Óvænt ástarsaga sem kemur skemmtilega á óvart. Einstæð móðir Jess, einstæð tveggja barna móðir í tveimur störfum, gerir sitt besta dag eftir dag. En það getur verið erfitt að berjast endalaust upp á eigin spýtur og stundum þegar öll sund virðast lokuð tekur fólk vafasama áhættu.

Einstök fjölskylda Tanza, hin hæfileikaríka en sérstaka dóttir Jess, er snillingur að fást við tölur, en án fjárhagsaðstoðar mun hún aldrei fá tækifæri til að láta ljós sitt skína. Og Nicky, stjúpsonur Jess, er að bugast undan einelti. Stundum líður Jess eins og það sé engin von.

Ókunnugur milljónamæringur, maður að nafni Ed Nicholls flækist óvænt inn í líf Jess en hann á meira en nóg með sín eigin vandamál á ýmsum vígstöðvum. Skyldi honum nú loks takast að gera eitthvað rétt?

Óvænt ástarsaga Einn plús einn er hrífandi og ómótstæðileg ástarsaga um tvær ráðvilltar sálir sem hittast við óvenjulegar aðstæður. Þetta er þriðja bókin á íslensku eftir Jojo Moyes, þennan vinsæla metsöluhöfund.

Herdís Magnea Hübner íslenskaði.